Fréttablaðið - 18.03.2008, Síða 41

Fréttablaðið - 18.03.2008, Síða 41
ÞRIÐJUDAGUR 18. mars 2008 21 „Ég heiti í höfuðið á móðursystur minni sem var skírð í höfuðið á ömmu sinni. Þaðan kemur Ingveldar- nafnið en pabbi minn valdi Ýrar- nafnið og það var út í loftið,“ segir Ingveldur Ýr Jónsdóttir söngkona. Þegar Ingveldur var yngri var hún ekk- ert allt of ánægð með nafnið sitt enda þótti það svolítið skrítið. „Mér var strítt mikið á nafninu þegar ég var krakki. Ég bjó einn vetur á Húsa- vík og þar var ég uppnefnd Ingveldur Ýr gráfeldur kýr. Ingveldur var sjald- gæft nafn þá og margir héldu að þetta væri strákanafn, svona svipað og Ingólfur,“ útskýrir Ingveldur, sem hefur alla tíð verið kölluð Inga. Hún segir að gælunafnið komi sér sérstak- lega vel erlendis þar sem Ingveldur sé hálfgerður tungubrjótur. „Það geta allir sagt Inga en Ingveldur gengur misvel,“ segir hún. Með árunum hefur Ingveldur lært að meta nafnið sitt og í dag er hún hæstánægð með það. „Þetta er sterkt nafn enda skilst mér að Ingveldur þýði göfug valkyrja og Ýr merkir spjót. Ég er sem sagt göfug valkyrja með spjót. Það er orðið algengara að fólk heiti alls kyns óvenjulegum nöfnum og nú til dags þykir fæstum nafnið mitt skrítið,“ segir Ingveldur en sam- kvæmt þjóðskrá heita 215 konur Ing- veldur og 985 bera nafnið Ýr. NAFNIÐ MITT: INGVELDUR ÝR JÓNSDÓTTIR SÖNGKONA Margir héldu að Ingveldur væri strákanafn Ingveldur er ánægð með nafnið sitt í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA KOMUHÚSINU Á AKUREYRI í leikhús MERKISATBURÐIR 1760 Landlæknisembætti stofnað á Íslandi og varð Bjarni Pálsson fyrsti landlæknir. 1871 Kvennaskóli var stofnaður og tók til starfa 1874 eftir ávarp frá bæði körlum og kvenna til Ís- lendinga. 1967 Risaolíuskipið Torrey Canion strandaði fyrir utan Wales. Um 120 þúsund tonn af olíu fóru í hafið og ollu gífurlegum skaða. 1971 Hæstiréttur Danmerkur kvað upp úrskurð sem ruddi úr vegi síðustu hindruninni fyrir því að Íslendingar gætu fengið hand- ritin, sem höfðu verið geymd í Árnasafni í Kaupmannahöfn, af- hent. 2004 Lið Menntaskólans í Reykja- vík tapaði í Gettu betur, spurn- ingakeppni framhaldsskólanna, í fyrsta skipti síðan 1992. Sími Netið SjónvarpÞað er800 7000 • siminn.is E N N E M M / S ÍA / N M 3 2 5 5 2 NOKIA 5610 – skemmtilegur 3G sími með háhraða Internettengingu, góðri myndavél og mp3 spilara. Í honum er mögulegt að fara á Facebook, Myspace eða MSN. Frábært fermingartilboð MSN Faceboo k Myspace NOKIA 5610 – 3G Léttkaupsútborgun aðeins: 4.900 kr. 2.500 kr. á mánuði í 12 mánuði. Verð 34.900 kr. Tónlist, myndsímtal og háhraða- nettenging. við erlend leikhús svo eitthvað sé nefnt.“ María segist einnig ganga með þann draum í maganum að gera norðlenskum skáldkonum fyrr og síðar hærra undir höfði. „Ég gæti hugsað mér dagskrá byggða á verkum kvenna en mikið er til af leikritum, sögum og ljóðum eftir kjarnorkukonur héðan,“ nefnir María. Þá verður boðið upp á bæði ís- lensk og erlend verk en viðræður eru í gangi um skrif á að minnsta kosti tveimur íslenskum verkum fyrir leikfélagið. María segir það leggjast af- skaplega vel í sig að taka við leik- húsi í jafn miklum blóma. „Leikhúsið er orðinn ofsalega mikill hluti af bæjarlífinu og eiga unglingarnir til dæmis margir ár- skort, sem ég held að sé frekar sér- stakt. Ég hlýt því að skoða það sér- staklega vel hvað sé hægt að gera fyrir unga fólkið enda um framtíð- aráhorfendur leikhússins að ræða,“ segir María. vera@frettabladid.is AFMÆLISBÖRN Einar Bárðarson athafnamaður er 36 ára í dag. Kolbrún Björgólfs- dóttir (Kogga) listakona er 56 ára í dag. Heimir Karlsson dagskrárgerðar- maður er 47 ára í dag.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.