Fréttablaðið


Fréttablaðið - 14.02.2008, Qupperneq 32

Fréttablaðið - 14.02.2008, Qupperneq 32
[ ]Teygjur eru okkur nauðsynlegar til að halda liðleika. Á hverjum degi ætti að gera hlé á vinnu í nokkrar mínútur og teygja vel á stífum vöðvum í fótum og baki. Með tilkomu linnulausrar tæknivæðingar í íslensku sam- félagi hefur rafsegulsvið í nán- asta umhverfi aukist. Garðar Bergendal á tæki sem bætir lífsgæði þeirra sem þjást af völdum neikvæðra rafbylgna. „Ég lagði stund á þessi fræði eftir að hafa fengið krabbamein í höf- uðið fyrir áratug síðan. Þá kom til mín maður sem gat umpólað raf- bylgjum, en undir húsinu, nánar tiltekið beint undir rúmi mínu, reyndist vera ákveðin tegund jarðsprungna sem kallast öðru nafni jarðára og magnar upp raf- segulbylgjur,“ segir Garðar Berg- endal hjá Kletti rafbylgjumæling- um sem hindrað getur neikvæð áhrif rafbylgna úr jörðu. Þegar blaðamaður tekur á Garðari hús er hann á leið til hjóna sem bæði eru nýgreind með krabbamein. „Læknarnir vildu meina að krabbameinið væri tilkomið vegna spennustöðvar við hlið húss þeirra, en það er ekki einleikið hversu oft ég fer til fólks sem býr í námunda við spennustöð og er komið með krabbamein. Verst er að neikvæðar rafbylgjur má laga og með því fyrirbyggja sjúkdóma, en því miður er fólk oft orðið alvarlega veikt þegar það leitar til mín,“ segir Garðar sem af reynslu veit að slæmum sjúkdómshorfum má snúa til betri vegar með ump- ólun rafmagns í umhverfi sjúklings. „Minnisstætt eru margt minna viðskiptavina en ofarlega í huga hjón úr Keflavík. Systir húsfreyj- unnar hafði samband fyrir fjórum árum og þegar þangað kom taldi ég víst að maðurinn væri helsjúk- ur og konan var rúmföst líka. Mánuði eftir að ég hafði umpólað rafmagninu voru bæði komin með fótaferð, og fyrir ári leit ég til þeirra aftur og þá var maðurinn laus við krabbann, farinn að vinna á ný, og konan á hröðum batavegi. Annað dæmi snertir fólk með kæfisvefn sem losnar við súrefnis- vélina eftir umpólun rafmagns. Þessar staðreyndir tala sínu máli, en sjálfur tek ég mest mark á sjálfum mér og losnaði við krabbann eftir að rafmagn var lagað heima,“ segir Garðar sem kennir sterkum rafmagnsbylgj- um að stórum hluta um þann far- aldur sem krabbamein er orðið í Íslendingum. „Við erum alltaf að framleiða meira rafmagn, leggja spennu- stöðvar, kapla í jörðu og síma- möstur sem senda frá sér afar skaðlegar rafbylgjur. Í skólum hvet ég krakka til að minnka notk- un farsíma og nota meinlausari vekjaraklukkur á morgnana. Eldri menn hafa misst eistun, sem talið er vegna þess að þeir hafa gems- ann hringlandi í buxnavösum. Lengi get ég áfram talið upp heilsutjón af völdum neikvæðra rafbylgna sem hvarvetna mælast öflugar og vaxandi, en í sumar fékk ég verkbeiðni vegna ungl- inga í garðyrkjustörfum sem fengu í sig rafmagn úr moldinni,“ segir Garðar, sem á dögunum vann sitt verk í Norðlingaskóla við góðan árangur, en starfsfólk staðfestir að andrúmsloft sé þar allt annað og líðan skólafólks betri. „Bændur hafa mikið leitað til mín vegna búfénaðar sem illa þrífst og þar hef ég lagfært raf- magn, en í kjölfarið hefur nyt í kúm aukist um fimmtán prósent og júgurbólga horfið með öllu. Rafmagnsbylgjur hafa áhrif á allt sem lifandi er og nóg að skoða hvernig umhorfs er í Straumsvík þar sem jörð er sviðin undir raf- magnslínum,“ segir Garðar sem síðan 2000 hefur árlega mælt raf- bylgjur úr jörðu, tenglum, tölv- um, gsm-símum og ljósum á yfir 200 heimilum og vinnustöðum. „Allar þessar bylgjur hafa áhrif á fólk og skepnur, og geta valdið ýmsum kvillum eins og mígreni, síþreytu, svefntruflunum, vöðva- bólgu, exemi, húðþurrki, fóta- verkjum og liðkasti í mjöðm, en einnig alvarlegum sjúkdómum á borð við krabbamein. Þetta má allt laga með varanlegum árangri, en víst þyrftu stjórnvöld að vera meðvitaðri um áhrif neikvæðra rafbylgna og koma til móts við þjóð sína til að fyrirbyggja frekara heilsutjón.“ thordis@frettabladid.is Rafmagnað heilsutjón JÓGA Ásta Arnardóttir • 862 6098 www.this.is/asta • astaarn@mi.is www.lotusjogasetur.is • Borgartúni 20 MORGUN / HÁDEGI / SÍÐDEGI BYRJENDANÁMSKEIÐ HEFST 22. OKT. KUNDALINI HEFST 22. OKT. JÓGA MORGUN / HÁDEGI / SÍÐDEGI BYRJENDANÁMSKEIÐ HEFST 18.FEB Augnháralitur og augnbrúnalitur Tana® Cosmetics SÖLUSTAÐIR: APÓTEK OG SNYRTIVÖRUVERSLANIR NÝTT!! Plokkari með ljósi HEYRNARÞJÓNUSTA Dot er góður punktur fyrir þá sem vilja heyra vel. Þessi punktur er agnarsmátt heyrnartæki sem með nýjustu tölvutækni bætir við heyrnina þeirri tíðni sem notandinn hefur tapað. Hringdu og láttu okkur fræða þig meira um þessa undraverðu tækni. Heimsins minnstu heyrnartæki koma frá ReSound . . . . . . . . . . . . . . Hér má sjá Garðar Bergendal að störfum með rafprjóna sem leita uppi neikvæðar rafbylgjur. Slíkan ófögnuð má laga á varanlegan hátt og koma í veg fyrir ýmsa kvilla sem hrjá mannfólkið; allt frá húðþurrki upp í krabbamein. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI A u g lý si n g a sí m i – Mest lesið
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.