Fréttablaðið - 19.03.2008, Blaðsíða 62

Fréttablaðið - 19.03.2008, Blaðsíða 62
42 19. mars 2008 MIÐVIKUDAGUR sport@frettabladid.is FÓTBOLTI Vandamál Landsbanka- deildarliðanna Fjölnis og Þróttar eru að leysast. Reykjavíkurborg hefur gefið grænt á ljós á fram- kvæmdir við stúkur félaganna og hefur lofað því að stúkurnar verði klárar fyrir sumarið. Reykjavík- urborg mun þess utan sjá um framkvæmdirnar. Engin áhorfendaaðstaða er til staðar í Grafarvoginum, aðeins grasbrekka. Á þeim stað verður komið fyrir stúku með 500 sætum. Jón Þorbjörnsson, framkvæmda- stjóri Fjölnis, sagði að grænt ljós hefði komið frá Reykjavíkurborg síðastliðinn föstudag sem og vil- yrði fyrir því að stúkan yrði klár fyrir 15. maí þegar Fjölnir tekur á móti KR í fyrsta heimaleik sínum í Landsbankadeildinni. Aðspurður áætlaði Jón að fram- kvæmdin kostaði á milli 20-25 milljónir króna. Hann sagði það einnig létti að Reykjavíkurborg myndi sjá um framkvæmdina í stað þeirra. Forsteyptum eining- um verður komið fyrir í brekk- unni og sæti skrúfuð ofan á það. Ásmundur Vilhelmsson, fram- kvæmdastjóri Þróttar, segir mál Þróttara einnig vera í jákvæðum farvegi og allt bendi til þess að Valbjarnarvöllur geti tekið á móti áhorfendum 10. maí þegar Fjölnir kemur einmitt í heimsókn. Koma á fyrir um 600 sætum í stúkunni á Valbjarnarvelli sem og við hlið hennar. Völlurinn hefur verið í tals- verðri niðurníðslu undanfarin ár og vallarsvæðið ekki huggulegt. Varamannaskýlin löngu úr sér gengin til að mynda en gömlu skýl- in á Laugardalsvellinum munu flytjast upp á Valbjarnarvöll. Veit- ingaaðstaða hefur einnig verið bágborinn og Ásmundur segir að unnið verði í endurbótum á öllum þessum málum fyrir 10. maí. Völlurinn sjálfur var tekinn upp að stórum hluta eftir síðasta sumar enda ansi illa farinn. Ásmundur sagði of snemmt að tjá sig um í hvaða ásigkomulagi völl- urinn yrði 10. maí en sagðist von- ast það besta. henry@frettabladid.is Fjölnir og Þróttur verða klár með stúku í sumar Forráðamenn Fjölnis og Þróttar búast við því að geta tekið á móti áhorfendum í nýjum og endurbættum stúkum í sumar. Reykjavíkurborg hefur gefið grænt ljós á framkvæmdir sem eiga að vera klárar fyrir Íslandsmótið. GRASIÐ VÍKUR FYRIR STEYPU Á þessu svæði Fjölnismanna mun koma 500 manna stúka með sætum fyrir sumarið. Hún mun þó eflaust hrökkva skammt í fyrsta leik er KR mætir með alla sína stuðningsmenn í Grafarvoginn. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR HANDBOLTI Í gær var dregið í undanúrslit Evrópukeppnanna í handbolta. Ólafur Stefánsson og félagar í Ciudad Real mæta þýska liðinu Hamborg í undanúrslitum en í hinni viðureigninni mætast núverandi meistarar í Kiel og Barcelona. Ólafur og félagar unnu keppnina árið 2006 og flestir búast við því að þeir komist í úrslit nú gegn þýska liðinu Kiel. Arnór Atlason og félagar í FCK eru í undanúrslitum í Evrópu- keppni félagsliða en þar mun FCK mæta slóvenska liðinu Cimos Koper. Í hinni viðureign- inni mætast spænska liðið Aragon og þýska liðið Nordhorn. Í undanúrslitum Evrópukeppni bikarhafa eigast síðan við þýska liðið Rhein-Neckar Löwen, sem Guðjón Valur Sigurðsson hefur samið við, og spænska liðið Valladolid annars vegar og svissneska liðið Kadetten Schaffhausen og ungverska liðið Fotex Veszprém hins vegar. - hbg Dregið í handboltanum: Ciudad Real mætir HSV AFTUR MEISTARI? Ólafur Stefánsson vann Meistaradeildina með Ciudad Real árið 2006. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM U-20 ára kvennalandslið Íslands hefur leik í riðli sínum í forkeppni fyrir HM 20 ára landsliða í kvöld kl. 20.00 þegar Ísland mætir Ungverjalandi. Ísland leikur í riðli með Ungverjalandi, Írlandi, Serbíu og Búlgaríu og fara leikirnir allir fram í Digranesi dagana 19.-23. mars. Sigurlið riðilsins vinnur sér svo þátttökurétt á lokakeppni HM 20 ára landsliða sem fram fer í Makedóníu í ágúst. Stefán Arnarson, þjálfari liðsins, kvað lið sitt eiga erfitt verkefni fyrir höndum en var bjartsýnn á gott gengi liðsins þegar Fréttablaðið tók stöðuna á honum í gær. „Það fer náttúrulega bara eitt lið áfram og við erum að fara að mæta mjög sterkum og rótgrónum handboltaþjóðum eins og Ungverjalandi og Serbíu, þannig að þetta verður mjög erfitt og krefjandi verkefni en við erum með gott lið og stelpurnar eru ákveðnar að standa sig,“ sagði Stefán sem sér ákveðna möguleika í stöðunni fyrir íslenska liðið. „Bæði Ungverjaland og Serbía eru með líkamlega sterkari og hávaxnari lið en við og ég er búinn að sjá nokkra leiki með þessum þjóðum, en á móti kemur þá tel ég að við séum með sprækara og hraðara lið og við munum reyna að keyra upp hraðann í leikjunum,“ sagði Stefán sem er ánægður með breiddina hjá íslenska liðinu. „Við erum með átta leikmenn sem voru valdir í A-landsliðið á dögunum og þær hefðu jafnvel getað verið fleiri. Flestar stelpurnar í U-20 hópnum eru þegar orðnar burðarásar í sínum liðum í N1-deildinni og það er auðvitað jákvætt en í hópnum erum við líka með fimm stelpur sem eru líka lögleg- ar með U-18 ára landsliðinu þannig að framtíðin er vissulega björt í kvennahandboltanum,“ sagði Stefán sem telur að stuðn- ingur áhorfenda geti skipt sköpum um gengi liðsins. „Það skiptir gríðarlega miklu máli að stelpurnar fái góðan stuðning áhorfenda og að Digranesið verði álvöru heimavöllur fyrir liðið og þetta verður vonandi flott umgjörð og skemmtilegur handbolti sem allir handboltaunnendur og aðrir ættu ekki að láta framhjá sér fara,“ sagði Stefán. STEFÁN ARNARSON ÞJÁLFARI: TELUR MÖGULEIKA U-20 ÁRA LANDSLIÐS KVENNA ÁGÆTA Í FORKEPPNI HM Mikilvægt að skapa stelpunum góðan heimavöll ÍÞRÓTTIR Það var söguleg stund í Laugardalnum í gær þegar úthlut- að var í fyrsta skipti úr ferðasjóði íþróttafélaga. ÍSÍ var um leið falin umsjón og umsýsla með sjóðnum. Ríkið hefur þegar samþykkt að setja 180 milljónir króna í sjóðinn á þriggja ára tímabili. 30 milljón- um er úthlutað fyrir árið 2007, 60 milljónir árið 2009 og loks 90 millj- ónir árið 2009. Alls bárust 138 umsóknir í sjóð- inn að þessu sinni. Heildarkostn- aður umsókna var um 260 milljón- ir en heildarkostnaður styrkhæfra umsókna var ríflega 223 milljónir króna. Þess má geta að einungis ferðir sem töldu 150 km eða lengra, aðra leið, töldust styrk- hæfar. Íþróttabandalag Akureyrar fékk hæsta styrkinn að þessu sinni eða rúmlega átta milljónir króna, Vestmannaeyingar komu næstir með 3,7 milljónir. Lægsta styrkinn fékk Ungmenna- og íþróttasam- band Dalamanna og N-Breiðfirð- inga en þeir fengu í sinn hlut 7.613 krónur og fara eflaust ekki langt á því miðað við bensínverðið þessa dagana. - hbg Úthlutað úr ferðasjóði íþróttafélaga í fyrsta skipti: Akureyringar fengu átta milljónir króna SAMNINGAR UNDIRRITAÐIR Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráð- herra og Ólafur Rafnsson, forseti ÍSÍ, skrifa undir samning um ferðasjóðinn. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN > Örn og Jakob úr leik Örn Arnarson og Jakob Jóhann Sveinsson komust ekki áfram í sínum greinum á fyrsta degi Evrópumótsins í sundi sem hófst í Hollandi í gær. Örn keppti í tveimur greinum, varð í 20. sæti í 100 metra baksundi á 56,14 sek- úndum (1/10 úr sek. frá sínum besta) og í 24. sæti í 50 metra flugsundi á 24,78 sekúndum en Íslandsmet hans í þeirri grein er 24,02 sekúndur. Örn var aðeins 24/100 úr sek. frá því að komast áfram í undanúrslitin í baksundinu. Jakob Jóhann endaði í 30. sæti í 100 metra bringusundi á 1.02,86 mínútu, eða 3/10 úr sekúndu frá sínum besta tíma. Jakob Jóhann var 2,75 sekúndum á eftir fyrsta manni í sundinu. FÓTBOLTI Kevin Keegan, knatt- spyrnustjóri Newcastle, telur að Michael Owen sé enn þá sóknar- maður á heimsmælikvarða sem sé liði sínu mjög mikilvægur, sér í lagi á þessum síðustu og verstu tímum hjá Newcastle. „Ég er gríðarlega ánægður með að vera með mann eins og Michael Owen í liði mínu og leiðtogahæfileikar hans og vinnusemi hafa verið fyrsta flokks síðan ég tók við liðinu. Fólk hefur verið að gagnrýna hann þar sem hann er stórt nafn í boltanum en hann hættir ekki að skora og er mjög sniðugur leikmaður sem er klárlega enn á heimsmælikvarða,“ sagði Keegan í viðtali á blaðamannafundi eftir 1-1 jafnteflisleik Newcastle gegn Birmingham í fyrrakvöld. Hinn 28 ára gamli Owen hefur skorað sjö mörk í ensku úrvals- deildinni til þessa en hann hefur, eins og oft áður, átt við meiðsli að stríða á tímabilinu. - óþ Kevin Keegan, Newcastle: Owen enn frá- bær leikmaður BJARGVÆTTURINN Kevin Keegan bindur miklar vonir við Michael Owen í harðri fallbaráttu Newcastle. NORDIC PHOTOS/GETTY
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.