Fréttablaðið - 19.03.2008, Blaðsíða 8
UMHVERFISMÁL Skipulagsstofnun
hefur breytt vinnubrögðum við
undirbúning umhverfismats fyrir
stórar framkvæmdir, og tekur hér
eftir ákvörðun snemma um hvort
meta eigi umhverfisáhrif tengdra
framkvæmda saman.
„Að fenginni reynslu þykir rétt
að hafa þetta skýrt,“ segir Stefán
Thors, skipulagsstjóri ríkisins.
Þetta verklag verði væntanlega
fyrirmynd þegar komi að marg-
þættum framkvæmdum.
Bergur Sigurðsson, fram-
kvæmdastjóri Landverndar, segir
jákvætt að kæra samtakanna hafi
leitt til bættra vinnubragða.
Þegar fjallað var um umhverfis-
mat vegna álvers í Helguvík var
ekki fjallað sérstaklega um laga-
grein sem heimilar Skipulags-
stofnun að láta meta umhverfis-
áhrif tengdra framkvæmda
saman. Landvernd kærði því loka-
álit Skipulagsstofnunar til ráð-
herra, sem hyggst úrskurða í mál-
inu fyrir lok mars.
Skipulagsstofnun fjallaði hins
vegar sérstaklega um þennan
möguleika vegna fyrirhugaðs
álvers á Bakka við Húsavík, með
samráði við hagsmunaaðila.
Ákveðið var 13. febrúar að ekki
þyrfti að meta áhrif tengdra fram-
kvæmda saman.
„Við viljum að það sé skýrt hve-
nær ákvörðun er tekin, það kemur
ekki fram í lögum hvenær þetta
skuli gert og hvernig. Að fenginni
reynslu fannst okkur rétt að gera
þetta strax á matáætlunarstig-
inu,“ segir Stefán.
Þannig sé hægt að kæra þessa
ákvörðun sérstaklega til umhverf-
isráðherra, í stað þess að bíða
þurfi endanlegs álits Skipulags-
stofnunar um umhverfismat.
- bj
19. mars 2008 MIÐVIKUDAGUR
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
0
8
-0
4
9
5
Tökum við umsóknum núna
Kynntu þér námið á www.hr.is
· Rannsóknartengt meistaranám til ML-gráðu.
· Reiknað er með að námið taki tvö ár.
· Námið hentar ekki aðeins þeim einstaklingum sem
lokið hafa grunnnámi í lögfræði heldur einnig þeim
sem hafa háskólapróf í öðrum greinum.
· Nemendur sem hafa lokið grunnnámi í lögfræði geta
lokið fullnaðarprófi í lögfræði með meistaranáminu.
· Markmið námsins er að þjálfa og hvetja nemendur til
greinandi og gagnrýninnar hugsunar og vísindalegra
vinnubragða.
· Einstaklingsbundin námsáætlun.
· Helstu einkenni námsins eru mikið val um áherslur
og námsleiðir og margvíslegir möguleikar á sér-
hæfingu innan lögfræði og samþættingu við aðrar
greinar.
· Gefinn er kostur á að ljúka meistaranámi á alþjóða-
sviði.
Umsóknarfrestur um inngöngu í meistaranámið
haustið 2008 er til og með 31. mars.
MEISTARANÁM
VIÐ LAGADEILD
HÁSKÓLANS Í REYKJAVÍK
UMHVERFISMÁL Landvernd hefur
kært ákvörðun Skipulagsstofnunar
um umhverfismat vegna álvers á
Bakka við Húsavík til umhverfis-
ráðherra. Skipulagsstofnun ákvað í
febrúar að ekki þyrfti að meta
umhverfisáhrif álvers, virkjana,
raflína og hafnarmannvirkja í einni
skýrslu.
„Það er skoðun Landverndar að
sjónarmið umhverfisstjórnvalda og
sveitarfélaga eigi að vega þyngra
en framkvæmdaaðila og orkufyrir-
tækja,“ segir Bergur Sigurðsson,
framkvæmdastjóri Landverndar.
Í lögum um mat á umhverfis-
áhrifum segir að þegar fleiri en ein
matsskyld framkvæmd háðar hver
annarri séu fyrirhugaðar á sama
svæði geti Skipulagsstofnun ákveð-
ið að umhverfisáhrif verði metin
sameiginlega.
Fram kemur í áliti Skipulags-
stofnunar að fulltrúar Umhverfis-
stofnunar hafi talað fyrir því að
framkvæmdirnar yrðu metnar
saman. Sveitarstjórnir lögðu
áherslu á að sameina og samræma
umfjöllun um þessar tengdu fram-
kvæmdir.
Fulltrúar Landsnets, Landsvirkj-
unar og Þeistareykja ehf. voru and-
snúnir því að framkvæmdir yrðu
metnar saman. Raunar mátu þeir
það svo að slíkt væri ekki gerlegt
vegna umfangs, ólíkrar stöðu í
matsferli, ólíkra framkvæmdarað-
ila og ráðgjafa, og ólíkra áherslu-
þátta í matinu.
Fulltrúar iðnaðarráðuneytisins
voru einnig mótfallnir sameigin-
legu mati. Bentu þeir á að ekki hefði
verið ákveðið hvort álver yrði reist
á Bakka, en jarðhitasvæðin yrðu
virkjuð hvort sem álver rísi eða
ekki.
Af hálfu Alcoa kom fram að enn
væru tveir til þrír mánuðir í að
hægt yrði að ákveða hvort og hversu
stórt álver rísi á Bakka. Ákvarðanir
fyrirtækisins ættu ekki að hafa
áhrif á gang mála varðandi virkjan-
ir og orkuflutning, notandinn gæti
orðið annar en Alcoa.
brjann@frettabladid.is
Niðurstaðan vegna
álvers á Bakka kærð
Landvernd hefur kært ákvörðun Skipulagsstofnunar um að ekki þurfi að gera
eitt umhverfismat vegna allra framkvæmda tengdum hugsanlegu álveri á Bakka
við Húsavík. Eitt mat ekki gerlegt að mati Landsvirkjunar og Þeistareykja.
BAKKI Í febrúar var það mat Alcoa að tveir til þrír mánuðir væru í að ákvörðun um það hvort álver yrði reist á Bakka við Húsavík
yrði tekin. MYND/ÚR SAFNI
Vinnulagi Skipulagsstofnunar breytt í kjölfar kæru Landverndar vegna Helguvíkur:
Ákvörðun snemma á ferlinu
BERGUR
SIGURÐSSON
Framkvæmda-
stjóri
Landverndar.
DÓMSMÁL Hæstiréttur hefur dæmt
Litháann Tomas Malakauskas í 16
mánaða fangelsi. Þar með var
staðfestur dómur Héraðsdóms
Reykjaness yfir honum. Maðurinn
var dæmdur fyrir að rjúfa endur-
komubann til tíu ára er hann kom
til landsins síðastliðið haust. Hann
var með 26 grömm af amfetamíni
þegar hann var handtekinn.
Malakauskas, sem nú hefur
tekið upp annað eftirnafn, Arlau-
skas, átti 419 daga eftir af afplán-
un dóms sem hann hlaut fyrir þátt-
töku í svokölluðu líkfundarmáli í
Neskaupstað 2004. Þá faldi hann
ásamt tveimur öðrum líkið af
Vaidas Jucevicius í höfninni í Nes-
kaupstað með 400 grömm af amf-
etamíni innvortis. Hann fékk
reynslulausn þegar hann átti 14
mánuði eftir af fangelsisdómnum
í líkfundarmálinu. Hann hins
vegar rauf þessa reynslulausn
með því að koma hingað til lands
og verður því að afplána þá 14
mánuði sem hann átti eftir af fyrri
dómi. Fram kom við réttarhöldin
yfir Malakauskas að hann hefði
verið hér á landi mikinn hluta síð-
astliðins árs. Þegar tekið var mið
af sakaferli taldi héraðsdómur
rétt að dæma Tomas í 16 mánaða
fangelsi. Hann hefur verið í far-
banni síðan héraðsdómur dæmdi í
máli hans í desember. - jss
TOMAS MALAKAUSKAS Mætti fyrir Hér-
aðsdóm Reykjaness síðla á síðasta ári.
Líkfundarmaður dæmdur í Hæstarétti fyrir að rjúfa endurkomubann:
Malakauskas fékk 16 mánuði
Í 2. málsgrein 5. greinar laga um
mat á umhverfisáhrifum segir:
„Í þeim tilvikum þegar fleiri en
ein matsskyld framkvæmd eru
fyrirhugaðar á sama svæði eða
framkvæmdirnar eru háðar hver
annarri getur Skipulagsstofnun
að höfðu samráði við viðkomandi
framkvæmdaraðila og leyfisveit-
endur ákveðið að umhverfisáhrif
þeirra skuli metin sameiginlega.“
UMDEILT ÁKVÆÐI