Fréttablaðið - 19.03.2008, Page 4
4 19. mars 2008 MIÐVIKUDAGUR
GENGIÐ 18.3.2008
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
157,6591
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
77,42 77,78
155,91 156,67
122,37 123,05
16,401 16,497
15,145 15,235
12,927 13,003
0,7942 0,7988
127,74 128,5
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
EFNAHAGSMÁL Greiðslubyrði vegna
bílalána og íbúðalána sem tekin
voru í erlendri mynt í haust hefur
aukist mikið undanfarna mánuði.
Eftir gengisfallið á mánudaginn
hefur höfuðstóll bílaláns í japönsku
jeni og svissneskum franka sem
tekið var í haust hækkað um helm-
ing. Miðað við tveggja milljóna
króna bílalán til sjö ára var geiðslu-
byrðin í haust um 31 þúsund krón-
ur á mánuði. Núna, eftir gengisfall-
ið, er höfuðstóll þessa láns rúmar
þrjár milljónir og greiðslubyrðin
rúmar 48 þúsund á mánuði.
Greiðslubyrðin
hefur aukist um
helming.
Höfuðstóll og
greiðslubyrði
húsnæðislána í
erlendri mynt
hafa einnig
vaxið. Húsnæð-
islán upp á 20
milljónir króna
sem tekið var til
40 ára í haust
stendur í 30,3 milljónum króna
eftir gengisfallið á mánudaginn.
Greiðslubyrðin nú er 176 þúsund
krónur og hefur hækkað um 60
þúsund frá því í haust.
Hans Hjartarson, sérfræðingur
hjá Frjálsa fjárfestingabankanum,
segir að fólk verði að gera sér grein
fyrir því að gengið sveiflist alltaf
upp og niður og hafa fjárhagslegt
bolmagn til að mæta því. Til lengri
tíma litið komi erlendu lánin betur
út en innlend lán því fólk borgi
minna til baka í erlenda láninu þar
sem vextirnir séu lægri.
Ásta S. Helgadóttir, forstöðu-
maður Ráðgjafarstofu um fjármál
heimilanna, segir að greiðslubyrð-
in hafi hækkað gífurlega en von-
andi snúist þróunin við. „Hættan
eru þessar skyndilegu gengis-
sveiflur. Það er spurning hvort fólk
hafi almennt búið sig undir þær.
Það skýrist kannski um næstu
mánaðamót þegar greiðsluseðlarn-
ir koma,“ segir hún.
Ásta bendir á að gengisbreyting-
arnar hafi mikil áhrif á heimilin í
landinu. Með almennum verð-
hækkunum hækki neysluvísitalan
og þá hækki verðbólgan líka.
Þannig verði keðjuverkun.
„Fyrsta ráðið og kannski auð-
veldast er að skera niður útgjöld
þannig að fólk lendi ekki í vanskil-
um. Fólk þarf að draga saman segl-
in og spara í öðrum útgjaldaliðum
til að borga af lánunum. Þau eiga
að njóta forgangs,“ segir hún.
Ásta ráðleggur fólki að skoða
skuldasamsetninguna, sérstaklega
þeim sem ráða ekki lengur við
mánaðarlega greiðslubyrði. „Það
versta sem maður gerir er að kom-
ast í vanskil og safna dráttarvöxt-
um. Fólk þarf að endurskipuleggja
fjármálin ef það er komið í erfið-
leika,“ segir hún og bendir á að þótt
blikur séu á lofti núna þá geti geng-
ið ekki endalaust fallið.
ghs@frettabladid.is
Greiðslubyrði íbúðalána
eykst um tugi þúsunda
Mánaðarleg greiðslubyrði af lánum í erlendri mynt hefur hækkað um helming á örstuttum tíma. Sérfræð-
ingur í fjármálum heimilanna ráðleggur fólki að draga saman seglin og láta afborganir lána ganga fyrir.
HÚSNÆÐISLÁN
Tekið í japönsku jeni og svissneskum franka í haust til 40 ára
Höfuðstóll í haust Höfuðstóll á mánudag Greiðslubyrði á mánuði í haust Greiðslubyrði á mánuði á mánudag
20 milljónir 30.303.335 116.216 krónur 176.422
BÍLALÁN
Tekið í japönsku jeni og svissneskum franka í haust til sjö ára
Höfuðstóll í haust Höfuðstóll á mánudag Greiðslubyrði á mánuði í haust Greiðslubyrði á mánuði á mánudag
2 milljónir 3.030.833 31.002 48.207
VEÐURSPÁ
Kaupmannahöfn
Billund
Ósló
Stokkhólmur
Gautaborg
London
París
Frankfurt
Friedrichshafen
Berlín
Alicante
Mallorca
Basel
Eindhoven
Las Palmas
New York
Orlando
San Francisco
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
5°
4°
5°
0°
2°
9°
8°
8°
1°
3°
18°
15°
7°
8°
20°
10°
30°
14°
1
6
Á MORGUN
Víðast hvassviðri eða
stormur. Lægir síðdegis.
10
10
-2
FÖSTUDAGUR
Hæg vestlæg eða
breytileg átt.
6 6
6
5
5
8
8
3
8
10
10 6
6
6
10
5
13
1
1
1
-2
1
2
-3
-3
ÞAÐ ER VORHRET
Á GLUGGA...
Það er þetta með
morgundaginn.
Vindur snýst í nótt
til hvassrar norðan
áttar með tölu-
verðri ofankomu á
norð-an og austan-
verðu landinu. Má
búast við stórhríð á
heiðum nyrðra og
eystra. Það lægir
seint á morgun og
þá skánar ferða-
veðrið. Já bakslag í
vorkomunni.
7
7
Sigurður Þ.
Ragnarsson
veður-
fræðingur
GENGISMÁL Námsmenn erlendis
hafa áhyggjur af þróun gengisins
síðustu daga. Samið er um náms-
lán fyrirfram til eins árs en lánin
sjálf eru greidd út eftir á. Náms-
lán sem samið var um í haust
miðað við gengið þá verða greidd
út í júní.
Ef svo fer fram sem horfir geta
íslenskir stúdentar erlendis orðið
fyrir mikilli kjaraskerðingu því
þeir framfleyta sér nú á bankalán-
um sem þeir tóku í haust. Banka-
lánin greiða þeir upp þegar náms-
lánin verða greidd út í júní.
Garðar Stefánsson, fram-
kvæmdastjóri SÍNE, segir að
gengisþróunin sé heitasta málið
hjá félagsmönnum SÍNE. „Þetta
bitnar virkilega á kjörum þeirra
og margir óttast bókstaflega að
fara á hausinn. Útlit er fyrir að
gengi krónunnar lækki áfram
gagnvart öðrum gjaldmiðlum.
Námslánin rýrast verulega mikið,“
segir hann.
Kristján E. Karlsson jarðfræði-
nemi býr ásamt kærustunni sinni,
Þóru Rún Úlfarsdóttur lækna-
nema, í Árósum. Hann segir að
þeim lítist ekki vel á þróunina.
Þrjátíu prósentum dýrara sé nú að
lifa í Danmörku, húsaleiga og
matur hafi hækkað mikið en náms-
menn verði bara að sníða sér stakk
eftir vexti. „Við verðum bara að
lifa ódýrara, versla hagstæðar í
matinn og kaupa minna. Maður
lifir bara einfaldara lífi. Það er
þannig sem þetta gengur fyrir sig.
Þetta er enginn heimsendir.“ - ghs
FRAMKVÆMDASTJÓRI SÍNE Garðar Stef-
ánsson segir gengisþróunina slæma fyrir
námsmenn erlendis. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Íslenskir námsmenn erlendis hafa áhyggjur af áframhaldandi þróun gengisins:
Verða fyrir kjaraskerðingu
FÍLADELFÍA, AP Barack Obama
reyndi í gær að gera sem minnst
úr ummælum sem prestur hans
hafði um samband kynþátta í
Bandaríkjunum.
Obama, sem á hvíta móður og
svartan föður, er ekki vanur að
fjalla eins mikið um kynþáttamál
og hann gerði í ræðu sinni í gær.
Ræddi hann mál eins og þrælahald
og uppbyggingu eftir hvirfilbylinn
Katrínu. Obama sagði samband
hvítra og svartra aldrei geta orðið
fullkomið en með hverri kynslóð
megi bæta sambandið. - ovd
Hörð barátta í Bandaríkjunum:
Obama ræðir
kynþáttamál
BARACK OBAMA Fyrrum prestur hans
er talinn hafa skemmt fyrir framboðinu
með ummælum um ósætti kynþátta.
FJÖLMIÐLAR Úrskurðarnefnd um
upplýsingamál hafnaði í gær
kröfu Ríkisútvarpsins um að
gildistöku úrskurðar nefndarinn-
ar frá 11. mars yrði frestað. Í
úrskurðinum kom fram að RÚV
ætti að veita Vísi aðgang að
ráðningarsamningum Þórhalls
Gunnarssonar og Sigrúnar
Stefánsdóttur dagskrárstjóra á
grundvelli upplýsingalaga en
þeirri beiðni hafði RÚV hafnað.
Rökstuðningur RÚV um að
fresta málinu var að yrði úrskurð-
inum framfylgt gæti það skaðað
samkeppnis- og réttarstöðu en á
þau rök féllst úrskurðarnefndin
ekki. - kdk
Úrskurðarnefnd:
Hafnar kröfu
Ríkisútvarpsins
ÁSTA S.
HELGADÓTTIR
GRAFARHOLT Greiðslubyrði húsnæðislána í erlendri mynt hefur hækkað gífurlega. Ásta S. Helgadóttir forstöðumaður Ráðgjafar-
miðstöðvar heimilanna, hvetur fólk til að skera fremur niður útgjöld en lenda í vanskilum með lán sín.
EFNAHAGSMÁL Hlutabréf á
mörkuðum í Bandaríkjunum
hækkuðu í gær eftir að Seðla-
banki Bandaríkjanna lækkaði
stýrivexti úr 3 prósentum í 2,25.
Einnig hafði jákvæð áhrif að
fjárfestingarbankarnir Lehman
Brothers og Goldman Sachs birtu
ársfjórðungsuppgjör sín.
Dow Jones hækkaði um 3,51
prósent. Fór vísitalan upp um 400
stig sem er mesta hækkun á
einum degi í fimm ár. Dow Jones
hafði hækkað um 420,41 stig í lok
dags og stóð í 12.392,66 stigum
þegar markaðir lokuðu. Þá
hækkaði Nasdaq um 91,25 stig og
stóð í 2.268,26 stigum við lokun
markaða. - ovd
Lækkuðu stýrivexti:
Hlutabréfin
hækkuðu