Fréttablaðið - 14.02.2008, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 14.02.2008, Blaðsíða 6
6 14. febrúar 2008 FIMMTUDAGUR Lítil bleik gjöf fyrir stóru ástina Fí to n / S ÍA Við kynnum nýjan lit, bleikan iPod nano – tilvalinn fyrir ástina á Valentínusardaginn eða konudaginn. Þú getur fengið hann með sérstakri áletrun til elskunnar þinnar án aukakostnaðar. iPod nano fæst annað hvort 4 eða 8 GB og rúmar allt að 2.000 sönglög eða u.þ.b. 4–8 klst. af myndbandsefni. Ljósmyndin hér að ofan sýnir spilarann í raunstærð og með honum getur þú ekki aðeins hlustað á tónlist, heldur einnig horft á myndbönd. iPod nano bleikur, 8 GB – tilboð með séráletrun 24.990 kr. iPod nano Innifalið í tilboði: Sérmerktur elskunni þinni! Febrúar Ko nudagurinn Febrúar Valentín usardag urinn Apple IMC Apple IMC | Humac ehf. Sími 534 3400 www.apple.is Laugavegi 182 105 Reykjavík Kringlunni 103 Reykjavík Tilboðið gildir til 24. febrúar. iPod nano Raunstærð: 52 x 70 x 6,5 mm Aðeins 49 g VIÐSKIPTI Viðskiptaráð kallar eftir skýrri sýn og aðgerðum af hálfu stjórnvalda varðandi framtíðar- skipan gjaldeyrismála hér á landi og aðgerðum til að styrkja efna- hagslegan stöðugleika. „Ýmislegt virðist benda til þess að hag Íslendinga verði betur borgið til framtíðar með upptöku evru,“ segir Erlendur Hjaltason, formaður Viðskiptaráðs, en hann flutti opnun- arræðu Viðskiptaþings í gær. Yfir- skrift þingsins var: „Íslenska krónan: Byrði eða blóraböggull?“ Erlendur bendir á að fyrir- komulag peningamála sé heitt umræðu efni í þjóðfélaginu og segir niðurstöðu skoðanakönnunar Við skipta ráðs meðal aðildarfélaga sýna að fyrirtæki hér geti illa unað við óbreytt ástand. „Forsvarsmenn tveggja af hverj- um þremur fyrirtækjum telja fjár- málastjórn hins opinbera hafa dreg- ið úr efnahagslegu jafnvægi og jafn margir eru fylgjandi því að Íslend- ingar taki upp annan lögeyri en íslensku krónuna.“ Um leið eru samt töluvert fleiri félagar við- skiptaráðs andvígir umsókn um aðild að Evrópusambandinu. Erlendur segir þó engan vafa leika á hagrænum yfirburðum þess að taka þátt í Myntbandalagi Evrópu í samanburði við einhliða upptöku evru. „Þess vegna er þeim mun brýnna að huga vel að efnahagsleg- um áhrifum aðildar að Evrópusam- bandinu, fyrir almenning, fyrir- tæki, atvinnugreinar og Ísland í heild.“ Formaður Viðskiptaráðs sagði í ræðu sinni að svo virðist sem stefnumótun stjórnvalda skorti varðandi framtíðarskipan gjaldeyr- ismála, eða hún sé ekki í takt við þarfir atvinnulífs og almennings. „Stjórnvöld hafa litið framhjá þeim vandamálum sem óhjákvæmilega tengjast sjálfstæðri peningastefnu. Þetta er óheppilegt, því þetta gerir þau áhrifalaus um þróun mála.“ Erlendur segir að frá upptöku verð- bólgumarkmiðs 2001 megi að mestu rekja ójafnvægi í efnahagsmálum til ákvarðana og umsvifa hins opin- bera, en krónan hafi verið gerð að blóraböggli fyrir hnökra í hag- stjórn. „Það er því ljóst að aukinn efnahagslegur stöðugleiki er grund- vallarforsenda þess að íslenska krónan eigi sér von um framtíð.“ Viðskiptaráð gagnrýnir stjórn- völd enn frekar og bendir á að á meðan Seðlabankinn hækki vexti til að slá á verðbólgu haldi hið opin- bera húsnæðisvöxtum lágum með niðurgreiðslu húsnæðislána gegn- um Íbúðalánasjóð. „Þetta jafngildir því að stíga á bremsu og bensín á sama tíma,“ segir hann. olikr@frettabladid.is Vilja evru en ekki ESB Forsvarsmenn tveggja fyrirtækja af þremur vilja losna við krónuna. Um leið eru fleiri á móti Evrópusambandsaðild en fylgjandi. Á Viðskiptaþingi 2008 voru stjórnvöld gagnrýnd fyrir stefnuleysi í gjaldeyrismálum og lausatök í hagstjórn. VIÐSKIPTI „Ég tel mjög ósennilegt að það sé grundvöllur fyrir slíku og ég tel ekki að það sé raunhæf leið,“ segir Geir H. Haarde, for- sætisráðherra, um að stjórnvöld semji við Evrópska seðlabankann um stuðning eða bakland vegna skuldbindinga íslenskra fyrir- tækja í evrum. Hins vegar er undirbúningur hafinn á vettvangi ríkisstjórnar- innar til að draga úr neikvæðum afleiðingum hugsanlegrar láns- fjárkreppu á alþjóðamörkuðum. „Eðlilegt er að vinna að slíku í góðu samstarfi við aðila á mark- aðnum,“ segir Geir Hilmar Haarde forsætisráðherra, sem upplýsti á Viðskiptaþingi í gær að í þessu skyni hafi forsvarsmenn fjármálafyrirtækja verið boðaðir á fund ríkisstjórnarinnar í dag. Forsætisráðherra kvað könnun á afstöðu félaga Viðskiptaráðsins til gjaldmiðilsmála athyglisverða. „Hins vegar ber umræðan að undanförnu um bága stöðu krónunnar að mínum dómi nokk- urn keim af þeim tilteknu aðstæð- um sem nú er við að fást á fjár- málamörkuðum og í alþjóðlegum efnahagsmálum,“ segir hann og áréttar að í raun séu kostirnir bara tveir, að halda krónunni og treysta efnahagslegan stöðug- leika, eða ganga í Evrópusam- bandið og taka í framhaldinu upp evru. „Það er einfaldlega ekki kostur að taka einhliða upp evru. Slíkt er ekki trúverðugt,“ segir hann. - óká / ikh FORSÆTISRÁÐHERRA Geir H. Haarde forsætisráðherra segir Evrópusambands- aðild ekki á dagskrá ríkisstjórnarinnar og þar með ekki evru heldur. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Evran er ekki á dagskrá frekar en Evrópusambandsaðild segir forsætisráðherra: Fundar með bankastjórum í dag HÆGFARA EVRUVÆÐINGU FYLGJA VANDAMÁL „Áframhaldandi hægfara evruvæðingu fjármálalífsins fylgja mikil vandamál,“ segir Richard Portes, sérfræðingur í alþjóðafjármálum sem flutti erindi á Viðskiptaþingi í gær. Hann segir að stjórnvöld verði sem fyrst að gera upp við sig hvort þau vilji halda krónunni eða taka upp evru. Hann segir landið ekki of lítið fyrir sjálfstæða mynt, en hún gæti verið stærstu fyrirtækjum landsins fjötur um fót. Hann segir einhliða upptöku evru mögulega þótt henni fylgdu ókostir, auk þess sem landið nyti ekki ávinn- ings af samstarfi við Evrópusambandið eða Myntbandalag Evrópu. Sú leið kunni þó að vera betri en að fyrirtæki landsins færi sig smám saman yfir í evruna, en slíkri þróun fylgdi óstöðugleiki. Hægfara evruvæðing segir hann hins vegar tæpast munu ganga til baka jafnvel þótt hér yrðu umbætur í hagstjórn og stjórn peningamála. „Torséð er hvernig dregið verður úr áhrifamætti evrunnar, nema þá með því að ýta úr landi bönkunum og öðrum stórum fyrirtækjum,“ segir hann og telur að hér ætti alvarlega að hugleiða einhliða upptöku evrunnar. „Kannski ættuð þið að slá til. Ég held samt að betri lausn væri að ganga í Evrópusambandið.“ RICHARD PORTES Á VIÐSKIPTAÞINGI 2008 Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra afhenti námsstyrki Viðskiptaráðs á Viðskiptaþingi í gær. Geir Haarde forsætisráðherra upplýsti um aðgerðir til stuðnings fjármálafyrirtækjum og Erlendur Hjaltason, formaður Viðskiptaráðs, gagnrýndi stjórnvöld fyrir að vera samtímis á bremsu og bensíngjöf. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA TOLLAR Gildandi fyrirkomulag um útboð tollkvóta er ekki til þess fall- ið að lækka almennt vöruverð í landinu, að mati Páls Gunnars Páls- sonar, forstjóra Samkeppniseftir- litsins. Íhugar eftirlitið nú hvort beina skuli áliti til landbúnaðarráð- herra vegna þessa. Einar Kristinn Guðfinnsson landbúnaðarráðherra hvatti í Fréttablaðinu í gær samkeppnisyf- irvöld, og til þess bærar stofnanir, til að fylgjast með áhrifum tolla- lækkana 1.mars á vöruverð í land- inu, en þær áttu að stuðla að því að gera matvælaverð á Íslandi sam- bærilegt verðlagi í nágranna- löndunum. Minntist ráðherra þar á téð útboð tollkvótanna. Þar hafi breytt fyrirkomulag lækkað tolla um allt að 60 prósent. Páll segir hins vegar að þetta fyrirkomulag útboða, það að hæst- bjóðandi fái kvótann, þýði að kvót- inn verði þeim mun dýrari. Það leiði því til hærra verðlags. En ráðherra gæti fengið annað álit frá eftirlitinu, því þar á bæ telja menn einnig að innflutnings- vernd á landbúnaðarvörum stuðli að hærra vöruverði og leiði til ýmissa samkeppnishindrana. Páll áréttar að lokum að ekki sé á verksviði Samkeppniseftirlitsins að gera verðkannanir. Hins vegar fylgist það á ýmsan hátt með mat- vörumarkaði. Eftirlitið hafi til að mynda haft aðkomu ýmissa hags- munasamtaka að verðlækkunum á matvöru 1. mars til rannsóknar. - kóþ Forstjóri Samkeppniseftirlitsins hefur haft verðlækkunina 1. mars til skoðunar: Útboð tollkvóta hækkar verð LANDHELGISGÆSLAN Skipulagðri leit að bandarísku flugvélinni sem hvarf af ratsjá um 50 sjómílur vestur af Keflavík á mánudaginn hefur verið hætt. Að sögn Landhelgisgæslunnar hefur verið leitað á öllu því svæði sem gera má ráð fyrir að björgunarbátur flugvélarinnar fyndist miðað við veðurfarslegar aðstæður og sjólag. Gæslan hefur beint þeim tilmælum til skipa og báta sem eiga leið um svæðið að þau svipist um eftir hverju því sem bent gæti til afdrifa flugvél- arinnar. Gæslan mun svipast um á svæðinu í hefðbundnum eftirlitsferðum sínum. - jse Landhelgisgæslan: Leit hætt að flugmanninum PÁLL GUNNAR PÁLSSON Segir Sam- keppniseft- irlitið hafa fylgst með verðbreyt- ingunum 1. mars. Vilt þú að Dagur Sigurðsson verði næsti landsliðsþjálfari í handbolta? Já 57% Nei 43% SPURNING DAGSINS Í DAG VIlt þú láta setja Geirsgötu í stokk? Segðu skoðun þína á vísir.is KJÖRKASSINN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.