Fréttablaðið - 18.03.2008, Blaðsíða 31
ÞRIÐJUDAGUR 18. MARS 2008 9íslensku tónlistarverðlaunin ● fréttablaðið ●
Björgólfur Guðmundsson er
fæddur í Reykjavík árið 1941.
Fljótlega eftir að hann lauk
stúdentsprófi frá Verzlunar-
skóla Íslands hafði hann tekið
að sér forystustörf við rekstur
fyrirtækja. Lengst af leiddi
hann Dósagerð Reykjavíkur,
þá Hafskip og síðar Pharmaco.
Í dag er Björgólfur formað-
ur bankaráðs Landsbanka
Íslands, formaður stjórnar
Portusar, sem er félag um
byggingu og rekstur Tónlistar-
hússins í Reykjavík, og þá er
hann formaður og eigandi
enska knattspyrnuliðsins West
Ham United. Björgólfur Guð-
mundsson er kvæntur Þóru
Hallgrímsson og eignuðust
þau fimm börn.
Flestum er kunnur stuðningur
Björgólfs Guðmundssonar og
fyrirtækja undir forystu hans
við listir, íþróttir og menningu.
Þar hefur tónlistin notið ríkulega.
Landsbankinn er aðalstyrktar aðili
Sinfóníuhljómsveitar Íslands og
er í hópi bakhjarla Listahátíðar í
Reykjavík. Þá veitti bankinn tón-
listarmönnum af yngri kynslóð-
inni skjól þegar hann rak í um tvö
ár Klink og bank. Þá styður Lands-
bankinn við ýmsar uppákomur og
tónleika á ári hverju eins og t.d.
Blúshátíðina sem er nýhafin. Þá
hefur Menningarsjóður Lands-
bankans lagt fjölda tónlistarmanna
lið á undanförnum árum með fjár-
styrkjum.
Björgólfur hefur styrkt ýmis út-
rásarverkefni íslenskra tónlistar-
manna, m.a. alþjóðlega ráðstefnu
sem haldin var hér á landi um
tækifærin sem felast í breyttum
sölu- og dreifileiðum tónlistar með
tilkomu netsins. Þá er mörgum
minnis stætt að Björgólfur reiddi
sjálfur fram einn milljarð ís-
lenskra króna til að tryggja að
Tónlistarhúsið í Reykjavík gæti
orðið sem glæsilegast.
Síðast en ekki síst er rétt að
nefna að hjónin Þóra og Björgólf-
ur standa að minningarsjóði um
dóttur þeirra Margréti sem lést af
slysförum fyrir um tuttugu árum.
Úr þeim sjóði hafa margir tugir
íslenskra tónlistarmanna fengið
stuðning á síðustu árum.
Björgólfur Guðmundsson hlýtur
Hvatningarverðlaun Samtóns árið
2008.
Jakob Frímann Magnússon, formaður
Samtóns.
Björgólfur hlýtur Hvatningarverðlaun
Björgúlfur Guðmundsson, formaður bankastjórnar Landsbankans.
Íslenskir tónlistarmenn voru á síðasta ári duglegir sem fyrr að
halda tónleika. Mesta athygli vakti hversu tónlistarmenn voru
duglegir að nýta sér Laugardalshöllina og heppnuðust allir þeir
tónleikar einstaklega vel.
Vel heppnað ís-
lenskt tónleikaár
Björk Guðmundsdóttir spilaði í Laugardalshöll í apríl til að fylgja eftir plötu sinni
Volta. Að sjálfsögðu var Höllin troðfull enda ekki á hverjum degi sem Björk heldur
tónleika hér á landi. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Rúnar Júlíusson flutti öll sín þekktustu lög á stórtónleikum í Laugardalshöll í október.
Fjöldi gesta kom fram á tónleikunum, sem þóttu heppnast með eindæmum vel.
FRÉTTABLAÐIÐ/VÖLUNDUR
Megas spilaði með hljómsveit sinni
Senuþjófunum í Höllinni í október í til-
efni af útkomu platnanna Frágangur og
Hold er mold, sem báðar hlutu einróma
lof gagnrýnenda. FRÉTTABLAÐIÐ/VÖLUNDUR
Björgvin Halldórsson spilaði á þrennum jólatónleikum í
Laugardalshöll í desember við góðar undirtektir. Fjöldi
gesta aðstoðaði hann á tónleikunum auk strengja sveitar
og barna-, gospel- og karlakóra. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Hljómsveitin Amiina hélt útgáfutónleika í Iðnó síðasta sumar til að
fagna sinni fyrstu plötu, Kurr. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Nýdönsk hélt tvenna tónleika í Borgarleikhúsinu í október þar sem hún söng öll sín
bestu lög í tilefni af tuttugu ára afmæli sínu. FRÉTTABLAÐIÐ/VÖLUNDUR