Fréttablaðið - 19.03.2008, Blaðsíða 11
MIÐVIKUDAGUR 19. mars 2008 11
Fátt er mikilvægara en að tryggja æsku landsins örugga og bjarta framtíð. Ef þú gefur fermingarbarni
5.000 kr. gjafabréf í Framtíðarsjóð bætir Sparisjóðurinn 2.000 kr. við gjöfina. Við höfum trú á framtíðinni.
Líttu við á spar.is og kynntu þér kosti Framtíðarsjóðsins
Há raunávöxtun innlánsreikninga
Verðtryggður reikningur
Hægt að semja um reglubundinn sparnað
Hægt að leggja inn hvenær sem er
Það þarf ekki kraftaverk
Við breytum 5.000 kr. í 7.000 kr.
spar.is
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
VIÐBURÐIR Í tilefni af Evrópuviku
gegn kynþáttamisrétti var staðið
fyrir viðburðum á Ísafirði,
Akureyri og á höfuðborgarsvæð-
inu í gær þar sem tónlistarmenn
stigu á svið og rætt var um
fjölmenningu.
Þeir sem standa fyrir viðburð-
unum eru Mannréttindaskrifstofa
Íslands, Þjóðkirkjan, Alþjóðahús,
Amnesty International, Rauði
krossinn, Ísland Panorama og
Soka Gakkai Íslandi sem eru
samtök búddista á Íslandi.
„Við viljum vekja fólk til
umhugsunar um þau jákvæðu
áhrif sem fjölmenningin hefur
fyrir Ísland,“ segir Guðrún D.
Guðmundsdóttir, framkvæmda-
stjóri Mannréttindaskrifstofu
Íslands. - jse
Alþjóðadagur:
Unnið að góðri
fjölmenningu
BRUSSEL, GENF, AP Metfjöldi flóttamanna frá
Írak sótti um hæli í Evrópusambandslöndum
og Bandaríkjunum í fyrra þrátt fyrir að
dregið hafi úr átökum í landinu.
Um 338 þúsund manns sóttu um hæli á
Vesturlöndum í fyrra en af þeim komu um 45
þúsund frá Írak. Íröskum hælisleitendum í
Evrópusambandslöndunum fjölgaði úr 19.375
árið 2006 í 38.286 í fyrra. Kemur þetta fram í
skýrslu framkvæmdastjóra flóttamannahjálp-
ar Sameinuðu þjóðanna sem gefin var út í
gær. Írakar eru nú orðnir stærsti hópur
flóttamanna sem sækir um hæli í löndum
Evrópusambandsins þar sem næstum einn af
hverjum fimm sem sóttu um hæli í Evrópu á
síðasta ári kom frá Írak.
Um 17 þúsund Írakar fluttust til Bandaríkj-
anna í fyrra. Í skýrslunni er varað við því að
fjöldi íraskra hælisleitenda sé farinn að
nálgast það sem hann var árið 2002, ári áður
en stjórn Saddams Hussein var steypt af stóli.
Þá var fjöldi íraskra flóttamanna rúmlega 52
þúsund.
Þrátt fyrir þessar háu tölur hafa flestir
íraskir flóttamenn flúið til nágrannalanda
Íraks. Í skýrslunni er hvatt til þess að ríkari
lönd leggi meira af mörkum til að aðstoða
meira en tvær milljónir Íraka sem margir
hverjir búa við óviðunandi aðstæður í
Sýrlandi, Jórdaníu og öðrum Mið-Austurlönd-
um. - ovd
Skýrsla framkvæmdastjóra flóttamannahjálpar Sameinuðu þjóðanna kynnt í gær:
Metfjöldi flóttamanna frá Írak
KONA Í ÍRAK Aldrei hafa fleiri flóttamenn frá Írak sótt
um hæli í Evrópu.
LÖGREGLUMÁL Lögreglan myndaði
brot tólf ökumanna í Flatahrauni
og ellefu ökumanna á Hraunbrún
í Hafnarfirði á mánudaginn.
Er eftirlit á þessum stöðum
hluti af sérstöku umferðar- og
hraðaeftirliti í og við íbúðargötur.
Unnið er eftir ábendingum frá
starfsmönnum svæðisstöðva
lögreglunnar. Að þessu sinni var
ómerkt lögreglubifreið með
myndavélabúnaði staðsett á
Flatahrauni og á Hraunbrún.
Reynsla lögreglunnar hefur sýnt
að notkun slíks búnaðar gefur
gagnlegar upplýsingar um ástand
umferðarmála og auðveldar leit
að lausnum. - ovd
Umferðar- og hraðaeftirlit:
Hraðakstur í
Hafnarfirði
BAGDAD, AP Þrjátíu og tveir menn
létu lífið og fimmtíu og einn er
særður eftir sjálfsmorðssprengju-
árás konu á hóp sjía-múslima
nærri mosku í Karbala í Írak á
mánudag.
Var hópurinn saman kominn á
helgum stað nærri gröf Imam
Hussein, sem er einn af helgustu
véum sjía. Sjö Íranar eru meðal
hinna látnu en lögreglan hefur
ekki upplýst annað en að sprengju-
maðurinn hafi verið kona.
Dick Cheney, varaforseti Banda-
ríkjanna, og forsetaframbjóðand-
inn John McCain eru báðir staddir
í Írak í tilefni af því að fimm ár
eru frá því að innrásin hófst. - ovd
Sjálfvígstilræði í Írak:
Tugir sjía fórust
í árás í Karbala
CHENEY Í BAGDAD Bandaríski varafor-
setinn ræðir við yfirmann bandaríska
heraflans í Írak við komuna þangað.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
LÖGREGLUMÁL Aukið eftirlit verður
með ölvunarakstri hjá lögregl-
unni í Árnes- og Rangárvallasýslu
um páskana.
Lögreglan á Selfossi og
lögreglan á Hvolsvelli verða með
aukið eftirlit á vegum í sýslunum
tveimur um páskana. Munu
lögreglumenn embættanna meðal
annars standa einhverjar vaktir
saman og fara í eftirlitsferðir.
Mikill fjöldi ferðafólks er í
umdæmum þessara lögregluliða
um páskana og ætlar lögreglan að
vera sýnileg við vegi. Auk þess
munu lögreglumenn fylgjast vel
með hraða ökutækja á vegum í
sýslunum. - ovd
Lögreglan á Suðurlandi:
Aukið eftirlit
um páskana