Fréttablaðið - 11.01.2008, Side 80

Fréttablaðið - 11.01.2008, Side 80
GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 BAKÞANKAR Bergsteins Sigurðssonar Í dag er föstudagurinn 11. janúar, 11. dagur ársins. 11.05 13.05 16.07 11.13 13.20 15.28 ÍSLENDINGAR hafa sem betur fer borið til þess gæfu að undan- farna áratugi hefur verið við völd, með fáum hléum, frjálslyndur flokkur með einstaklingsfrelsið að leiðarljósi sem hefur kappkostað að einstaklingurinn búi við frelsi til athafna. Sjálfstæðisstefnan er falleg og mannúðleg; hún gengur út á að hvert og eitt okkar eigi rétt á því að ákveða hvernig við högum lífi okkar, óháð þjóðfélagsstöðu og uppruna. Það gefur vissulega stundum á bátinn, taka þarf óvin- sælar ákvarðanir og grípa til erfiðra aðgerða. En fari einhver að efast í trúnni er rétt að minna á hvernig ástandið var þegar hinir voru við völd. Söknum við þess virkilega? ÞEGAR sjálfstæðisstefnuna ber á góma verður mér stundum hugsað til gríssins Badda úr samnefndri kvikmynd. Baddi er ekki eins og aðrir grísir því hann kann að gæta fjár. Bóndinn er auðvitað uppnum- inn af hæfileikum Badda og skráir hann í keppni fyrir fjárhunda en þrátt fyrir ítarlegan rökstuðning bóndans um að hann sé framúr- skarandi fjárgrís trúir enginn að Baddi hafi roð við hundunum. Litli grísinn fær hins vegar að sýna hvað í honum býr, og þótt enginn búist við neinu af honum sigrar hann á mótinu af því að hann fékk tækifæri til þess. UPP á síðkastið hefur mér líka verið hugsað til gríss úr öðru hug- ljúfu ævintýri. Sá heitir Napóleon og má finna í Dýrabæ eftir George Orwell. Húsdýr á bóndabýli frelsa sig undan oki mannanna og undir forystu Napóleons fer í hönd nýr tími byggður á traustum grunni. EN rétt eins og í samfélagi mann- anna þurfa svínin að færa fórnir og stundum taka óvinsælar ákvarð- anir, auðvitað með hagsmuni heildar innar að leiðarljósi. Þá fyll- ast hin dýrin stundum vanþakk- læti og gleyma hvað hefur unnist svo það þarf að lesa föðurlega yfir hausamótunum á þeim: „Við svínin vinnum með heilanum. Öll skipu- lagning og rekstur búskaparins hvílir á herðum okkar. Dag og nótt vökum við yfir velferð ykkar. Það er ykkar vegna að við drekkum mjólkina og étum eplin. Vitið þið hvað verða mundi ef við svínin brygðumst skyldu okkar? Jón bóndi mundi koma aftur!“ DÝRABÆR er sígild bók því inn- tak hennar má heimfæra upp á hvaða þjóðfélag sem er. Vald spillir. Orwell er stundum sagður óhugnan- lega framsýnn höfundur. Honum datt þó ekki í hug sú frábæra flétta að svínin fengju dýralækni til að vinna fyrir sig skítverkin. Til þess þurfti íslenskt hugvit. Dýraspítalinn Veitingahúsið Kínamúrinn Loksins, loksins. Alvöru íbúðagisting á Costa del Sol. WWW.SUMARFERDIR.IS Sími 514 1400 Byrjaðu daginn á að vakna í glæsilegri loftkældri íbúð og fá þér espresso í eldhúsinu. Svo taka við ákvarðanir dagsins: Ætti ég að taka mér góðan göngutúr út að snekkjubátahöfninn eða fá mér morgunmat niðri á strönd? Suma daga kemst maður ekki lengra en út í sundlaugagarð, enda er hann einn og sér nógu svalandi og afslappandi fyrir hvern sem er. Þó er engin skylda að liggja í leti. Heilsuræktin er gríðarstór og maður getur haldið sér í formi allt fríið og slakað svo á inn á milli. Krakkarnir geta dundað sér á leiksvæðinu eða sundlauginni og horft á DVD á kvöldin þegar fullorðna fólkið þarf að fá smá hvíld eftir að hafa teymt þau um miðbæinn yfir heitasta part dagsins. Á Arcosur geturðu búið eins og þú sért heima hjá þér en í framandi og spennandi umhverfi. --- Þorvaldur, Reykjavík: --- „OFSALEGA ÞÆGILEGT AÐ GETA SLAKAÐ Á EINS OG HEIMA HJÁ SÉR. OFSALEGA STUTT Í STRÖNDINA. OFSALEGA LJÚFT LÍF.“ --- H. Waddle, Bretland (Hotelwatchdog): --- „STARFSFÓLKIÐ VAR MJÖG HJÁLPLEGT. BELEN Í MÓTTÖKUNNI VAR SÉRSTAKLEGA ALMENNILEG.“ --- Starfsfólk Sumarferða: --- „FULLKOMIÐ FYRIR ALLA SEM VILJA NJÓTA HITANS EN BÚA JAFN VEL OG HEIMA Á ÍSLANDI.“ arcosur principe spa, costa del sol Ódýrustu sætin bókast fyrst GLÆSILEG GISTING ER ÞAÐ SEM SUMARFERÐIR LEGGJA ÁHERSLU Á OG ÖLL HÓTEL OKKAR ERU VALIN AF SÉRFRÆÐINGUM. ÞANNIG GETUR ÖLL FJÖLSKYLDAN KANNAÐ FRAMANDI SLÓÐIR, NOTIÐ SÍN TIL FULLS OG HVÍLT SIG SVO INN Á MILLI EINS OG HEIMA HJÁ SÉR. Innifalið: Flug, gisting, morgunverður, fl ugvallarskattar og íslensk fararstjórn. Verðdæmi 52.381.- Arcosur Principe Spa Glænýjar 4ra stjörnu íbúðir á mann m.v. 2 með 2 börn í 2 vikur Verð á mann m.v. 2 fullorðna 68.763.- COSTA DEL SOL ER KÖLLUÐ PARADÍSIN VIÐ MIÐJARÐARHAFIÐ OG HEFUR ALLT AÐ BJÓÐA FYRIR ÞÁ SEM VILJA NJÓTA LÍFSINS; GRÍÐARLEGT ÚRVAL AF FRÁBÆRUM VEITINGASTÖÐUM, HVÍTAR STRENDUR, FJALLAÞORP, VEÐURSÆLD, MENNINGU OG SÖGU.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.