Fréttablaðið - 11.01.2008, Side 32

Fréttablaðið - 11.01.2008, Side 32
BLS. 4 | sirkus | 11. JANÚAR 2008 V ið þurfum því miður að loka Sirk-us 1. febrúar vegna fyrirhugaðra framkvæmda í miðbænum,“ segir Sig- ríður Guðlaugsdóttir, eigandi Sirkuss, betur þekkt sem Sigga Boston, en hún hefur einnig rekið barinn Boston með vinkonu sinni, Hildi Zoëga, í rúmt ár. Sigga er ósátt við að þurfa að loka Sirkus sem hún hefur rekið í tæp átta ár. „Það á að rífa húsnæði Sirkuss og húsin þar í kring. Ég veit ekki hvernig þetta endar ef borgin ætlar að halda uppteknum hætti og loka hverju fyrir- tækinu á fætur öðru,“ segir Sigga sem gagnrýnir harðlega niðurrifsstarfsemi borgarinnar. Rekstur Sirkuss hefur alla tíð verið afar blómlegur og notið mikilla vinsælda, hann hefur mikið verið lofaður í erlendum tímaritum og þykir með þeim flottustu í Norður- Atlantshafi og þótt víðar væri leitað. „Árlega heimsækja margir túristar barinn enda virðast það vera aðeins tveir staðir sem þeim finnst nauðsyn- legt að heimsækja, Sirkus og Hallgrímskirkja,“ segir Sigga en auk þessarar miklu umfjöllunar erlendis hefur staður- inn verið notaður við upptökur á bíómynd- um og myndböndum, en Sirkus kom einmitt mikið við sögu í mynd- bandi Bjarkar Guð- mundsdóttur, Triumph of a heart. „Ef ég fæ húsnæði fyrir Sirkus mun ég halda rekstrinum áfram en það er ekki auðsótt mál þar sem niðurrif miðbæjarins virðist vera í algleym- ingi,“ segir Sigga sem gæti vel hugsað sér, meira í gríni en alvöru, að fara með Sirkusinn sinn niður í Hljóm- skálagarðinn. Á þessum síðustu líf- dögum Sirkuss við Klapparstíginn verður þó nóg um að vera og staður- inn verður svo sannarlega kvaddur með stæl. „Við ætlum að reyna að skipta kvöldunum niður þannig að flestir sem hafa komið við sögu síð- ustu árin spili hjá okkur en nú um helgina munu þeir Jón Atli og Gísli Galdur spila ásamt fleiri góðkunn- ingjum,“ bætir Sigga við að lokum sem sér sárlega eftir húsnæðinu við Klapp- arstíg. Sirkus á sér marga fastagesti sem harma mjög lokun staðarins. Stebbi Steph, betur þekktur sem President Bongo á Sirkus er einn fastagestanna sem harma lokun stað- arins. „Þetta er glatað og ömurlegt. Alltof tilfinningalegt dæmi fyrir mig,“ upplýsir Stebbi sem segist eiga eftir að sakna mest sætu stelpnanna á barnum. Henrik Björnsson tónlistarmaður hefur verðið fastagestur Sirkuss frá því staður- inn var opnaður. „Einhvern tímann loka allir staðir en það er engu síður ömurlegt að það eigi að byggja verslunarmið- stöð þarna,“ sagði Henrik um lokun staðarins. „Miðbærinn er enginn staður fyrir svoleiðis vitleysu. Það er ekki hægt að rífa allt sem er gamalt og sögulegt og setja eitthvað nýtt og plebbalegt í staðinn. Það er eitthvað sem allir munu sjá eftir,“ bætir Henrik við en hann á eftir að sakna Sirkuss á Klappar- stígnum. „Þetta er fallegur stað- ur. Fallegt lítið hús að utan og twilight zone að innan. Garðurinn er líka voða fínn á sumrin, þegar hann mátti vera opinn,“ segir Henrik að lokum. Það eru ekki einungis fasta- kúnnar sem munu gráta þessar aðgerðir Reykjavíkurborgar því að Sirkus er orðinn stór partur af mið- bænum auk þess sem hann hefur trekkt að fjöldann allan af ferða- mönnum. Sirkus gerði Klapp- arstíginn að miðpunkti skemmtanalífsins á sínum tíma og verður sárt sakn- að. bergthora@frettabladid.is SIRKUS SIGGU LOKAR 1. FEBRÚAR STEBBI STEPH BETUR ÞEKKTUR SEM PRESIDENT BONGO SIRKUS BAR Heyrir sögunni til 1. febrúar. HENRIK BJÖRNSSON SVARTIR DAGAR Í MIÐBÆNUM SIGGA Á SIRKUS Li st in n g ild ir 1 1. t il 1 8 . j an 2 00 8 Skífulistinn er samantekt af mest seldu titlum í Skífunni og verslunum BT út um allt land. Astrópía Næturvaktin Mýrin Bourne Ultimatum High School Musical 2 Secret, The - íslenskt Transformers Knocked Up Rush Hour 3 High School Musical 1 Harry Potter the Order of P. Hairspray Köld Slóð Pirates of the Caribbean 3 Evan Almighty DVD Mr. Brooks Lincence To Wed Meet the Robinsons DVD Hot Fuzz Fóstbræður Season 5 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 VINSÆLUSTU DVDVINSÆLASTA TÓNLISTIN Mugison Mugiboogie Hjálmar Ferðasót Radiohead In Rainbows Páll Óskar Allt fyrir ástina Hjaltalín Hjaltalín Ýmsir Pottþétt 45 Ellen Kristjánsdóttir Einhversstaðar Einhverntíma Einar Scheving Cycles Led Zeppelin Mothership GusGus Forever Sigur Rós Hvarf / Heima Eagles Long Road Out Of Eden Eivör Human Child/Mannabarn Benny Crespo´s Gangt Benny Crespo’s Gang Amy Winehouse Back To Black Ný Dönsk 1987-2007 Dísella Solo Noi Katie Melua Pictures Álftagerðisbræður Álftagerðisbræður Land og Synir Lífið er Yndislegt 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 Skífulistinn topp 20 A A A A A A N Lækkar frá síðustu viku Hækkar frá síðustu viku Stendur í staðNýtt á listaAftur á lista 21 6 1317 16 17 Vinsælustu titlarnir N N

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.