Fréttablaðið


Fréttablaðið - 18.03.2008, Qupperneq 39

Fréttablaðið - 18.03.2008, Qupperneq 39
ÞRIÐJUDAGUR 18. mars 2008 SEND IÐ OKK UR LÍNU Við hvetj um les end ur til að senda okk ur línu og leggja orð í belg um mál efni líð andi stund- ar. Grein ar og bréf skulu vera stutt og gagn orð. Ein göngu er tek ið á móti efni sem sent er frá Skoð ana síð unni á vis ir.is. Þar eru nán ari leið bein ing ar. Rit stjórn ákveð ur hvort efni birt- ist í Frétta blað inu eða Vísi eða í báð um miðl un um að hluta eða í heild. Áskil inn er rétt ur til leið- rétt inga og til að stytta efni. BRÉF TIL BLAÐSINS Tækifæri í Landeyjum Stefán Helgi Valsson leiðsögumaður skrifar um ferðaþjónustu: Tilkoma Landeyjahafnar við Bakka árið 2010 skapar nýtt og langþráð tækifæri í ferðaþjónustu á svæðinu. Í fyrsta sinn verður hægt að bjóða ferðamönnum í stutta en áhugaverða útsýnissiglingu um Vestmannaeyjar frá fastalandinu með lítilli fyrirhöfn. Í skoðunarferð frá Landeyjahöfn um Vestmannaeyjar sjást Elliðaey, Bjarnar- ey, suðurhluti Heimaeyjar, Suðurey, Hellisey, Súlnasker og kóróna meist- araverksins sem er Surtsey. Þaðan er hægt að sigla aftur til Landeyja eða skjótast til Þrídranga með viðkomu á Heimaey þar sem gestum gæfist m.a. tækifæri til þess að litast um í væntan- legri gestastofu Surtseyjar. Lundi er í öllum eyjunum á sumrin og í Súlnaskeri er næststærsta súlu- byggð landsins. Líklega tæki ferð eins og hér er lýst um 3-4 klukkustundir sem er einkar heppileg tímalengd sé tillit tekið til þarfa fólks í skipulögðum hópferðum á leið umhverfis landið. Nú fór illa hjá okkur Gunnsa Ægir Magnússon sérkennari skrifar um borgarmál: Það var einu sinni smiður sem hafði sér til aðstoðar handlaginn mann sem Gunnsi hét. Þegar vel tókst til við verk þeirra félaga var smiðurinn ánægður og hrósaði sjálfum sér í hástert. Ef ekki tókst nógu vel til og verk var illa unnið, sagði hann jafnan: „Ja, nú fór illa fyrir okkur Gunnsa.“ Þessa saga minnir mig á núverandi meirihluta borgarstjórnar. Ef mál er til umræðu sem meirihlutanum þykir gott, jákvætt og líklegt til vinsælda, er sagt að verkin tali, þetta sýni hvað nýi meirihlutinn sé nú flottur. Fari eitthvað miður, þá kveður við annan tón. Jú, auðvitað eru allir í borgarstjórn ábyrgir, minnihlutinn ekki síður. Klúðrið er sum sé öllum að kenna, en vel unnin verk eru á ábyrgð hins nýja meirihluta. Fleiri ættu kannski að taka þetta upp. Allt gott er mér/okkur að þakka, en á klúðrinu berum við sameiginlega ábyrgð! Ef þú veist ekki svarið getur þú opnað hringt í eða farið á er svariðjá 118 ja.is Símaskráin ÍS L E N S K A S IA .I S J A A 4 14 62 0 3/ 08

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.