Fréttablaðið - 14.02.2008, Blaðsíða 29

Fréttablaðið - 14.02.2008, Blaðsíða 29
HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA GRÆJUR ATVINNA TILBOÐ VINNUVÉLAR O.FL. Kolfinna Nikulásdóttir, slagverksleikari og bak- raddasöngkona í hljómsveitinni Retro Stefson, hafði lengi augastað á kápu sem kærastinn keypti svo handa henni í laumi. „Ég sá kápuna í Trilogiu á Laugaveginum og langaði mikið í hana. Hún var þó ekki á mjög viðráðanlegu verði. Ég var samt alltaf að fara inn í búðina að skoða hana og máta og voru afgreiðslukonurnar farnar að kannast við mig. Ég held að þær hafi jafnvel langað til að ég eignaðist kápuna því hún var svo fín á mér,“ lýsir Kolfinna. Eitthvert kvöldið fór hún síðan með kærastanum sínum út að borða og þá dró hann kápuna upp úr poka. „Ég varð ekkert smá ánægð enda hafði ég farið í búð- ina daginn áður til að spyrja um kápuna og fékk þá að vita að hún væri farin.“ Kolfinna segir afgreiðslu- konuna hafa sagt að einhver ljóshærð stelpa hefði keypt kápuna til að villa enn frekar um fyrir henni. Kolfinna fer annars ekki troðnar slóðir í fatavali, þrátt fyrir ungan aldur, og kaupir lítið af fjöldafram- leiddum fötum. „Mér finnst skemmtilegt að kaupa hönnun sem ég veit að eitthvað er á bakvið. Það er líka gaman að styrkja hönnuði sem eru að reyna að lifa af ástríðu sinni,“ segir Kolfinna. Hún segir það þó kosta sitt og keypti hún til dæmis tvo rándýra kjóla um daginn. „Ég er mikil kjólastelpa en er eigin- lega komin í smá pásu núna. Ég er líka með algera skódellu en verð líklega að bíða dálítið með að kaupa mér næsta par.“ Kolfinna segir nóg að gera í tónlistinni og er ánægð með þær góðu viðtökur sem hljómsveit hennar hefur fengið. Við erum að spila mjög víða og það var til dæmis frábært að vera með á Iceland Airwaves. Kolfinna er nemandi í MH og tekur virkan þátt í leikfélaginu. „Núna erum við að æfa mjög skemmti- legt spunaverk sem heitir E1ntak og verður það frumsýnt í Undirheimum í MH fyrsta mars. vera@frettabladid.is Kápan keypt á laun Kolfinna Nikulásdóttir var búin að máta kápuna svo oft í búðinni að afgreiðslukonurnar voru farnar að kannast við hana. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM SKARTFATNAÐUR FYRIR STERKAR KONUR Hildur Inga Björnsdóttir hannar skartfatnað sem setur punktinn yfir i-ið. TÍSKA 2 RAFMAGNAÐ HEILSU- TJÓN Garðar Bergendal á tæki sem bætir lífsgæði þeirra sem þjást af völdum neikvæðra rafbylgna. HEILSA 4 Erum í Dugguvogi 2. Sími 557-9510 Húsgagna Lagersala Opnunartími Mán - Föstudagar 09 - 18 Laugardaga 11 - 16 Verðdæmi: Leðursófasett áður 239,000 kr Nú 119,900 kr Hornsófar tau áður 198,000 kr Nú 103,000 kr Tungusófar verð frá 85,900 kr ALLTAF BESTA VERÐIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.