Fréttablaðið - 14.02.2008, Blaðsíða 17
FIMMTUDAGUR 14. febrúar 2008
DANMÖRK Öll helstu dagblöð Dan-
merkur birtu í gær skopmynd af
Múhameð spámanni með sprengju
í vefjarhetti sínum. Með mynd-
birtingunni vilja þau lýsa yfir
stuðningi við teiknara myndarinn-
ar, Kurt Westergaard.
Daginn áður hafði danska lög-
reglan handtekið þrjá menn sem
áformuðu morðtilræði gegn West-
ergaard. Danir óttast nú nýja öldu
mótmæla í Danmörku og víðar um
heim gegn endurbirtingu myndar-
innar, sem upphaflega birtist
ásamt ellefu öðrum skopmyndum
af Múhameð í Jótlandspóstinum
haustið 2005.
Leiðtogar danskra múslima for-
dæmdu áformin um að myrða
Westergaard, en sögðu jafnframt
rangt að endurbirta umdeilda
teikningu hans af spámanninum.
„Við erum svo ósátt við að teikn-
ingin sé endurprentuð,“ segir
Mostafa Chendid, leiðtogi trúfé-
lags múslima í Danmörku, í viðtali
við bandarísku fréttastofuna AP.
Hann sagði að samtökin, sem voru
í forystu fyrir mótmælunum gegn
teikningunum árið 2006, ætli að
efna til mótmæla fyrir utan þing-
húsið í Kaupmannahöfn.
„Engu blóði hefur verið úthellt í
Danmörku út af þessu máli, og
engu blóði verður úthellt. Við
erum að reyna að róa fólk, en við
skulum sjá til hvað gerist. Við
skulum byrja að tala saman,“ sagði
hann.
Múslimar í Indónesíu brugðust
illa við þegar blaðamaður frá
norska dagblaðinu Aftenposten
skýrði þeim frá að skopmyndin
hafi verið endurbirt.
„Við skiljum ekki hvernig hægt
er að birta þessar teikningar
aftur,“ sagði Sayaiful Bahri Ans-
hori, talsmaður múslima á
Indónesíu. „Bera þessir menn
enga virðingu fyrir íslam?“ Hann
var ekki í vafa um að enn á ný yrði
efnt til mótmæla víða um heim.
Samkvæmt íslamstrú eru allar
myndbirtingar af spámanninum
bannaðar, hvort heldur þær eru
jákvæðar eða neikvæðar, og er til-
gangur bannsins að koma í veg
fyrir skurðgoðadýrkun.
Árið 2006 efndu múslimar víða
um heim til harðra mótmæla gegn
birtingu skopmyndanna í Jót-
landspóstinum haustið áður.
Almennt fóru mótmælin friðsam-
lega fram, en víða var mikil heift í
fólki. Víða var kveikt í dönskum
fánum og í Nígeríu var kveikt í
mörgum kirkjum og fórust þar
tugir manna. gudsteinn@frettabladid.is
DÖNSKU BLÖÐIN Í GÆR Eftir að danska lögreglan kom upp um áform um að myrða
skopteiknarann Kurt Westergaard birtu öll helstu dagblöð Danmerkur í gær hina
umdeildu Múhameðsteikningu hans. NORDICPHOTOS/AFP
Múhameðsteikning
endurbirt í blöðum
Danir óttast nú nýja holskeflu mótmæla eftir að helstu dagblöð landsins endur-
birtu skopmynd af Múhameð. Leiðtogi danskra múslima vill hefja samræður.
ÖRYGGI Hópbílar hafa nýlokið við að útbúa DVD-
öryggisdiska sem nota á í rútum fyrirtækisins. Eru
þeir hugsaðir til að kynna þá öryggisþætti sem hafa
þarf í huga þegar ferðast er með langferðabílum.
Farþegar eru hvattir til þess að nota öryggisbelti og
farið er vel yfir hvernig bregðast eigi við ef óhapp eða
slys ber að höndum. Í dag þekkist öryggismyndefni af
þessu tagi aðallega í flugvélum en með aukinni tækni í
langferðabílum verður breyting þar á.
Efni þessara nýju diska er mun ítarlegra en efnið
sem sýnt var á gömlu myndböndunum og munu þeir
leysa spólurnar alfarið af hólmi. Myndefnið er um
tveggja mínútna langt og uppbyggt þannig að texti
er lesinn upp samhliða myndrænu efni. Hægt er að
velja á milli fjölda tungumála.
Pálmar Sigurðsson, skrifstofu- og starfsmanna-
stjóri Hópbíla, segir þá lengi hafa haft hugmynd um
að gera svona disk. Eftir að fyrirtækið fór í áhættu-
greiningu í nóvember í fyrra, og farið var yfir hvaða
hættur geta steðjað að á rútuferðalögum, varð
diskurinn til.
Pálmar segir að byrjað hafi verið að nota diskinn
strax í fyrra og að almenn ánægja sé með
útkomuna. - kka
Hópbílar útbúa öryggismyndefni fyrir langferðabíla sína:
Aukið öryggi í hópferðabílum
HÓPBÍLAR Starfsmannastjóri Hópbíla segir að ákveðið hafi
verið að gefa út DVD-diskinn eftir að fyrirtækið fór í áhættu-
greiningu í nóvember.
ÁSTRALÍA, AP Kevin Rudd, forsætisráðherra Ástralíu,
bað í gær frumbyggja landsins formlega afsökunar á
þeirri illu meðferð sem þeir máttu sæta af hálfu
hvítu innflytjendanna, sem tóku sér öll völd í landinu
í byrjun síðustu aldar.
Árum saman hafa frumbyggjar krafist afsökunar-
beiðni frá stjórnvöldum, en án árangurs, einkum
fyrir að hafa á árunum 1910 til 1970 tekið allt að 100
þúsund börn nauðug frá foreldrum sínum. Þessi börn
eru jafnan nefnd „stolnu kynslóðirnar“ í Ástralíu.
Rudd hafði lofað því í kosningabaráttu sinni á
síðasta ári að hann myndi láta það verða eitt sitt
fyrsta verk að biðjast afsökunar fyrir hönd stjórn-
valda.
Í gær mættu um hundrað frumbyggjar, allt saman
fólk af „stolnu kynslóðunum“, til að fylgjast með
þegar Rudd bar fram afsökunarbeiðnina á þjóðþingi
landsins í höfuðborginni Canberra.
„Verkinu er ekki lokið, þetta er bara byrjunin,“
sagði Lowitja O‘Donoghue, 75 ára kona sem á yngri
árum var tekin frá foreldrum sínum. Hún sagði verst
að móðir sín hefði ekki lifað nógu lengi til að upplifa
þessa stund.
Þótt Rudd hafi beðist afsökunar hefur hann ekki fallist
á að stjórnin greiði frumbyggjum skaðabætur. - gb
Forsætisráðherra Ástralíu stendur við kosningaloforð:
Frumbyggjar beðnir afsökunar
TILFINNINGA-
ÞRUNGIN STUND
Frumbyggjar
fylgdust með
þegar Kevin
Rudd bar fram
afsökunarbeiðni á
þjóðþingi Ástralíu
í gær.
NORDICPHOTOS/AFP