Fréttablaðið - 14.02.2008, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 512 500014. febrúar 2008 — 44. tölublað — 8. árgangur
BRÚÐKAUP
Brúðarkjólar eru háðir
bæði hefðum og tísku
Sérblað um brúðkaup
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG
Brúðarkjólar háðir hefðum og tísku
Valið á brúðarkjól getur verið erfitt enda þarf
kjóllinn bæði að vera fallegur og þægilegur BLS. 8
brúðkaupFIMMTUDAGUR 14. FEBRÚAR 2008
einstakt
eitthvað alveg
Skipholt 50A • sími: 581 4020www.gallerilist.is
FIMMTUDAGUR
KOLFINNA NIKULÁSDÓTTIR
Fékk laumulega gjöf
frá kærastanum
tíska heilsa heimili
Í MIÐJU BLAÐSINS
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
I
C
E
4
09
96
0
2/
08
+ Nánari upplýsingar
www.icelandair.is
* Innifalið í verði: Flug aðra leið
og flugvallarskattar.
TILB
OÐ
Verð
frá 1
2.89
0 kr
.*
VelduektaMyllu
Heimilsbrauð
- brauðið semallir
á heimilinu velja
HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA GRÆJUR ATVINNA TILBOÐ VINNUVÉLAR O.FL.
Kolfinna Nikulásdóttir, slagverksleikari og bak-
raddasöngkona í hljómsveitinni Retro Stefson,
hafði lengi augastað á kápu sem kærastinn
keypti svo handa henni í laumi.
„Ég sá kápuna í Trilogiu á Laugaveginum og langaði
mikið í hana. Hún var þó ekki á mjög viðráðanlegu
verði. Ég var samt alltaf að fara inn í búðina að skoða
hana og máta og voru afgreiðslukonurnar farnar að
kannast við mig. Ég held að þær hafi jafnvel lan ð
til að ég eignaðist kápuna þ í hlýsi K
Kolfinna fer annars ekki troðnar slóðir í fatavali,
þrátt fyrir ungan aldur, og kaupir lítið af fjöldafram-
leiddum fötum. „Mér finnst skemmtilegt að kaupa
hönnun sem ég veit að eitthvað er á bakvið. Það er
líka gaman að styrkja hönnuði sem eru að reyna að
lifa af ástríðu sinni,“ segir Kolfinna. Hún segir það
þó kosta sitt og keypti hún til dæmis tvo rándýra
kjóla um daginn. „Ég er mikil kjólastelpa en er eigin-
lega komin í smá pásu núna Ég er lík
skódellu en ve ð lík
Kápan keypt á laun
Kolfinna Nikulásdóttir var búin að máta kápuna svo oft í búðinni að afgreiðslukonurnar voru farnar að kannast við hana.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
SKARTFATNAÐUR FYRIR STERKAR KONURHildur Inga Björnsdóttir hannar skartfatnað sem setur punktinn yfir i-ið.
TÍSKA 2
RAFMAGNAÐ HEILSU-TJÓN
Garðar Bergendal á tæki sem bætir lífsgæði þeirra sem þjást af völdum neikvæðra rafbylgna.
HEILSA 4
Erum í Dugguvogi 2. Sími 557-9510
Húsgagna
Lagersala
Verðdæmi:Leðursófasett áður 239,000 kr
Nú 119,900 kr
Hornsófar tau áður 198,000 krNú 103,000 kr
Tungusófarverð frá 85,900 kr
ALLTAF BESTA VERÐIÐ
Allt um heilsu á einum
stað
Heilsuvefurinn doktor.
is er tíu ára á þessu
ári. Frá upphafi hafa
hjúkrunarfræðingar
ritstýrt vefnum.
TÍMAMÓT 34
HLÝINDI Í dag verður suðaustan-
strekkingur á vesturhluta landsins,
annars hægari. Rigning vestan til
þegar líður á daginn, stöku dropar
sunnan til en þurrt og bjart með
köflum norðan til og austan. Milt.
VEÐUR 4
8
7
5
8
8
Ferlinum lokið?
Handboltamaðurinn
Jón Heiðar Gunnars-
son leikur kannski
ekki aftur hand-
knattleik eftir að
hafa fengið mar
á heilann í leik
gegn ÍBV.
ÍÞRÓTTIR 48
VEÐRIÐ Í DAG
FANGELSISMÁL „Nú orðið eru hér mjög margir
strákar sem hafa farið illa út úr dópinu. Þeir
þurfa á meiri aðhlynningu og leiðbeiningum
að halda en þeir sem áður voru hér,“ segir
Rúnar Eiríksson, varðstjóri á Litla-Hrauni,
sem staðið hefur vaktina frá því 1981, lengst
allra fangavarða í fangelsinu.
Meðferðargangurinn var tekinn í notkun
12. nóvember en á honum eru ellefu fangar
sem freista þess að halda sér edrú innan
veggja fangelsis. „Við höfum allar götur frá
því árið 2000 sótt um fjármagn til þess að
koma upp svona starfi en aldrei fengið. Við
töldum ekki vera hægt að bíða lengur með
þetta og komum starfseminni á koppinn með
þeim úrræðum sem voru við höndina,“ segir
Þórarinn V. Hjaltason sálfræðingur hjá
Fangelsismálastofnun. Ekkert fjármagn
hefur fengist til þess að halda meðferðar-
ganginum úti en starfsfólk fangelsisins
ákvað að bæta ganginum á verkefnalistann
til þess að mæta brýnni þörf. „Í raun er þetta
hrein viðbót við þau störf sem við vinnum
hér fyrir,“ segir Einar Loftur Högnason. „En
afskaplega gefandi og skemmtileg viðbót,“
segir Svala Þrastardóttir kollegi Einars.
Páll Winkel, forstjóri Fangelsismálastofn-
unar, segir hugmyndina um fyrirmyndar-
fangelsi byggja á því að föngum sé gefinn
kostur á að ná tökum á vandamálum sínum
og varnaðaráhrif refsinga nái fram að ganga.
„Ég held að það hljóti allir að gera sér
grein fyrir því að á fáum stöðum er jafn
mikil þörf fyrir afeitrunarstöð og sérhæfða
meðferð og einmitt hér á Litla-Hrauni,“ segir
Þórarinn.
Blaðamenn Fréttablaðsins heimsóttu
fangelsið og ræddu við fanga, starfsfólk og
stjórnendur um þau vandamál sem steðja að
fangelsinu vegna fíkniefnaneyslu fanganna
og vonir um lausn á þeim.
- kdk/mh / sjá síður 18 og 20
Fangaverðir bæta við sig
vinnu til hjálpar fíklum
Rúmlega sjötíu prósent fanga á Litla-Hrauni mældust með fíkniefni í blóði í úttekt Fangelsismálastofnunar
seint á síðasta ári. Meðferðargangi var í kjölfarið komið á. Starfinu er haldið úti með umframvinnu.
HANDBOLTI Samkvæmt áreiðanleg-
um heimildum Fréttablaðsins
mun HSÍ nú ræða við Aron
Kristjánsson um að taka við starfi
landsliðsþjálfara karla en Dagur
Sigurðsson gaf starfið frekar
óvænt frá sér í gær. Forsvars-
menn HSÍ munu setjast niður með
Aroni á næstu dögum. Aron sagði
við Fréttablaðið í gær að hann
hefði mikinn áhuga á að heyra
hvað þeir hefðu fram að færa og
væri til í að fá sér kaffibolla með
þeim. - hbg / sjá síðu 48
Dagur hafnaði HSÍ:
Aron er næstur
í röðinni
ARON KRISTJÁNSSON Efstur á lista HSÍ
yfir arftaka Alfreðs Gíslasonar eftir að
Dagur sagði nei. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
VIÐSKIPTI „Við kunnum ekki við
það að lönd reyni að taka evruna
upp bakdyramegin,“ segir Jürgen
Stark, stjórnarmaður í Evrópska
seðlabankanum.
Hann fjallaði um hugsanlega
einhliða upptöku Íslendinga á evru
á Viðskiptaþingi Viðskiptaráðs í
gær.
„Það er íslenskra stjórnvalda að
ákveða þetta og taka um leið
ábyrgð á afleiðingunum og þeirri
áhættu sem fólgin er í einhliða
upptöku. Seðlabanki Evrópu er á
móti einhliða upptöku evru og
mun ekki styðja við slíkt. Þá hefur
þessi afstaða líka verið staðfest í
sjálfu Evrópusambandinu.“
Percy Westerlund, sendiherra
Evrópusambandsins gagnvart
Íslandi, segir afstöðu sambands-
ins til einhliða upptöku evru hér á
landi skýra. „Ég tel að það geti
leitt til árekstra. Ísland og Evr-
ópusambandið eru náin. Þið eruð
hluti af Evrópska efnahagssvæð-
inu. Þið eruð í Schengen-samstarf-
inu. Þið eruð í hópi okkar nánustu
bandamanna. Ákveði náinn banda-
maður að stíga einhliða skref, sem
gengur algjörlega gegn grund-
vallar reglum hins, þá verður því
ekki vel tekið.“ - ikh / sjá síðu 6
Einhliða upptaka Íslendinga á evru myndi leiða til árekstra við Evrópusambandið:
Komast ekki inn bakdyramegin
JÜRGEN STARK Evrópski seðlabankinn
styður ekki einhliða upptöku evru hér
á landi.
Hætt við að
hætta
Jóhanna
Vilhjálmsdóttir
er ennþá
starfsmaður
Kastljóssins.
FÓLK 54
Plata Poetrix tilbúin
Sjálfvalinn besti textahöfundur
íslenskrar tónlistarsögu kveðst ekki
kunna neitt í tónlist.
FÓLK 46
SEÐLABANKASTJÓRI TEKUR Í SPIL Davíð Oddsson seðlabankastjóri var meðal keppenda við opnun Bridgehátíðar 2008. Spurður
hvort keppt væri um Bermúdaskál sagði hann: „Nei, en fyrst minnst er á það þá held ég að Íslendingar hafi ekki þorað að vinna
heimsmeistaratitilinn aftur því þeir hafi óttast að ég kæmi að taka á móti þeim eins og forðum.“ FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI