Fréttablaðið - 14.02.2008, Blaðsíða 68

Fréttablaðið - 14.02.2008, Blaðsíða 68
44 14. febrúar 2008 FIMMTUDAGUR folk@frettabladid.is Svallrokkarinn Johnny Borrell úr hljómsveitinni Razorlight er nú orðaður við leikkonuna Emmu Wat- son. Emma er fræg fyrir að leika Hermione Granger í kvikmyndun- um um Harry Potter. Þau skötuhjú- in skemmtu sér saman í London um helgina og bresk dagblöð segja að afar vel hafi farið á með þeim. Söngvarinn Borrell er 27 ára og hefur lengi glímt við áfengis- og eiturlyfjavanda. Hann átti í storma- sömu sambandi við leikkonuna Kirsten Dunst á síðasta ári en hún sparkaði honum vegna djammlíf- ernis hans. Emma er hins vegar aðeins 17 ára og hefur hingað til lítið látið fyrir sér fara í djamm- lífinu í Bretlandi. Borrell og Watson sóttu tvö partí saman um helgina og fóru saman á braut í leigubíl. Sagan segir að Bor- rell hafi verið hent út úr seinna partíinu fyrir ólæti. „Emma virtist afar ánægð. Hún er aðdáandi Razorlight og var með stjörnur í augunum,“ sagði heimildarmaður The Sun. Rokkari nældi sér í Harry Potter-stelpu NÝTT PAR? Söngvarinn Johnny Borrell og leikkonan Emma Watson skemmtu sér saman í London um helgina. NORDICPHOTOS/GETTY > ENGINN ÍS PETA-samtökin hafa skor- að á foreldra Britney Spears að halda mjólkurafurð- um frá dóttur sinni, þar sem mjólkurvörur geti haft slæm áhrif á sjúk- linga með geðhvarfa- sýki, séu þeir viðkvæm- ir fyrir mjólk. Britney er mjög hrifin af ís, en sam- kvæmt Peta ætti hún nú að forðast hann. „Við á tæknideildinni áttum frumkvæð- ið að þessu. Settum áður upp ljós- myndasýningu sem var helguð Dorrit. Hún tókst svo vel að við náðum að pota henni í anddyri húsakynna Sambands íslenskra myndlistarmanna,“ segir Hafþór Ragnarsson, tæknimaður á Blindrabókasafninu - til húsa í Hamra- borg í Kópavogi. Nýlega var opnuð ljósmyndasýning í Blindrabókasafninu. Hún er helguð feðrum og mun standa alveg til sumardagsins fyrsta. Þeir sem sýna eru aðstandendur safnsins. „Ljósmyndasýn- ing fyrir blinda? Jú, það má alveg halda því fram. Meira að segja er ein mynd tekin af manni sem er með minna en tíu prósenta sjón,“ segir Hafþór. En bendir jafnframt á að þrátt fyrir nafnið þá komi sjaldan blindir á safnið. Þeir sem eru blindir fá sendar bækur heim til sín en þeir sem koma eru ýmist að sækja bækur fyrir blinda eða eru lesblindir eða lesfatlaðir á annan hátt. Í augnablikinu eru níu myndir á sýningunni en að sögn Hafþórs fer þeim fjölgandi. En allir sem starfa við safnið geta komið með mynd af sínum eigin föður og sýnt hana. „Jú, sýningin hefur mælst gríðarlega vel fyrir og margir komið til að skoða. Eða allir þeir sem hingað eiga erindi. Við höfum ekki auglýst sýninguna að ráði enda höfum við ekki efni á því.“ - jbg Ljósmyndasýning fyrir blinda OPNUN SÝNINGARINNAR Glatt var á hjalla þegar ljósmyndasýningin á Blindrabókasafninu var opnuð en hún er helguð feðrum og heitir „Ó, pabbi“. „Já, ég var heldur betur skamm- aður fyrir „Laugardagslögurinn“ þá staddur fyrir utan skemmti- staðinn Broadway,“ segir Gísli Einarsson sjónvarpsmaður. Heitt var í kolum baksviðs eftir síðasta þátt Laugardagslaga Rík- isútvarpsins en yfirlýsingar Guð- rúnar Gunnarsdóttur um að hún vildi að alvöru tónlistarmenn færu utan sem fulltrúar lands og þjóðar fóru þversum ofan í ýmsa. Meðal annars bauðst Egill „Gilz“ Einars- son til þess að syngja fyrir Guð- rúnu. Að sögn Gísla var Guðrún ekki sú eina sem komst í hann krappan eftir þáttinn. „Ég var seinna um kvöldið staddur fyrir utan Broadway og þá vatt sér að mér maður af erlendu bergi brotinn. Og sagði í sífellu: „Þú stela lagið!“ Ég var á hraðferð en sagði honum að ég hefði ekki samið neitt lag. „Jú,“ sagði þá maðurinn. „Þú vera Dr. Gunni! Og þú stela lagið.“ Ég átti í stökustu vandræðum með að koma honum í skilning um að ég væri ekki Dr. Gunni. En það er með okkur sköllóttu mennina eins og kollóttu rollurnar. Manni finnst þeir allir eins.“ Gísli átti í nokkru stappi með að koma umræddum manni í skilning um að hann væri ekki ekki Dr. Gunni. Maðurinn var hins vegar fullviss um að „Dr. Gunni“ væri að koma sér hjá því að viðurkenna að framlag hans í úrslitakeppninni, „Hvar ertu nú?“, væri í raun lagið „Indian Summer“ með hljóm- sveitinni Doors. Gísli segist síðar hafa hlust- að á Indian Summer og telur auðheyrt að þar sé ekki nóta lík því sem Dr. Spock og félag- ar syngja. „En það er greini- lega ýmis- legt að var- ast í þessu,“ segir Gísli. - jgb Gísla Einars ruglað saman við Dr. Gunna GÍSLI OG GUNNI Með þessa sköllóttu eins og kollóttu rollurnar – manni finnst þeir allir eins. Ótrúleg velgengni Ladda-sýningarinnar heldur áfram. Sjálfur hefur Laddi ekki hugmynd um hvað veldur. Á laugardaginn verður 90-tugasta sýning á Laddi 6- tugur í Borgarleikhúsinu. Frumsýnt var 17. febrúar og sýningin því ársgömul. Alltaf sýnt fyrir fullu húsi og í lok hverrar sýningar er Laddi hylltur. „Já, ekkert bara hylltur,“ segir Hjörtur Howser tónlistar- stjóri sýningarinnar sem kann að koma orðum að hlutunum: „Missir alla sjálfstjórn, hlær og grætur, öskrar og klappar og rís að lokum úr sætum sínum til að votta honum virðingu og þakklæti fyrir að hafa með snilli sinni, einn og óstuddur, hækkað meðalald- ur þjóðarinnar því eins og vitað er lengir hláturinn lífið,“ segir Hjörtur. „Já! Það er aldeilis,“ segir Laddi og kímir. Salurinn tekur 530 manns og hafa þá hátt í 50 þúsund manns mætt á sýninguna eða um 15 prósent þjóðarinnar. „Já, ég átta mig ekki á þessu. Árið 2000 setti ég upp sýningu í Austurbæ sem gekk ágætlega. En, Guð minn góður, ekkert í líkingu við þetta. Þetta er óskiljanlegt,“ segir Laddi. Menn reikna út að Laddi hljóti að vera orðinn breiðvaxinn milljóner en svo er ekki. Þannig er að Laddi er launþegi en Sena framleiðir sýninguna. Laddi neitar því ekki að þessi umræða pirrar hann. „Já, því fólk heldur að ég sé að fá allan þennan pening. Það er velta á þessu. Að sjálfsögðu. En þetta er stórt batterí. Fimmtán manns keyra sýninguna. Húsið er stórt. Ekkert til sparað og tekjurnar dreifast víða. En það eru allir í góðri vinnu. Löng og góð vertíð sem allir njóta góðs af.“ Vegna vinsælda stefnir allt í að sýnt verði fram á sumar og í undirbúningi er að fara með sýninguna norður. Laddi hefur verið að leika í sýningum Borgarleikhússins „Viltu finna milljón“ og „Lík í óskilum“. „Já, ég er bara alltaf í Borgarleikhúsinu. Sem er fínt.“ Björn Sigurðsson framkvæmdastjóri Senu er ánægður með þetta sameiginlega verkefni Senu og Ladda. Sena sér um allt sem lýtur að fjármálastjórn og praktískum atriðum og Laddi fær frið til að sinna því sem snýr að hinu listræna. „Árið 2007 var árið hans Ladda. Best of plata hans seldist í hátt í 10 þúsund eintökum. Og jólaplata hans fór í fimm þúsund. Já, báðir geta vel við unað. Án þess að ég vilji fara nánar út í það þá skila 50 þúsund áhorfend- ur einhverju í kassann,“ segir Björn. Hann bendir á að tekin hafi verið nokkur áhætta í upphafi, sýningin hafi verið sett upp í tengslum við „best of“ plötuna. „Engan óraði fyrir þessari velgengni.“ jakob@frettabladid.is Laddi nálgast 50 þúsund gesti ELSKAÐUR OG DÁÐUR „Alltaf troðfullt hjá Ladda og í lok sýningar missir fólk alla sjálfstjórn hlær og grætur, öskrar og klappar...“ www.forlagid.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.