Fréttablaðið - 14.02.2008, Blaðsíða 80
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
BAKÞANKAR
Ólafs Sindra
Ólafssonar
Það er táknrænn dagur í dag. Valentínusardagur er notaður
til að minna hluta af þjóðinni á að
hún eigi maka og hinn hlutann á að
hún eigi engan. Elsta ritaða heim-
ildin um Valentínusardag er eftir
sjálfan Chaucer. Hann skrifaði
hjartnæmt ástarljóð vorið 1382
nær yfirkominn af hamingju
vegna ásta Ríkarðs II og konu
hans Önnu af Bæheimi. Þau voru
fjórtán ára.
SAMBAND Ríkarðs og Önnu er
stundum haft til marks um hina
hreinu, sönnu ást. Þrátt fyrir að
Anna væri af óskaplega fínu fólki
var hún bláfátæk – í raun svo
fátæk að fjölskyldan hafði ekki
einu sinni efni á að greiða með
henni. Að auki var hún ekkert sér-
staklega lagleg. Hjónabandið var
farsælt að öllu leyti nema því að
þau eignuðust engin börn. Anna
var skapgóð en Ríkarður bráðlátur;
Anna var miskunnsöm, Ríkarður
hefnigjarn. Ást þeirra styrktist
með árunum og tók á sig göfugri
mynd með auknum þroska. Fram-
tíðin brosti sérlega björt við þeim
þegar Anna varð drepsótt að bráð
– þá 27 ára.
RÍKARÐUR var óhuggandi. Í
heilt ár neitaði hann að koma inn í
nokkurt það herbergi sem Anna
hefði svo mikið sem heimsótt.
Hann lagði í rúst heilt óðalssetur
sem geymdi of margar sárar
minningar og byggði í staðinn
grafhýsi fyrir sjálfan sig. Og hann
fékk sér nýja eiginkonu. Sú var
frönsk. Hún hét Ísabella. Hún var
sex ára.
HIN nýja eiginkona reyndist kjör-
in. Þar sem hún var ekki nema rétt
hálfnuð á vegferð sinni til blæð-
inga var ekki ætlast sérstaklega
til mikils líkamlegs samneytis
fyrst um sinn. Ríkarður fékk því
nokkur ár til að syrgja fyrri konu
sína áður en hann tók til við þá
seinni. Hann dekraði Ísabellu litlu
og heimsótti hana oft. Smám
saman varð hin unga drottning
yfir sig ástfangin af hinum nær
þrítuga kóngi.
EKKI varð Ísabellu og Ríkarði
heldur barna auðið. Ástæðan var
ekki síst sú að Ríkarður dó. Hin
ellefu ára gamla ekkja ól sorg sína
í örfá ár, allt þar til hún var gefin
landa sínum, hertoganum af
Orléans. Sá var handtekinn árið
1415 og haldið föngnum í Lundún-
um, hvaðan hann sendi fyrsta Val-
entínusarkort skráðrar sögu yfir
sundið til sinnar heittelskuðu.
Kortið var hins vegar ekki til Ísa-
bellu – hún hafði látist af barns-
förum 6 árum áður – heldur til
Bonne af Armagnac. Sem hrökk
upp af áður en hertoganum var
sleppt úr prísundinni.
Svona er ástin
Í dag er fimmtudagurinn
14. febrúar, 45. dagur ársins.
9.28 13.42 17.56
9.22 13.27 17.33
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Garðskagaviti
Drangajökull
Grímsey
Hofsjökull
Húnaflói
Blöndulón
Gríptu augnablikið og lifðu núna
Nýtt langdrægt GSM kerfi
Að lokinni uppsetningu nýrra senda víða um land býður
Vodafone upp á stærsta GSM þjónustusvæðið á Íslandi.
Þetta er bylting fyrir fólk á landsbyggðinni, sjómenn og
ferðamenn á fjölmörgum stöðum þar sem ekki hefur verið
GSM samband til þessa.
Meðan við höldum uppbyggingunni áfram skiptir þú yfir til
Vodafone, án þess að skipta um símanúmer, með einu
símtali í 1414 – strax í dag.
Stærsta GSM
þjónustusvæðið