Fréttablaðið


Fréttablaðið - 11.01.2008, Qupperneq 36

Fréttablaðið - 11.01.2008, Qupperneq 36
BLS. 8 | sirkus | 11. JANÚAR 2008 É g er mikið fyrir að vera í stíl og hef alla tíð verið þannig. Ef ég næ ekki að tengja saman liti í „outfittinu“ líður mér hálf undarlega,“ segir Ellen Loftsdóttir sem sker sig úr hvar sem hún kemur. Ellen blandar saman stílum úr ólíkum áttum svo úr verður hennar eigin stíll, sem er í senn skemmtilegur, litríkur og óhefðbundinn. Hún segist sækja innblásturinn héðan og þaðan en fatastíllinn mótast af fólkinu og umhverfinu sem hún er í hverju sinni. Í haust flutti Ellen til Lundúna og hóf nám í tísku, almannatengslum og markaðsfræðum í London College of Fashion. „Námið er mjög fjölbreytt og skapandi. Það fók- us erar ekki bara á eitthvað eitt innan tískubrans- ans heldur á allt það sem tengist tískuheimin- um, en það hentar mér mjög vel þar sem ég er ekki alveg búin að ákveða hvað ég ætla að verða þegar ég verð stór,“ segir Ellen sem mælir hik- laust með náminu fyrir þá sem hafa brennandi áhuga á tísku. „Ég kann rosalega vel við mig í London og fíla allt það fjölskrúðuga mannhaf sem hér er að finna en fólkið gerir borgina að því litríka samfélagi sem hún er,“ segir Ellen um lífið í stórborginni sem veitir henni mikinn innblást- ur. „Fyrir mér er London borg tækifæranna. Maður þarf bara að finna út hvar þau leynast og vera óhræddur við að grípa þau þegar færi gefst,“ segir Ellen en í haust starfaði Ellen fyrir hönnuðinn Richard Nicoll og hefur nú boðist lærlingsstaða hjá fatahönnuðinum Peter Jensen. „Það er stórhættulegt fyrir „shopalcoholic“ eins og mig að búa í London. Hér er alltof mikið af freistingum, dálítið eins og fyrir barn að búa í sælgætislandi. Ég slysast oft inn í hinar og þessar búðir og áður en ég veit af stend ég við kassann tilbúin með vísa- kortið,“ segir hún en bætir því við að fyrir þann sem kann á borgina og þekkir búðirnar er oft hægt að fá mikið fyrir lítið og því sérlega hentugt fyrir fátæka námsmenn. Bestu kaup síðasta árs gerði hún einmitt í London fyrir jól. „Ég fór á svokallaða „sample- sale“ hjá hönnuðinum Peter Jen- sen sem hann hélt í stúdíóinu sínu, þar keypti ég tvo fal- lega kjóla og eina þunga ullar peysu fyrir rúman 20 þúsund kall sem er nátt- úrulega bara gefins. Ég elska þegar ég fæ það á tilfinn- inguna að ég sé að græða þegar ég kaupi mér föt,“ bætir hún við. Hún segist vera mjög veik fyrir flottum og dýrum hlut- um sem hún hafi ekki efni á. „Þegar ég skoða dýra hönnun sem ég veit fyr- irfram að ég hef ekki efni á lít ég á það sem svo að ég sé að velja mér hluti fyrir framtíðina,“ bætir Ellen við og brosir út í annað enda er það sérsvið þeirra sem hrærast í tískuheiminum að réttlæta peninga- eyðsluna. Hún er þó ekki bara svag fyrir fatnaði, hún elskar líka skó. „Ég dýrka að eiga flotta skó. Það er bara eitthvað við skó sem gerir mann ánægðari og þeir setja einhvern veginn alltaf punktinn yfir i-ið. Útlitið er fullkomnað með flottum skóm,“ segir hún. Þegar skókaupin eru rædd nánar kemur í ljós að hún hefur ekki farið varhluta af helstu tískustraumum því fyrir all- mörgum árum átti hún Buffalo-skósafn. „Ég var á símalista verslunarinnar Bossanova á Lauga- vegi en þeir seldu Buffalo-skóna. Ég fékk hring- ingu í hvert skipti sem ný sending kom í hús til að vera viss um að ég myndi ekki missa af neinu.“ Umrætt Buffalo-tímabil er þó eitt það svartasta sem hún hefur upplifað hvað varðar tískuna. „Í dag hefur þó tískuslysunum farið fækkandi sem betur fer því ég er orðinn svo mikill atvinnumað- ur í greininni,“ segir Ellen hlæjandi. Ellen á marga uppáhaldshönnuði og á erfitt með að gera upp á milli þeirra. „Yfirleitt skipti ég reg dál hve hve ekk nok ast að ére Vib Pra Nic Sci dái sam „Ísl og við haf ver ing að list ELLEN LOFTSDÓTTIR, NEMI Í TÍSKU, ALMANNATENGSLUM OG MARKAÐSFRÆÐI, ER BÚSET ELLEN OG ERNA EN Á TÍMABILI VORU ÞÆR STÖLLUR MEÐ SJÓNVARPSÞÁTTINN Á BAK VIÐ UNUM OG FÉKK AÐ SKYGGNAST INN Í LÍF HENNAR SEM EINKENNIST AF TÍSKU MEÐ ÖRLIT BORG TÆKIFÆRANNA LIFIR DRAUMINN Í VINTAGE KJÓLL SEM ELLEN FÉKK AÐ GJÖF EN NÆLAN VAR Í KJÓLNUM ÞEGAR ELLEN FÉKK HANN Í SÍNAR HENDUR. KANNKSI HEFUR SÁ SEM ÁTTI KJÓLLINN VERÐIR Í HINU KONUNGLEGA BRÚÐKAUPI Á SÍNUM TÍMA OG SELT HANN EFTIR SKILNAÐINN.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.