Fréttablaðið - 11.01.2008, Page 50

Fréttablaðið - 11.01.2008, Page 50
BLS. 14 | sirkus | 11. JANÚAR 2008 Verður í rosalegu formi 2008 Sigríður Klingenberg spáir í Sirkus www.klingenberg.is leiðir... SPURNINGAKEPPNI sirkuss ■ Jóel Pálsson 1. Konur og takkaskór. 2. Ólafur Stefánsson. 3. Man það ekki. 4. Fló á skinni. 5. Anthony Hopkins. 6. Margrét Lára. Jóel Pálsson og Torfi Frans hlutu fimm stig hvor og munu því mætast aftur að viku liðinni. 1. Hvaða heitir bók hjartaknúsarans Þorgríms Þráinssonar sem kom út fyrir jól? 2. Hver er fyrirliði íslenska landsliðsins í hand- bolta? 3. Ráðuneytisstjóri forsætisráðuneytisins var á dögunum sæmdur stórriddarakrossi forsetans, hvað heitir hann? 4. Hvaða gamanleik frumsýnir Leikfélag Akureyrar 8. febrúar? 5. Hvaða stórleikari fer með hlutverk vísinda- mannsins Lord Asriel í kvikmyndinni „Gyllti áttavitinn”? 6. Hver var kosin(n) Íþróttamaður ársins? 7. Hverjir ritstýra DV? 8. Söngkonan ástsæla Ellen Kristjánsdóttir sendi frá sér plötu fyrir jól, hvað heitir hún? 9. Hvaða breska súpermódel tók nýverið viðtal við forseta Venesúela, Hugo Chavez, fyrir breska tímaritið GQ? 10.Hvað heitir forsætisráðherra Breta? 5 RÉTT SVÖR. 5 RÉTT SVÖR.■ Torfi F. Ólafsson 1. Hvernig á að stunda kynlíf eins og ég. 2. Ólafur Stefánsson. 3. Man það ekki. 4. Veit það ekki. 5. Daniel Craig. 6. Margrét Lára. 7. Reynir Traustason. 8. Einhversstaðar einhverntímann... aftur. 9. Jordan. 10. Gordon Brown 7. Reynir Traustason og Mikael Torfason. 8. Einhversstaðar einhverntímann... aftur. 9. Davíð Þór Jónsson. 10. Gordon Brown. SPURNINGAKEPPNIN HELDUR GÖNGU SINNI ÁFRAM. HÉR MÆTIR TÓNLISTARMAÐURINN JÓEL PÁLSSON SÍNUM FIMMTA MÓTHERJA, TÖLVUGÚRÚINUM TORFA FRANS ÓLAFSSYNI. Rétt svör: 1. Hvernig gerir þú konuna þína hamingjusama. 2. Ólafur Stefánsson. 3. Bolli Þór Bollason. 4. Fló á skinni. 5. Daniel Craig. 6. Knattspyrnukonan Margrét Lára Viðarsdóttir. 7. Feðgarnir Reynir Traustason og Jón Trausti Reynisson. 8. Einhversstaðar einhverntímann... aftur. 9. Naomi Campbell. 10.Gordon Brown. R óbert Wessman forstjóri Actavis er fæddur 04.10.1969. Sigríður Klingenberg segir að hann sé mjög næmur maður og hafi vit á mann- fólkinu en þessi hæfileiki hefur reynst honum ofurvel í gegnum tíðina. „Hann er afar góður við starfsfólkið sitt og hann hjálpar því mikið,“ segir Sigríður en þá á hún við að hann sé alltaf tilbúinn til að greiða leið starfsfólksins, sem geri það að verkum að það sé honum afar hliðhollt. „Róbert er geðgóður og brosmildur. Þótt hann hafi notið mikillar kvenhylli í gegnum tíðina er hann alltaf viss um hvernig hann vill hafa sín mál og hefur bara verið ástfanginn af einni konu. Róbert vill hafa mikið fjör í kringum sig og finnst gaman að koma fólki á óvart. Hann á eftir að hjálpa mörgum á toppinn og hans aðalmottó gæti verið, sælla er að gefa en þiggja. Hann hefur mikið flæði í kringum sig og passar sig á því hverja hann umgengst. Hann eyðir ekki tíma í þá sem honum finnst halda sér niðri heldur umvefur sig hirð sinni. Hann hefur komið á óvart á Íslandi en hans verður getið í bókunum sem eins gjafmildasta manns Íslands. Róbert hefur lífstöluna þrjá en sú tala táknar gott hugmyndaflug, sköpunarkraft og gleði. Hann nýtir tímann sinn vel og er að fara inn á sína háandlegu tölu sjö. Hann verður í svo gífurlegu formi þetta árið að Þorgrímur Þráinsson gæti þurft að fara að vara sig,“ segir Sigríður um Róbert. RÓBERT WESSMAN NENNIR EKKI AÐ UMGANGAST LEIÐINLEGT FÓLK „Hann verður í svo gífurlegu formi þetta árið að Þorgrímur Þráinsson gæti þurft að fara að vara sig,“ segir Sigríður Klingenberg. Búðu í tjaldi úti í garði heima hjá þér, hringdu síðan beint í Kastljósið og segðu þeim frá uppátækinu. Næsta innslag Kastljósins verður bókað um þig. Skráðu þig í spurningaleikinn Ertu skarpari en skólakrakki, mættu í mörgæsabún- ingi í útsending- una og það munu allir muna eftir þér. Tímarit og dagblöð munu hafa samband við þig og birta mynd af þér í búningnum. Aðgerð sem ætti ekki að klikka - sama hvað... Opnaðu bloggsíðu og dissaðu Egil Helgason fyrir að vera karlremba. Áður en þú veist af hringir hann í þig og boðar þig í Silfur Egils, þátt sem hálf þjóðin horfir á. Gefðu út bók sem heitir „Hvernig áttu að fullnægja þér?“. Íslendingar er uppfullir af sjálfum sér og eru til í að kaupa allt sem færir þeim ennþá meiri sjálfselsku og gervihamingju. Bók sem gæti hæglega orðið metsölubók og fært höfundinum ekki einungis landsfrægð heldur líka fullt af peningum. Keyptu þér poodle-hund og týndu honum svo. Bloggaðu um að einhver ónefndur dýraóvinur hafi sett hundinn í Bónuspoka og látið hann hverfa sporlaust. Tryllt blogghjörðin mun gera þig að þjóðhetju á hálfum sólarhring. ■ sem færa þér frægð og frama V or og sumarlína E-label kemur á markað í lok febrúar,“ segir Ásgrímur Már Friðriksson fatahönnuður, betur þekkt- ur sem Ási. En E-Label er samstarfsverkefni hans, Ástu Kristjánsdóttur ljósmyndara og Andreu Bra- bin. Fyrsta fatalína E-Label kom á markað í haust en fötin eru eingöngu seld á netinu. „Við höfum fengið frábærar viðtökur, línan hefur gengið vonum framar og er við það að seljast upp. Við ákváðum að selja fatnaðinn á netinu til að halda verðinu í lágmarki og fyrir vikið getum við selt fötin á 40-50% lægra verði en ef við værum að selja þau í verslun,“ upplýsir Ási ánægður með vel- gengnina. „Í vor- og sumarlínunni höldum við áfram að vinna á svipuðum nótum og líkt og við gerðum í vetrarlínunni en notum léttari efni,“ segir Ási en E-label leggur mikið upp úr því að bjóða upp á þægileg föt úr góðum efnum. „Í sumarlínunni verður meira af kjólum og toppum. Við höldum áfram með slárn- ar og hettupeysurnar úr vetrarlínunni sem verða með aðeins breyttu sniði. Við erum aðeins að prófa okkur með að nota ljósa liti með svarta litn- um en svarti liturinn heldur engu að síður áfram að vera ríkjandi hjá okkur enda eru Íslendingar svartir,“ bætir Ási við að lokum. Þeir sem ekki hafa ennþá tryggt sér E-label flík geta gert það í dag en þá verður útsala á því litla sem eftir er af vetrar- línunni í Skúlatúni 4, frá kl. 14-16. bergthora@frettabladid.is VOR-OG SUMARLÍNA E-LABEL VÆNTANLEG Á MARKAÐINN Mögnuð viðbrögð ÁSTA KRISTJÁNSDÓTTIR OG ÁSGRÍMUR MÁR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.