Fréttablaðið - 11.01.2008, Síða 66

Fréttablaðið - 11.01.2008, Síða 66
 11. janúar 2008 FÖSTUDAGUR Myndlistarmaðurinn Ívar Val- garðsson opnar sýningu á verkum sínum kl. 17 í dag í gallerí i8. Á sýningunni beinir Ívar athygli áhorfandans að því hvernig ljós, endurvarp og afstaða stýrir birt- ingarmynd litarins og upplifun- inni af honum. Ívar leitar víða fanga í rannsókn sinni. Hann kannar hvernig fljót- andi málning myndar slétt yfir- borð í málningarfötu sem og hvernig málning myndar mismun- andi yfirborð við ólíkar aðstæður, til að mynda hvernig hún streymir sé henni hellt og hvernig endur- teknar yfirferðir verða að þrívíð- um listhlut. Myndlist Ívars sprettur af skoð- un á hversdagslegu umhverfi okkar og vekur þannig spurningar um hlutverk listarinnar í lífi okkar. Gallerí i8 er á Klapparstíg 33. Sýning Ívars stendur yfir til 16. febrúar næstkomandi. - vþ Græna ljósið, Alliance Française og franska sendiráðið á Íslandi efna til franskrar kvikmyndahátíð- ar í Háskólabíói og hefjast sýningar í dag. Sýndar verða ellefu sérvaldar, fjöl- breyttar og splunku nýjar gæðamyndir, brot af því besta sem framleitt hefur verið og sýnt í Frakklandi undanfarin misseri. Opnunarmyndin á hátíðinni er Persepolis og var hún frumsýnd boðsgestum í gærkvöldi. Efni þessarar frægu teiknimyndar er sótt í víðþekktar mynda- og sjálfsævisögur hinnar írönsku Marjane Satrapi, sem hafa náð metsölu um allan heim og unnið til fjölda verðlauna. Myndin er með enskum texta en myndasög- ur Satrapi hafa verið þýddar á fjölda tungumála og bregða nýju ljósi á heim þeirra þjóða sem byggja Íran. Meðal annarra athyglisverðra mynda má nefna nýjustu mynd Íslandsvinarins Emir Kusturica, Lofaðu mér, en hún var frumsýnd í nóvember á síðasta ári, Tvo daga í París, rómaða mynd eftir frönsku leikkonuna Julie Delpy sem vakið hefur mikla athygli og er sögð minna mjög á verk Woody Allen, og heimildarmynd eftir Barbet Schroeder um lögfræðinginn Jacques Vergès sem er þekktur fyrir að verja hryðjuverkamenn. Barbet Schroeder stýrir rannsókn til að upplýsa þann leyndardóminn. Í upphafi ferils þessa dularfulla lögfræðings var hann ákafur hug- sjónamaður, en svo hvarf hann af sjónarsviðinu og er hann sneri aftur tók hann að verja allar teg- undir af hryðjuverkamönnum (Magdalena Kopp, Anis Naccache, Carlos) og sögulegar ófreskjur í mannsmynd, eins og Klaus Barbie. Hátíðin stendur í tvær vikur og verða allar sýningar í Háskólabíói. Peugeot er aðalstyrktaraðili kvik- myndahátíðarinnar. Kynn ingar- efni um hana má finna á vefjum Alliance og Græna ljóssins: www. graenaljosid.is og www.af.is - pbb Nýjar franskar myndir Málvitund er sæmilegt orð. Þó skortir það holdlega keiminn sem er af orðunum máltilfinning eða málkennd, en þau láta verr í eyrum. Erum við ekki annars að tala um tilfinningu, einhvern seiðing sem flæðir um tunguna, eyrun, raddböndin, vöðva og taugar, og heilann auðvitað? Það er nefnilega ekki nóg að hugsa málið, við finnum það líka. Og það tengir ekki bara hugmyndir heldur okkur við heiminn. Þeir sem eru langdvölum erlendis fara stundum að sakna návistar við málið og óttast að tapa málkenndinni. Tungutak þeirra getur orðið dálítið ritmálskennt og þeir ofvanda kannski framburðinn. Svo snúa þeir heim og sjá slettur, ambögur, mál- og stafsetningarvillur alls staðar. Var þjóðin þá lengur í burtu en þeir? Það er engin sérstök ástæða til að róa þá. Samt má reyna að grisja þetta eitthvað. 1) Stafsetning hefur aldrei verið á hreinu hjá þjóðinni. Málinu hefur svo sem ekki hrakað þess vegna. 2) Beygingar og orðnotkun riðlast sjálfsagt eftir því sem fólk talar minna saman. Rangar beygingar hafa ekki náð yfirhendinni enn þá en nokkuð hefur gengið á orðaforðann. 3) Slettur þurfa ekki að vera til marks um hrörnandi mál, ekki ef þeir sem nota þær eru í lifandi sambandi við umræðuefnið: Þegar nær allt skemmtiefni ungs fólks – og því stór hluti reynslu þess – er á ensku væri það heldur til marks um dauflega málkennd að sletta ekki. Það gleymist gjarnan að sletta er stílbragð. 4) Þegar máltilfinningin slappast verður helst tvennt til ráða: Van- hugsað mál eða ofhugsað. 5) Vanhugsað mál forðast öll óvissusvæði og beygingar og nærist á tuggum. 6) Þeim sem ofhugsa málið svipar til manns sem fengið hefur höfuð- högg: Þegar hann raknar úr rotinu kann hann enn þá öll orðin í málinu en hefur gleymt hvernig þau eru notuð. Þá reynir hann að byggja málvitundina á rökum. Alls kyns vandræði hljótast auðvitað af þessu: Hann sér orðið sprund og heldur að það sé kvenkyns af því það á við konu, býr til kvenkynsorðið áræðni úr lýsingarorðinu áræðinn. Hann ofnotar beygingarendingar, segir kannski frá grauti. Hann þorir ekki að nota kjarnmikil orð eins og mannbær, tussulegur, klámhögg og sögnina að fokka því hann tengir þau einhverjum feimnismálum. Svo telur hann orðasambandið „helmingi meira“ þýða fimmtíu prósent meira. Ranglega. 7) Ég hef stundum lent í sporum hans og þá rifjast það upp að rökhugsun kemur ekki í stað tilfinningar, minnis eða sköpunargleði. Vaknið, ó, málskræfur og skynsemisrolur! 8) Þetta síðasta orð er víst smíðað af barni. Ofhugsað – vanhugsað MÁLNINGARTILRAUNIR Ívar kannar eiginleika lita og efna á sýningu sinni í gallerí i8. Birtingar- mynd lita SINNEP Atli Ingólfsson TEIKNIMYNDIN PERSEPOLIS Byggir á samnefndum myndasögum frá Íran. Þjóðleikhúsið Á öllum sviðum lífsins Afgreiðsla miðasölu á Hverfisgötu er opin frá kl. 12.30–18.00 mán. og þri. Aðra daga frá kl. 12.30–20.00. Símapantanir frá kl. 10.00 virka daga. Miðasala í síma 551 1200 og á www.leikhusid.is „Sviðsetning Baltasars Kormáks á Ívanov er eitt besta verk hans frá upphafi. Hún er þaulhugsuð og samvinna þeirra Gretars Reynissonar hefur sjaldan borið glæstari ávöxt, og er þá ekki lítið sagt." Jón Viðar Jónsson, DV. Ívanov e. Anton Tsjekhov. Aðlögun og leikstjórn: Baltasar Kormákur sýn. fös. 11/1 & lau. 12/1 örfá sæti laus Óhapp! e. Bjarna Jónsson Allra síðasta sýn. lau. 12/1 Gott kvöld e. Áslaugu Jónsdóttur Sprellfjörug barnasýning í Kúlunni sýn. sun. 13/1 kl. 13.30 & 15 Konan áður e. Roland Schimmelpfenning Háski og heitar tilfinningar sýn. lau. 12/1, sun 13/1 ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ „Þetta er „stundarfriður" okkar tíma og ég vona að sýningin fái engan frið fyrir æstum áhorfendum.” Silja Aðalsteinsdóttir, tmm.is 11. janúar 19. janúar 25. janúar LAU 12. JANÚAR KL. 17 TÍBRÁ: NÝÁRSTÓNLEIKAR HULDA BJÖRK OG SALONSVEIT SIS UPPSELT MÁN 14. JANÚAR KL. 20 UNGIR TÓNSNILLINGAR VÍKINGUR, ELFA, ARI. MARGRÉT, HELGA o.fl . Miðaverð 2500kr MIÐ 16. JANÚAR KL. 20 TÍBRÁ: STJÖRNUTÓNLEIKAR FRANSKI FIÐLUSNILLINGURINN LAURENT KORCIA OG C.HADLAND Miðaverð 2000/1600kr GEFÐU UPPLIFUN ! NÝ OG FALLEG GJAFAKORT OG MARGIR FRÁBÆRIR TÓNLEIKAR Í BOÐI !

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.