Fréttablaðið - 18.03.2008, Page 2
2 18. mars 2008 ÞRIÐJUDAGUR
noatun.is
LÉTTIR ÞÉR LÍFIÐ
Ferskir í fiski
Þú sparar 300 kr.
1.298kr.kg.
Rauðspretta
með dönskum hætti
UMHVERFISMÁL Al Gore, handhafi
friðarverðlauna Nóbels og
fyrrverandi varaforseti Banda-
ríkjanna, kemur í heimsókn til
Íslands 7.-8. apríl næstkomandi.
Er heimsóknin í boði forseta
Íslands, Ólafs Ragnars Gríms-
sonar. Segir í tilkynningu frá
forsetaembættinu að meðal
dagskrárliða heimsóknarinnar
verði kynningarfundir með
íslenskum vísindamönnum og
sérfræðingum, einkum á sviði
orkunýtingar og jöklarannsókna.
Þá mun Gore flytja fyrirlestur um
loftslagsbreytingar og baráttuna
gegn þeim og svara fyrirspurnum
á opnum fundi sem haldinn
verður í samstarfi við Glitni. - ovd
Þáði boð forseta Íslands:
Al Gore kemur
til Íslands
AL GORE OG FORSETI ÍSLANDS Frá fundi
Ólafs Ragnars Grímssonar og Als Gore
á orku- og umhverfisþingi í Dyflinni á
Írlandi.
Gísli, er vandratað um um-
hverfi neytenda?
„Já, en nú geta neytendur neytt
réttar síns á neytandi.is.“
Nýtt leiðakerfi fyrir neytendur var opnað
um helgina, en því er ætlað að hjálpa
neytendum að finna upplýsingar og ná
fram rétti sínum. Gísli Tryggvason er
talsmaður neytenda.
DÓMSMÁL Mannréttindadómstóll
Evrópu hefur fallist á að taka upp
kæru Jónínu Benediktsdóttur á
hendur íslenska ríkinu. Hún telur
að ríkið hafi brotið á sér mannrétt-
indi þegar dómstólar höfnuðu kröfu
hennar um að lögbann yrði sett á
opinbera birtingu tölvupósta
hennar, sem tengdust Baugsmál-
inu.
Sjálf kveðst Jónína vera hæst-
ánægð með að dómstóllinn hafi
tekið málið hennar fyrir. Að öðru
leyti vildi hún sem minnst tjá sig
um málið.
Tölvupóstar sem farið höfðu á
milli Jónínu og ýmissa nafn-
greindra aðila voru birtir í Frétta-
blaðinu í september árið 2005. Á
meðal viðtakenda bréfanna voru
Styrmir Gunnarsson, ritstjóri
Morgunblaðsins, og Jón Gerald
Sullen berger, sem kom Baugsmál-
inu af stað með kæru á hendur Jóni
Ásgeiri Jóhannessyni, forstjóra
Baugs, í ágúst sama ár.
Í bréfunum komu fram ýmsar
upplýsingar um Baugsmálið og
aðdraganda þess.
Birting tölvupóstanna var í óþökk
þeirra sem þá skrifuðu, og reyndi
Jónína að koma í veg fyrir frekari
birtingu þeirra. Sýslumaðurinn í
Reykjavík setti lögbann þess efnis
á Fréttablaðið, en því var hnekkt í
Héraðsdómi Reykjavíkur og síðar
Hæstarétti. Í kjölfarið leitaði Jón-
ína til Mannréttindadómstólsins.
Í kæru sinni, sem var lögð fram
14. september 2006, heldur Jónína
því fram að íslenska ríkið hafi
brotið áttundu grein mannréttinda-
sáttmálans með því að hafna lög-
bannskröfu hennar á birtingu tölvu-
póstanna. Áttunda greinin kveður á
um friðhelgi einkalífs og fjöl-
skyldu.
Kæran hefur nú verið tekin upp
hjá dómstólnum, en aðeins lítið brot
af þeim málum sem berast honum
komast svo langt. Lögfróðir menn
sem Fréttablaðið ræddi við segja
að nú séu stærstu þröskuldarnir að
baki. Nær öruggt sé að dómstóllinn
komist að efnislegri niðurstöðu í
málinu.
Fyrsta skrefið í upptöku málsins
er spurningalisti sem dómstóllinn
hefur sent íslenska ríkinu. Þar er
meðal annars spurt hvort birting
tölvupóstanna hafi haft áhrif á rétt
kæranda til friðhelgis einkalífs og
bréfaskipta og hvort höfnun
íslenskra dómstóla hafi verið í sam-
ræmi við lög.
Ríkið hefur frest til 26. júní til að
svara spurningunum eða ljúka mál-
inu með sátt. salvar@frettabladid.is
Tölvupóstar Jónínu
fyrir Evrópudómstól
Mannréttindadómstóll Evrópu ætlar að taka upp mál Jónínu Benediktsdóttur
gegn íslenska ríkinu. Hún kveður mannréttindi sín hafa verið brotin þegar
dómstólar höfnuðu lögbannskröfu vegna birtingar tölvupósta í Baugsmálinu.
Í áttundu grein mannréttindasátt-
mála Evrópu segir:
■ 1. Sérhver maður á rétt til
friðhelgi einkalífs síns, fjölskyldu,
heimilis og bréfaskipta.
■ 2. Opinber stjórnvöld skulu eigi
ganga á rétt þennan nema sam-
kvæmt því sem lög mæla fyrir um
og nauðsyn ber til í lýðræðislegu
þjóðfélagi vegna þjóðaröryggis,
almannaheilla eða efnalegrar far-
sældar þjóðarinnar, til þess að firra
glundroða eða glæpum til verndar
heilsu manna eða siðgæði eða
réttindum og frelsi annarra.
FRIÐHELGI EINKALÍFS OG FJÖLSKYLDU
LÖGBANN Fulltrúar sýslumanns gera gögn um tölvupóstsamskipti Jónínu Bene-
diktsdóttur upptæk á skrifstofu fréttaritstjóra Fréttablaðsins í september 2005.
MENNTUN „Siðanefndin hefur ekki
frumkvæði að því að taka upp mál
og í öðru lagi segir í reglum henn-
ar að hún fjalli ekki um mál sem
hafa farið fyrir dómstóla,“ segir
Þórður Harðarson, for maður siða-
nefndar Háskóla Íslands.
Sem kunnugt er var prófessor
við háskólann, Hannes Hólm-
steinn Gissurarson, dæmdur
nýlega fyrir að nota verk rithöf-
undar án heimildar. Samkvæmt
siðareglum Háskólans samræm-
ist þetta ekki starfsvenjum kenn-
ara.
Helga Kress prófessor heldur
því að auki fram að Hannes hafi
einnig tekið verk fræðimanna
eins og Peters Hallberg, heiðurs-
doktors við skólann, og gert að
sínum eigin. Á það að hafa verið
gert í sama verki og Hannes var
dæmdur fyrir.
Spurður hvort nefndin myndi
skoða þann anga málsins, kæmi
kæra utan úr bæ, segist Þórður
ekki telja það, fyrst hluti þess
hafi farið fyrir dómstóla.
Þórður ítrekar að nefndin taki
ekki mál upp að fyrra bragði,
spurður hvort máli skipti að um
sé að ræða verk heiðursdoktors
við skólann.
„En ég tel að sú hlið málsins
væri í verkahring yfirmanns
stjórnsýslu skólans [Kristínar
Ingólfsdóttur rektors].“
Á skrifstofu rektors fengust
þær upplýsingar að málið væri í
skoðun. Rektor hefur sagst taka
dóminn alvarlega. - kóþ
Siðanefnd Háskólans tekur ekki upp mál Hannesar að eigin frumkvæði:
Málið er í verkahring rektors
HREINSUN Bílakirkjugarðurinn á
Garðsstöðum í Ísafjarðardjúpi
verður orðinn lítill um sig í haust
ef áætlanir Súðavíkurhrepps
ganga eftir. Að sögn Ómars Más
Jónssonar sveitarstjóra er verið
að finna mann til að taka að sér
hreinsunina, sem á að ljúka í
nóvember á þessu ári. Eftir hana
verða einungis um 40 til 60
bílhræ á Garðsstöðum en nú eru
þau 518 og er talið að þau vegi um
150 tonn. Það eru því í það
minnsta 478 bílhræ sem þarf að
fjarlægja. - jse
Bílakirkjugarður við Djúp:
Mörg hundruð
bílhræ á brott
FRÁ GARÐSSTÖÐUM Í haust er stefnt að
því að einungis 40 til 60 bílhræ verði
við bæinn Garðsstaði. FRÉTTABLAÐIÐ/RÓBERT
KOSOVO, AP Liðsmenn friðargæslusveita Sameinuðu
þjóðanna urðu í gær fyrir árásum reiðra mótmæl-
enda úr röðum Kosovo-Serba, er gerð var tilraun til
að koma dómhúsi í bænum Mitrovica nyrst í
Kosovo aftur undir stjórn SÞ-bráðabirgðastjórn-
sýslunnar þar. Serbneskir íbúar bæjarins höfðu í
síðustu viku hertekið bygginguna og hindrað
kosovo-albanska dómara í því að komast þangað til
starfa.
Átökin í gær milli grjótkastandi og að hluta til
vopnaðra mótmælenda og vopnaðra SÞ-friðar-
gæsluliða stóð yfir í nokkrar klukkustundir og
endaði með því að minnst 45 gæsluliðar og 70
mótmælendur særðust og lemstruðust. Þetta er
versta ofbeldið sem brotist hefur út í Kosovo eftir
að kjörin stjórnvöld Kosovo-Albana lýstu yfir
sjálfstæði Kosovo fyrir mánuði.
Yfirstjórn gæsluliðs NATO og SÞ-bráðabirgða-
stjórnsýslunnar í Pristina birtu sameiginlega
yfirlýsingu þar sem „banvænt ofbeldi, þar á meðal
byssuskot frá æstum múg“ í hinum serbneska hluta
Kosovska Mitrovica er fordæmt.
Um 100 manna lið SÞ-lögreglumanna og NATO-
friðargæsluhermanna handtóku 53 Serba sem
höfðu hersetið dómhúsið síðan á föstudag. Fjöldi
heimamanna safnaðist saman á hverjum degi við
bygginguna síðan þá. - aa
Til átaka kom við dómhús í serbneska hluta Norður-Kosovo í gær:
Heimamenn og gæsluliðar slást
FRÁ VETTVANGI Heiftarlega var tekist á við dómhúsið. Á annað
hundrað manns særðist. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
SJÁVARÚTVEGUR Loðnuskipið
Sighvatur Bjarnason VE fékk um
400 tonn af loðnu í tveimur
köstum norður af Öndverðarnesi
á Snæfellsnesi í gær og er
hugsanlegt að torfan hafi verið úr
vestangöngu sem margir hafa
verið að vonast eftir.
Helgi Valdimarsson skipstjóri
segir að þessi loðna eigi enn
nokkuð eftir áður en hún hrygni
en sú sem kom austan að er þegar
farin að hrygna. „Það er nokkuð
af loðnu hérna en annars er líka
eitthvað um síld svo það er erfitt
að greina eitt frá öðru og segja til
um hversu mikið er af loðnunni,“
segir Helgi. - jse
Loðnuveiði við Snæfellsnes:
Hugsanleg
vestanganga
HANNES HÓLMSTEINN GISSURARSON
WASHINGTON, AP Írakar eru
vonbetri varðandi framtíð sína en
þakka það ekki aðgerðum
Bandaríkjamanna í landinu,
samkvæmt niðurstöðum skoðana-
könnunar sem gerð var í Írak í
tilefni af því að fimm ár eru liðin
frá innrásinni í landið.
Þess í stað vilja Írakar þakka
íröskum stjórnvöldum, lögreglu
og eigin her fyrir batnandi
ástand. Þá telja 53 prósent Íraka
að fjölgun bandarískra hermanna
í Anbar-héraði og í Bagdad hafi í
raun gert ástandið verra. Eru það
snöggtum betri niðurstöður en í
sambærilegri könnun frá ágúst í
fyrra þegar 70 prósent Íraka
töldu aukningu á herafla Banda-
ríkjanna vera til hins verra. - ovd
Viðhorfskönnun í Írak:
Írakar vonbetri
um framtíðina
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
A
LL
I
Málið rannsakað í sex ár
Ákveðið verður á næstu vikum hvort
ákæra verður gefin út á hendur
Jóni Ólafssyni athafnamanni vegna
meintra skattsvika. Skattamál hans
hafa verið í rannsókn hjá Ríkisskatt-
stjóra í tæp sex ár. Þetta kom fram í
fréttum Stöðvar 2 í gærkvöldi.
SKATTAMÁL
SPURNING DAGSINS