Fréttablaðið - 07.03.2008, Qupperneq 18
18 7. mars 2008 FÖSTUDAGUR
N
efnd á vegum Einars
K. Guðfinnssonar
sjávarútvegsráð-
herra kannar nú
möguleika á bygg-
ingu og starfrækslu
seiðaeldisstöðvar sem þjónað gæti
allri matfiskframleiðslu hér á
landi. Íslenskt þorskeldi stendur á
krossgötum og tímabært er að
auka framleiðslu verulega, að mati
eldismanna. Bygging seiðaeldis-
stöðvar sem getur framleitt allt að
tíu milljónir seiða er forsenda þess
að íslenskt þorskeldi geti fylgt
eftir þróun þorskeldis í Noregi.
Þar í landi hyggja menn á þorsk-
eldi sem stóriðnað innan fárra ára
og sjá ekkert því til fyrirstöðu að
starfa með Íslendingum að þróun
eldis hér á landi. Stærsti munurinn
á þorskeldi í Noregi og hér á landi
er annars vegar forskot Norð-
manna í seiðaeldi og hins vegar að
fjármagn virðist liggja á lausu í
Noregi fyrir eldisfyrirtæki til að
fjármagna framleiðslu í stórum
stíl.
Staða þorskeldis á Íslandi
Tilraunaeldi þorsks á undanförnum
sex árum hefur skilað verulegum
árangri hér á landi. Stór sjávar-
útvegsfyrirtæki hafa leitt þróun
þorskeldisins og hafa litið á eldið
sem tilraunaverkefni til þekking-
aröflunar og til að meta arðsemi
þess. Framleiðsla á eldisþorski
hefur vaxið úr um 200 tonnum árið
2002 í um 1.800 tonn árið 2007.
Frá árinu 2003 hafa verið fram-
leidd 150 til 250 þúsund seiði á ári í
Tilraunastöð Hafrannsóknastofn-
unar á Stað við Grindavík. Seiða-
framleiðslan hefur verið hluti af
kynbótaverkefni IceCod ehf. Á
vegum IceCod hófst seiðafram-
leiðsla í desember 2007. Miklar
framfarir hafa verið í framleiðslu
fyrirtækisins, lifun seiða hefur
aukist mikið og einnig dregið úr
vansköpun.
Varla er ofsagt að fagmennska
og þekking í þorskeldi hérlendis sé
mikil. Hins vegar hefur íslenskt
þorskeldi grundvallast af stærstum
hluta á áframeldi. Þá er smá-
þorskur veiddur og alinn áfram í
sjókvíum. Einnig hafa villt seiði
verið veidd og alin áfram upp í
hentuga stærð áður en þau eru sett
út í sjókvíar þar sem þau eru alin í
sláturstærð. Á þessum grunni telja
framleiðendur að ekki verði byggt
lengur. Eini raunhæfi möguleikinn
til þess að auka framleiðslu á eldis-
þorski sé að hefja stórfellda fram-
leiðslu á þorskseiðum í sérhæfðri
seiðastöð. Með tilkomu slíkrar
stöðvar er talið raunhæft að fram-
leiðsla eldisþorsks á Íslandi verði
um þrjátíu þúsund tonn árið 2015.
Seiðaeldisstöð
Lítil framleiðslugeta á þorskseiðum
í Noregi var lengi stærsta hindrunin
í þróun matfiskeldis þar í landi.
Segja má að sama staða sé komin
upp á Íslandi. Seiðaframleiðsla í
eldisstöð IceCod á Stað við Grinda-
vík hefur verið um 200 þúsund seiði
á ári. Norðmenn hafa á stuttum
tíma leyst þetta vandamál að
stærstum hluta og er talið að þær
þrettán seiðaeldisstöðvar sem nú
eru starfandi í Noregi geti fram-
leitt allt að 100 milljónir þorskseiða,
þótt því fari fjarri að eftirspurn sé
eftir slíku seiðamagni í dag. 100
milljónir seiða eru nægjanlegt
seiðamagn til framleiðslu á 300
þúsund tonnum af eldisþorski.
Framleiðendur telja raunhæft að
framleiðsla eldisþorsks geti numið
allt að 200 þúsund tonnum eftir ára-
tug. Margir innan vísinda samfélags-
ins telja þessi markmið skýja borgir
en fáir sem starfa að þróunar-
málum þorskeldis útiloka að Norð-
menn nái markmiðum sínum.
Einróma álit fiskeldismanna hér
á landi er að án tafar verði að ráðast
í undirbúning að bygg-
ingu seiðastöðvar og
framleiða þar tíu
milljónir seiða árlega ekki
síðar en 2012. Uppbygging
slíkrar stöðvar yrði sameig-
inlegt verkefni
ríkisins og sjávar-
útvegs fyrirtækja
sem hyggja á
þorskeldi.
Aðkoma fyrir tækj-
anna að seiðastöð-
inni er hugsuð sem skuld-
binding til seiðakaupa á
kostnaðar verði. Með því yrði rekst-
ur hennar tryggður og uppbygging
í seiðaeldi og matfiskeldi héldist í
hendur. Með þessu myndi ný seiða-
stöð aldrei framleiða meir en fyrir-
tækin væru tilbúin að kaupa og
setja í eldi. Þessi hugmynd er háð
því að hið opinbera beri grunn-
kostnaðinn við bygginguna.
Samstarf við Norðmenn
Uppbygging þorskeldis í stórum
stíl er áhættusamt og tímafrekt
verkefni. Stór sjávarútvegsfyrir-
tæki munu þar gegna aðalhlutverki
og aðkoma stjórnvalda er nauðsyn-
leg. Einnig er ljóst að verði ákveðið
að ráðast í byggingu stórrar sér-
hæfðrar seiðaeldisstöðvar strax á
morgun verður framleiðsla ekki
tryggð fyrr en eftir fjögur til fimm
ár. Íslensk fiskeldisfyrirtæki væru
því komin með efnivið í hendurnar
til verulegrar framleiðslu á sama
tíma og Norðmenn hyggjast fram-
leiða meira af eldisþorski en við
veiðum villtan í dag.
Fréttablaðið heimsótti í febrúar
seiðaeldisstöðina Saga Fjörd í V-
Noregi. Stöðin mun framleiða tíu
milljónir seiða á þessu ári og er því
af sömu stærð og sú seiðastöð sem
íslenskir þorskeldsmenn telja
nauðsynlegt að rísi hér. Sigurd O.
Handeland, framkvæmdastjóri
Saga Fjörd, segir að stofnkostnaður-
inn við seiðaeldisstöðina hafi verið
um 500 milljónir íslenskra króna.
„Þrjú ár liðu frá því að við vorum
búnir að koma upp aðstöðunni
þangað til við höfðum náð við-
unandi jafnvægi í framleiðsluna. Á
þessu ári getum við framleitt allt
að tíu milljónir seiða en árið 2007
sendum
við frá
okkur um
sex milljónir
seiða.“ Sigurd
telur að íslenskum
fiskeldis mönnum standi til boða öll
sú þekking sem hefur orðið til í
norsku seiðaeldi. Möguleika til
samstarfs telur Sigurd ekki ein-
skorðast við seiðaeldi heldur séu
framleiðendur sífellt að leita að
tækifærum til að þróa sinn
rekstur.
Samstarf innanlands
Samstarf íslensku fyrirtækjanna
sem hyggja á eldi til framtíðar er
einnig áhugaverður möguleiki, sér-
staklega í ljósi hugmynda í Noregi
um að hagkvæmast sé að stofna
klasa sem hver framleiði um þrjá-
tíu þúsund tonn af þorski. Í þessum
hugmyndum yrði í hverjum klasa
seiðastöð sem framleiddi á milli tíu
og fimmtán milljónir seiða, fisk-
vinnsla og tíu matfiskeldisstöðvar.
Mikilvægt er að hugleiða þessa
hugmynd í samhengi við aðstæður
á Íslandi. Í þessari hugmynd felst
viðurkenning á því að þorskeldi
verði aldrei stundað sem atvinnu-
vegur nema til komi öflugar seiða-
stöðvar sem framleiði margar
milljónir seiða á ári hverju.
Seiðaframleiðslan er flöskuháls
Þorskeldi stendur á krossgötum hér á landi, að mati eldismanna. Tilraunaeldi síðustu ára sýnir að tímabært er að auka framleiðslu
verulega. Til þess þarf að reisa sérhæfða seiðastöð. Nefnd sjávarútvegsráðherra kannar möguleika á byggingu slíkrar stöðvar. Norskir
fiskeldismenn sjá ekkert því til fyrirstöðu að starfa með Íslendingum við að hraða þróun þorskeldis hérlendis.
ÖNNUR GREIN AF FIMM
Á morgun:
Eldisaðferðir og vandamál
FRÉTTASKÝRING
SVAVAR HÁVARÐSSON
svavar@frettabladid.is
Upphaf þorskeldis á Íslandi
Fyrstu tilraunir með söfnun á villtum
þorski til áframeldis í kvíum hér á
landi hófust í Stöðvarfirði árið 1992.
Fyrstu árin studdi sjávarútvegsráðu-
neytið við bakið á þeim sem gerðu
tilraunir með þorskeldi með því að
úthluta hverjum aðila fimm tonna
kvóta af lifandi þorski. Þrátt fyrir
þetta dofnaði áhuginn fljótt, verð
sem fékkst fyrir þorskinn lækkaði og
fyrirhöfnin var mikil miðað við til-
tölulega lítil umsvif. Á árunum 1993-
2000 stunduðu samtals átján aðilar
eldi á villtum þorski á Austfjörðum,
Vestfjörðum og í Eyjafirði.
Á vorþingi 2002 var samþykkt
að sjávarútvegsráðherra hefði til
sérstakrar ráðstöfunar til áframeldis
aflaheimildir sem næmu árlega 500
lestum af óslægðum þorski. Með
úthlutun á þorskeldiskvóta hefur átt
sér stað mikil aukning í áframeldi á
þorski hér við land. Öflug sjávar-
útvegsfyrirtæki hafa nú hafið þorsk-
eldi og má gera ráð fyrir verulegri
framleiðsluaukningu á næstu árum.
Í ágúst 2004 var þorskeldi í
sjókvíum stundað á átján stöðum
allt í kringum landið en hefur fækk-
að síðan í ellefu. Starfandi fyrirtæki
hafa aukið umsvif sín og eldisgeta
hefur aukist.
Styrkleikar og
veikleikar í
þorskeldi á Íslandi
Staða Íslendinga
betri eða sambæri-
leg og í Noregi.
Samkeppnishæfni
mun lakari en í
Noregi.
Samkeppnishæfni
nokkru lakari en í
Noregi.
Salar Islandica
(HB-Grandi)
Berufjörður
Þorskeldi hófst árið 2004
Tilraunaeldi
Eldisrými: 200 þúsund rúm-
metrar – 18 sjókvíar
Hægt að ala: 3.000 tonn
IceCod
Grindavík, Hafnir
Kynbætur – framleiðsla hrogna
og seiða
Framleiðslugeta: 500.000 seiði
Brim - fiskeldi
Eyjafirði
Þorskeldi hófst undir merkjum
ÚA árið 2001 (Brim 2003)
Áframeldi
Útsetning á villtum og klöktum
seiðum
Hluthafi í seiðastöðinni á
Nauteyri
Eldisrými 81 þúsund rúmmetrar
– 16 sjókvíar
Hægt að ala 1.500 tonn
Vopnfiskur
Vopnafjörður
Þorskeldi
Stöðvarfirði
Hraðfrystihúsið
Gunnvör
Ísafjarðardjúpi
Þorskeldi hófst árið 2001
Áframeldi í Álftafirði
Aleldi í Seyðisfirði
Strandseiðaeldi á Nauteyri
Heildareldisrými: 120 þús-
und rúmmetrar – 18 sjókvíar
Hægt að ala 2.500 tonn
Einherji
Patreksfirði
Þóroddur
Tálknafirði
Háafell
Nauteyri
Glaður
Bolungarvík
Álfsfell
Ísafirði
800
700
600
500
400
300
200
100
0
2002 2003 2004 2005 2006 2007
Áframeldi
Aleldi
þú
su
nd
s
ei
ða
Fjöldi þorskseiða í sjókvíum
Fréttaskýring: Þorskurinn er næsta eldisævintýri 2. hluti
Klakfiskur
(kynbætur)
Seiðaeldi
(< 5 g)
Stórseiða-
eldi
(5-200 g)
Matfiskeldi
Slátrun,
pökkun og
vinnsla
Flutningur
og mark-
aðssetning
Styrkleikar
Veikleikar
Minna lagt í
kynbætur á
Íslandi en í
Noregi.
Norðmenn eru
með stærri og
hagkvæmari
seiðaeldis-
stöðvar.
Norðmenn
geta nýtt
strandeldis-
stöðvarnar
betur þar sem
þeir geta sett
seiði í sjókvíar
stærstan hluta
ársins.
Almennt erfið-
ari aðstæður
til sjókvíaeldis
á Íslandi en í
Noregi. Jafn-
framt er þekk-
ing og færni
við rekstur sjó-
kvíaeldisstöðva
minni.
Betri aðstaða
til slátrunar
á eldisfiski í
Noregi.
Hærri flutn-
ingskostnaður
á afurð frá
Íslandi en
Noregi.
Hafnar eru kyn-
bætur á þorski
á Íslandi.
Betri aðstæður
til seiðaeldis
á Íslandi en í
samkeppnis-
löndum.
Betri aðstæður
til framleiðslu
stórseiða í
strandeldi á
Íslandi en í
Noregi vegna
aðgengi að
jarðvarma.
Í Noregi eru
meiri líkur en
á Íslandi á að
sjávarhiti verði
of hár, með
þeim afleiðing-
um að afföll
aukast.
Meiri þekk-
ing og færni
við vinnslu á
þorski á Íslandi
en í Noregi.
Íslendingar
eru sterkari
í markaðs-
setningu
sjávarafurða en
Norðmenn.
2000 2002 2004 2006 2008 2010
1.400
1.200
1.000
800
600
400
200
0
to
nn
Áframeldi
Aleldi
Framleiðsla á eldisþorski
2.
50
0
1.
70
0
1.
50
0
2.
50
0
áætlun
Þorskeldisfyrirtæki
á Íslandi