Fréttablaðið - 14.02.2008, Blaðsíða 32
[ ]Teygjur eru okkur nauðsynlegar til að halda liðleika. Á hverjum degi ætti að gera hlé á vinnu í nokkrar mínútur og teygja vel á stífum vöðvum í fótum og baki.
Með tilkomu linnulausrar
tæknivæðingar í íslensku sam-
félagi hefur rafsegulsvið í nán-
asta umhverfi aukist. Garðar
Bergendal á tæki sem bætir
lífsgæði þeirra sem þjást af
völdum neikvæðra rafbylgna.
„Ég lagði stund á þessi fræði eftir
að hafa fengið krabbamein í höf-
uðið fyrir áratug síðan. Þá kom til
mín maður sem gat umpólað raf-
bylgjum, en undir húsinu, nánar
tiltekið beint undir rúmi mínu,
reyndist vera ákveðin tegund
jarðsprungna sem kallast öðru
nafni jarðára og magnar upp raf-
segulbylgjur,“ segir Garðar Berg-
endal hjá Kletti rafbylgjumæling-
um sem hindrað getur neikvæð
áhrif rafbylgna úr jörðu. Þegar
blaðamaður tekur á Garðari hús
er hann á leið til hjóna sem bæði
eru nýgreind með krabbamein.
„Læknarnir vildu meina að
krabbameinið væri tilkomið
vegna spennustöðvar við hlið húss
þeirra, en það er ekki einleikið
hversu oft ég fer til fólks sem býr
í námunda við spennustöð og er
komið með krabbamein. Verst er
að neikvæðar rafbylgjur má laga
og með því fyrirbyggja sjúkdóma,
en því miður er fólk oft orðið
alvarlega veikt þegar það leitar til
mín,“ segir Garðar sem af reynslu
veit að slæmum sjúkdómshorfum
má snúa til betri vegar með ump-
ólun rafmagns í umhverfi
sjúklings.
„Minnisstætt eru margt minna
viðskiptavina en ofarlega í huga
hjón úr Keflavík. Systir húsfreyj-
unnar hafði samband fyrir fjórum
árum og þegar þangað kom taldi
ég víst að maðurinn væri helsjúk-
ur og konan var rúmföst líka.
Mánuði eftir að ég hafði umpólað
rafmagninu voru bæði komin með
fótaferð, og fyrir ári leit ég til
þeirra aftur og þá var maðurinn
laus við krabbann, farinn að vinna
á ný, og konan á hröðum batavegi.
Annað dæmi snertir fólk með
kæfisvefn sem losnar við súrefnis-
vélina eftir umpólun rafmagns.
Þessar staðreyndir tala sínu máli,
en sjálfur tek ég mest mark á
sjálfum mér og losnaði við
krabbann eftir að rafmagn var
lagað heima,“ segir Garðar sem
kennir sterkum rafmagnsbylgj-
um að stórum hluta um þann far-
aldur sem krabbamein er orðið í
Íslendingum.
„Við erum alltaf að framleiða
meira rafmagn, leggja spennu-
stöðvar, kapla í jörðu og síma-
möstur sem senda frá sér afar
skaðlegar rafbylgjur. Í skólum
hvet ég krakka til að minnka notk-
un farsíma og nota meinlausari
vekjaraklukkur á morgnana. Eldri
menn hafa misst eistun, sem talið
er vegna þess að þeir hafa gems-
ann hringlandi í buxnavösum.
Lengi get ég áfram talið upp
heilsutjón af völdum neikvæðra
rafbylgna sem hvarvetna mælast
öflugar og vaxandi, en í sumar
fékk ég verkbeiðni vegna ungl-
inga í garðyrkjustörfum sem
fengu í sig rafmagn úr moldinni,“
segir Garðar, sem á dögunum
vann sitt verk í Norðlingaskóla
við góðan árangur, en starfsfólk
staðfestir að andrúmsloft sé þar
allt annað og líðan skólafólks
betri.
„Bændur hafa mikið leitað til
mín vegna búfénaðar sem illa
þrífst og þar hef ég lagfært raf-
magn, en í kjölfarið hefur nyt í
kúm aukist um fimmtán prósent
og júgurbólga horfið með öllu.
Rafmagnsbylgjur hafa áhrif á allt
sem lifandi er og nóg að skoða
hvernig umhorfs er í Straumsvík
þar sem jörð er sviðin undir raf-
magnslínum,“ segir Garðar sem
síðan 2000 hefur árlega mælt raf-
bylgjur úr jörðu, tenglum, tölv-
um, gsm-símum og ljósum á yfir
200 heimilum og vinnustöðum.
„Allar þessar bylgjur hafa áhrif
á fólk og skepnur, og geta valdið
ýmsum kvillum eins og mígreni,
síþreytu, svefntruflunum, vöðva-
bólgu, exemi, húðþurrki, fóta-
verkjum og liðkasti í mjöðm, en
einnig alvarlegum sjúkdómum á
borð við krabbamein. Þetta má allt
laga með varanlegum árangri, en
víst þyrftu stjórnvöld að vera
meðvitaðri um áhrif neikvæðra
rafbylgna og koma til móts við
þjóð sína til að fyrirbyggja frekara
heilsutjón.“ thordis@frettabladid.is
Rafmagnað heilsutjón
JÓGA
Ásta Arnardóttir • 862 6098
www.this.is/asta • astaarn@mi.is
www.lotusjogasetur.is • Borgartúni 20
MORGUN / HÁDEGI / SÍÐDEGI
BYRJENDANÁMSKEIÐ HEFST 22. OKT.
KUNDALINI HEFST 22. OKT.
JÓGA
MORGUN / HÁDEGI / SÍÐDEGI
BYRJENDANÁMSKEIÐ HEFST 18.FEB
Augnháralitur og augnbrúnalitur
Tana® Cosmetics
SÖLUSTAÐIR: APÓTEK OG SNYRTIVÖRUVERSLANIR
NÝTT!!
Plokkari með ljósi
HEYRNARÞJÓNUSTA
Dot er góður punktur
fyrir þá sem vilja heyra vel.
Þessi punktur er agnarsmátt heyrnartæki
sem með nýjustu tölvutækni bætir við heyrnina
þeirri tíðni sem notandinn hefur tapað.
Hringdu og láttu okkur fræða þig meira um
þessa undraverðu tækni.
Heimsins minnstu heyrnartæki koma frá ReSound . . . . . . . . . . . . . .
Hér má sjá Garðar Bergendal
að störfum með rafprjóna
sem leita uppi neikvæðar
rafbylgjur. Slíkan ófögnuð
má laga á varanlegan hátt og
koma í veg fyrir ýmsa kvilla
sem hrjá mannfólkið; allt frá
húðþurrki upp í krabbamein.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
A
u
g
lý
si
n
g
a
sí
m
i
– Mest lesið