Fréttablaðið - 14.02.2008, Blaðsíða 16
14. febrúar 2008 FIMMTUDAGUR
OFBELDI Enginn dómur hefur fallið
í mansalsmáli í kynlífsiðnaði hér á
landi, engar skaðabætur hafa
verið greiddar og ekki er nein virk
leit að fórnarlömbum í gangi.
Aðeins ein kona hefur fengið hæli
hér á landi vegna þess að hún var
talin vera fórnarlamb mansals.
„Mansal er ekki í dagsljósinu og
enginn hefur yfirsýn yfir það,
hvorki hér né annars staðar í Evr-
ópu,“ segir Guðrún Jónsdóttir,
talskona Stígamóta.
Fulltrúar fjórtán stofnana, ráðu-
neyta og félagasamtaka mynda
starfshóp, sem er hluti af sam-
starfsverkefni Norðurlandanna
og Eystrasaltsríkjanna, og hafa
hist í tvö ár undir forystu Guðrún-
ar. Innan hópsins hefur myndast
þverfaglegt teymi sem hefur
mótað með sér óformlegar vinnu-
reglur um hvernig bregðast skuli
við ef mansal kemur upp.
„Við höfum gert vísi að vinnu-
reglum fyrir okkur sjálf,“ segir
Guðrún. „Við getum kallað hvert
í annað ef við hittum fórnarlamb
mansals og þurfum einhvers
konar hjálp. Þetta er ein leið til
að tryggja samræmd vinnu-
brögð.“
Norðmenn hafa eytt 1.120 millj-
ónum íslenskra króna í mansals-
verkefni og Danir hafa ákveðið að
eyða 800 milljónum íslenskra
króna í mansalsverkefni næstu
árin en Íslendingar hafa ekki sett
krónu í slík verkefni enn sem
komið er. Guðrún segir að félags-
málaráðherra hafi þó sett á fót
starfshóp til að vinna aðgerða-
áætlun gegn mansali. Það er til
viðbótar mansalsrannsókn sem
Rauði krossinn hyggur á.
„Við gerum ráð fyrir að þessari
áætlun fylgi peningar. Ég er full
bjartsýni vegna þess að Jóhanna
Sigurðardóttir hefur tekið að sér
þennan málaflokk og lýst yfir að
hún vilji takast á við þau verkefni
sem taka þarf á,“ segir Guðrún.
Mismunandi er hvernig mansal
er skilgreint en almennt má segja
að mansal tengist vændi eða kyn-
ferðislegri misnotkun. Guðrún
segir að súlustaðirnir beri merki
mansals og nefnir sem dæmi
ummæli eins eigendanna að hann
hefti frelsi kvennanna á staðnum í
átta tíma eftir að vakt lýkur.
„Það er ekki nægilegt að segja
að kona hafi komið af fúsum og
frjálsum vilja til landsins. Það er
líka mansal ef milligöngumaður-
inn nýtir sér bágar aðstæður henn-
ar. Einnig þótt konurnar séu ekki
fluttar á milli landa. Þess vegna
getum við skilgreint íslenskar
konur í vændi sem fórnarlömb
mansals.“ ghs@frettabladid.is
Ein kona fengið
hæli vegna mansals
Enginn dómur hefur fallið í mansalsmáli hér á landi og engin virk leit að fórn-
arlömbum er í gangi. Aðeins ein kona hefur fengið hæli. Nágrannaþjóðirnar
hafa eytt miklu í mansal en Íslendingar hafa ekki sett krónu í þessi mál.
EKKI Í DAGSLJÓSINU Mansal er ekki í dagsljósinu og enginn hefur yfirsýn yfir það, hvorki hér né annars staðar í Evrópu. Nágranna-
þjóðirnar hafa sett háar fjárhæðir í málaflokkinn en Íslendingar eru rétt að byrja að móta áætlanir og vinnureglur.
STJÓRNMÁL „Landsbyggðin er ekki
öll hrædd við að landið verði eitt
300 þúsund manna kjördæmi. Ég
hef trú á því að það yrði það besta
sem gæti komið fyrir byggð í land-
inu,“ segir Grímur Atlason,
bæjarstjóri í Bolungarvík. Athygli
vekur að bæjarstjóri í litlu bæjar-
félagi á Vestfjörðum tali um Ísland
sem eitt kjördæmi.
Grímur segir frændhygli og
kjördæmapot ráða öllu. Sem dæmi
nefnir hann skipan í stjórnir og
ráð. „Það sem gerist er alltaf sama
ruglið. Það fer eftir því hvaða ráð-
herra er við völd og hvar hann á
heima hver tekur við starfinu.
Þannig er hending hvort hæfasti
umsækjandinn er ráðinn eða hvort
besti kosturinn er valinn í ráð eða
nefndir á vegum hins opinbera
þegar ráðherra á í hlut,“ segir
Grímur sem telur einnig allar
útdeilingar fjármuna byggja á
þeim tengslum sem menn hafa.
„Ef þú lítur á landið sem heild
ferðu að sjá hvað skiptir máli, til
dæmis í mótvægisaðgerðum,“
segir Grímur aðspurður um hvort
það að gera landið að einu kjör-
dæmi breyti stöðunni. Telur hann
mótvægisaðgerðir eigi að miðast
að þeim svæðum sem þær þurfa.
„Þú ert með þingmenn og ráðherra
sem geta ekki sagt nei við sín
héröð því þá falla þeir af stallin-
um. Það byggir ekki á langtíma-
sýn eða byggðastefnu heldur
hentistefnu.“ - ovd
Segir ákvarðanir ráðherra ekki byggja á byggðastefnu heldur hentistefnu:
Vill landið sem eitt kjördæmi
GRÍMUR ATLASON Bæjarstjóri Bolungar-
víkur telur að frændhygli og kjördæma-
pot ráði öllu. MYND/HALLDÓR SVEINBJÖRNSSON
AÐGERÐAÁÆTLUN GEGN MANSALI
Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráð-
herra hefur sett á fót starfshóp til að
vinna aðgerðaáætlun gegn mansali.
VÍSIR AÐ VINNUREGLUM „Við höfum
gert vísi að vinnureglum fyrir okkur
sjálf,“ segir Guðrún Jónsdóttir, talskona
Stígamóta.