Fréttablaðið - 19.03.2008, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 19.03.2008, Blaðsíða 6
6 19. mars 2008 MIÐVIKUDAGUR Þú getur alltaf treyst á prinsinn Hlíðasmára 8 • 201 Kópavogi s: 554 7200 • www.hafid.is EFNAHAGSMÁL Ríkisstjórnin ætlar ekki að aðhafast neitt sérstaklega þó að gengi íslensku krónunnar hafi lækkað mikið síðustu daga. Geir H. Haarde forsætisráðherra upplýsti það eftir ríkisstjórnar- fund í gærmorgun. „Við teljum ekki tilefni til þess eins og sakir standa en við erum auðvitað í góðu sambandi við Seðlabankann,“ sagði Geir. „Það verður líka að hafa í huga að fjár- málastraumarnir sem fara á milli landa taka ekki við fyrirmælum frá ríkisstjórnum, hvorki okkar né annarra.“ Geir segir að rekja megi vand- ann nú til ástandsins á alþjóðleg- um mörkuðum og því sé ekki til- efni til að endurskoða peningastefnuna. „Við megum ekki hrapa að ákvörðunum um breytingar í ljósi tímabundinna vandamála sem skapast annars staðar.“ Engin ástæða sé til endur- skoðunar flotgengisstefnunnar en rétt sé að hafa augun opin. Geir var spurður hvort endur- skoðun gjaldmiðilsmála væri fýsi- leg í ljósi ástandsins nú. Hann sagði það langtímamál sem skammtímamál mættu ekki trufla. Ríkisstjórnin hefur ekki látið meta áhrif gengislækkunarinnar á þjóðarbúið. - bþs Forsætisráðherra segir gengishrunið ekki gefa tilefni til að endurskoða peningastefnuna: Hröpum ekki að ákvörðunum GEIR H. HAARDE Forsætisráðherra telur ekki tilefni til sérstakra aðgerða í efna- hagsmálum en segir stjórnvöld í góðu sambandi við Seðlabankann. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA EFNAHAGSMÁL Stjórnarandstaðan sakar ríkisstjórnina um sinnuleysi og furðar sig á að hún ætli ekki að grípa til aðgerða vegna gengis- hruns krónunnar. Áhrifin séu með þeim hætti að ekki sé hægt að sitja aðgerðalaus hjá. „Við siglum inn í mestu hrær- ingar sem við höfum upplifað lengi,“ segir Árni Þór Sigurðsson, þingmaður Vinstri grænna. „Það þarf að ná tökum á verðbólgunni og lækka vextina og það gerist ekki með því að gera ekki neitt.“ Árni segir mikilvægt að styrkja gjaldeyrisforða Seðlabankans, það sé hægt með skuldabréfaútgáfu sem um leið geti aukið sparnað. Svo sé það áleitin spurning hvort bankinn eigi ekki að hefja vaxta- lækkunarferli þar sem vaxtastefn- an hafi mistekist. Hann hafnar hins vegar auknum stóriðjufram- kvæmdum til að örva hagkerfið Magnús Stefánsson Framsókn- arflokki tekur undir með Árna og þeim hagfræðingum sem bent hafa á mikilvægi þess að styrkja gjaldeyrisforða Seðlabankans. Slíkt snúi ekki stöðunni við á punktinum en með því sýni stjórn- völd þó einhverja tilburði og sendi frá sér mikilvæg skilaboð út á markaðinn. Magnús segir ástand- ið verða erfiðara eftir því sem tíminn líður. Og þótt hann boði ekki heimsendi sé ástæða til að hafa þungar áhyggjur. „Það er full ástæða til að hvetja fólk til að fara varlega í peningamálum því þetta mun bíta á budduna,“ segir hann. Magnús segir krónuna sannarlega hafa verið of sterka en hruninu núna fylgi gríðarlegt högg, ekki síst þegar stýrivextir eru jafn háir og raun ber vitni. Hann bendir líka á hve haldlítil rök þeirra eru sem segja mikil- vægt að halda krónunni svo Íslend- ingar hafi einhverja stjórn á efna- hagsmálum. Nú komi á daginn að menn hafi enga slíka stjórn. Jón Magnússon, Frjálslynda flokknum, segir mikilvægt að gæta þess að hjól atvinnulífsins stöðvist ekki, eða störfum fækki og fólki verði sagt upp. Hann eigi hins vegar erfitt með að benda á eitthvað sérstakt sem gera ætti þar sem stjórnarandstaðan hafi ekki sama aðgang og stjórnin að nákvæmum upplýsingum. „En öll teikn á lofti eru neikvæð og það verður að grípa til yfirvegaðra aðgerða svo ekki fari illa.“ bjorn@frettabladid.is Stjórnarandstaðan átelur aðgerðaleysið Þingmenn stjórnarandstöðuflokkanna furða sig á að stjórnvöld ætli ekki að bregðast við stórfelldu gengisfalli krónunnar. VG og Framsókn telja mikilvægt að styrkja gjaldeyrisforða Seðlabankans. Frjálslyndir óttast að störf geti tapast. JÓN MAGNÚSSON MAGNÚS STEFÁNSSON ÁRNI ÞÓR SIGURÐSSON SEÐLABANKI ÍSLANDS Árni Þór Sigurðsson og Magnús Stefánsson telja mikilvægt að gjaldeyrisforði Seðlabankans verði aukinn. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA DAGVISTUN Fimm starfsmenn á Leikskólanum Sjónarhóli í Grafarvogi hafa sagt upp og munu hætta störfum 16. apríl næstkomandi. Samkvæmt upplýsingum frá leikskólasviði Reykjavíkurborgar er ástæðan fyrir uppsögnunum ágreiningur um stjórnun skólans og er unnið að fullum þunga að ráðningu nýs starfsfólks svo að sem minnst röskun verði á leikskólastarfinu. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins hefur ástandið valdið óöryggi hjá nokkrum foreldrum sem hafa ákveðið að flytja börn sín í aðra leik- skóla. Þeir sem hafa sagt upp eru textílhönnuður, faglærður leikskólakennari, faglærður grunn- skólakennari, aðstoðarleikskólakennari og síðan starfandi leikskólastjóri. Þeir munu hætta störfum sama dag og Bergljót Jóhannsdóttir, ráðinn leikskólastjóri, kemur aftur til starfa eftir leyfi. Þeir sem hverfa frá munu vinna greinargerð um hluta þess sem ágreiningurinn snýst um og verður hún síðan send leikskólaráði og skrifstofustjóra leikskólasviðs Reykjavíkurborgar. Pláss er fyrir 64 börn á Sjónarhóli en þar eru nú 55 börn í vistun. - jse Uppsagnir á Leikskólanum Sjónarhóli: Starfsmenn fara og foreldrar flytja börnin í aðra leikskóla LEIKSKÓLINN SJÓNARHÓLL Fimm starfsmenn hafa sagt upp í leikskólanum og nokkrir foreldrar hafa afráðið að flytja börn sín í aðra skóla vegna ástandsins. HJÁLPARSTARF Um 200 fjölskyldur höfðu í gær sótt um páskaúthlut- un Fjölskylduhjálpar Íslands sem fer fram í dag. Af nógu verður að taka því gefendur hafa verið afar rausnarlegir. „Við höfum fengið 200 hamborgarhryggi frá Esju kjötvinnslu, 200 pakkningar af kjötbúðingi frá Kjarnafæði sem settur verður með páskamatnum, 2.000 brúnegg frá Brúneggjum, ís frá Kjörís, páskaöl frá Ölgerðinni og svona get ég lengi talið,“ segir Ásgerður Jóna Flosadóttir, formaður Fjölskylduhjálpar Íslands. Þar að auki hafa verið keyptir um 200 lítrar af mjólk og meðlæti með páskamatnum. Hún gerir ráð fyrir að um 20 sjálfboðaliðar vinni við úthlutun- ina í dag. - jse Fjölskylduhjálp Íslands: Úthlutar til um 200 fjölskyldna VIÐSKIPTI Glitnir hefur lokið sölu á breytanlegum skuldabréfum fyrir 15 milljarða króna. Eftir fimm ár breytast skuldabréfin í hlutafé í bankanum. Eftirspurn í útboðinu er sögð góð í tilkynningu en bréfin voru seld innlendum fagfjárfestum. Útgáfan og hækkun hlutafjárins er háð samþykki sérstaks hluthafafundar sem boðað hefur verið til í dag. Lárus Welding, forstjóri Glitnis, er ánægður með niðurstöðu útboðs- ins, enda hafði því verið lokað „á miklum óvissutíma á fjármála- mörkuðum“ sem endurspegli traust fjárfesta á starfi og skuldaraáhættu Glitnis. - óká Breytileg skuldabréf: Útgáfu lokið á óvissutíma STJÓRNMÁL Falasteen Abu Libdeh, Samfylkingunni, tók sæti í borgarstjórn Reykjavíkur í gær. Er hún fyrst innflytjenda til að setjast í borgarstjórn en Falasteen fæddist í Jerúsalem og fluttist sextán ára til Íslands. Í ræðu sinni fjallaði hún um móttöku innflytjenda. Sagði hún íslensku vera lykil að samfélaginu en hana hafi hún lært af góðum vinum sem kenndu henni. „Það eru ekki allir það heppnir að eignast íslenska vini. Þess vegna þarf skólinn og samfélagið að bera ábyrgð á því að þeir sem hingað flytjast fái tækifæri til þess að læra íslensku,“ sagði Falasteen í ræðu sinni. - bþs Falasteen Abu í borgarstjórn: Tungan er lykill að samfélaginu FALASTEEN ABU LIBDEH Skaðar dómurinn yfir Hann- esi Hólmsteini trúverðugleika Háskóla Íslands? Já 56,4% Nei 43,6% SPURNING DAGSINS Í DAG: Ætlar þú að fara í ferðalag um páskana? Segðu skoðun þína á vísir.is STJÓRNMÁL Í upphafi borgarstjórn- arfundar í gær kvaddi Ólafur F. Magnússon, borgarstjóri sér hljóðs til að draga til baka fyrri ummæli sín um Óskar Bergsson, borgar- stjórnarfulltrúa Framsóknar- flokksins. Ummælin lét Ólafur falla um Óskar á fundi borgarstjórnar 4. mars síðastliðinn og voru þau á þá leið að borgar- stjórn setti niður með nærveru Óskars. Hafði Óskar beint fyrirspurn til borgar- stjóra sem varðaði aðkomu aðstoðarmanns hans að deiliskipu- lagsvinnu við Laugaveg. Í ræðu sinni í gær sagði Ólafur að á fundinum hefðu fallið orð sem hefðu betur verið látin ósögð. - ovd Fyrirspurnin kom á óvart: Ólafur dró um- mælin til baka ÓLAFUR F. MAGNÚSSON EFNAHAGSMÁL Gylfi Arnbjörnsson, framkvæmdastjóri ASÍ, furðar sig á því að ríkisstjórnin hafi ekki tilkynnt um neinar aðgerðir á þeim vanda sem við blasir í efnahagslífinu. Um ummæli Geirs H. Haarde forsætisráðherra í gær segir Gylfi: „Ég átti að minnsta kosti von á tíðindum sem væru líkleg til að skapa ró á fjármálamörkuðum en blaðamannafundurinn sýndi að það er ekkert á borðinu og ég veit ekki alveg hvort það hafi dugað til að skapa ró.“ Hann segir að eitt af því versta sem gerst gæti væri að samdráttur í efnahagslífi myndi samtvinnast við fjármálaóstöðug- leika. „En einhvern veginn finnst okkur nú að við séum tekin að reka á þeim feigðarósi.“ - kdk Framkvæmdastjóri ASÍ: Skapar varla ró að gera ekkert KJÖRKASSINN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.