Fréttablaðið - 19.03.2008, Blaðsíða 10
19. mars 2008 MIÐVIKUDAGUR
RV
U
N
IQ
U
E
03
08
01
Rekstrarvörur
- vinna með þér
Réttarhálsi 2 • 110 Reykjavík
Sími: 520 6666 • Fax: 520 6665
sala@rv.is • www.rv.is
Glæsilegt yfirbragð
- við öll tækifæri
Á tilboðií mars 2008LinStyle dúkar og servíettur, NexxStyle servíettur, yfirdúkar og kerti
NexxStyle servíettur
39cm 80stk, í ýmsum litum
296 kr.
Dúkur húðaður
1,20x15m hvítur
1.990 kr.
Yfirdúkur
60cmx25m í ýmsum litum
2.388 kr.
Kerti rústik
13x7cm í ýmsum litum
239 kr.
FRAMKVÆMDIR Dansk-norskt hönn-
unarteymi hefur skilað af sér
skýrslu um frumhönnun nýs
háskólasjúkrahúss. Skýrslan tekur
til starfsemi LSH, heilbrigðisvís-
indadeilda Háskóla Íslands og Til-
raunastöðvar Háskóla Íslands í
meinafræði að Keldum. Beðið er
leyfis ráðuneyta til að hefja end-
anlega hönnun. Staðið verður fyrir
samkeppni um hönnunina þegar
samþykki ráðuneytanna liggur
fyrir.
Einstaka deildir hafa verið
unnar ítarlegar en venja er á þessu
stigi undirbúnings. Gerðar hafa
verið töluverðar breytingar á
skipulagi sjúkrahússins. Legu-
deildarálmur verða tvær á sjö
hæðum hvor í stað fjögurra deilda
áður. Legurýmum hefur þó ekki
fækkað. Álmurnar eru skipulagð-
ar sem tveir krossar á hvolfi og
styttast vegalengdir verulega með
því.
Ingólfur Þórisson, fram-
kvæmdastjóri verkefnisins, segir
að frá legudeildunum sé stutt að
fara frá miðjunni þar sem þjón-
ustan sé. „Gangarnir eru ekki
langir. Við erum að tala um þrjár
þyrpingar með níu rúmum hver
og svo er hjúkrunarstöð inni í
hverri þyrpingu. Á nóttunni er
hægt að draga þyrpingarnar
saman og vera með eina sameig-
inlega hjúkrunarstöð í miðjunni.
Með þessu móti losnum við við
langa sjúkraganga. Vegalengd-
irnar verða styttri,“ segir hann.
Norðanmegin við tengiálmuna
er meðferðar- eða bráðakjarni
með skurðstofum og bráðamót-
töku og þar gætir minni dagsbirtu
en annars staðar á spítalanum.
Ingólfur segir að fyrirmyndin sé
bandarísk. „Sjúkrahús í Banda-
ríkjunum eru miklu breiðari
byggingar en í Evrópu og minna
lagt upp úr dagsbirtu. Í verkefn-
inu er gegnum gangandi að öll
rými njóti dagsbirtu en í bráða-
rýminu viljum við fá starfsemina
sem þéttasta og þar höfum við
orðið að gefa aðeins eftir í kröfu
um dagsbirtu í einstökum rýmum
til að fá sem best skipulag og
flæði inn í bráðamóttökuna.“
Rannsóknastofur spítalans og
Háskólans verða í byggingu sem
liggur á mörkum spítalans og
háskólans vestast á spítalasvæð-
inu.
Vestan við þær eru bygging
Háskóla Íslands og Rannsókna-
stöð HÍ í meinafræði. Austan við
aðalinngang verða dag- og göngu-
deildir.
ghs@frettabladid.is
Bíða leyfis til að hefja
endanlega hönnun
Frumhönnun nýs háskólasjúkrahúss liggur fyrir. Töluverðar breytingar eru
gerðar. Legudeildaálmur eru tveir krossar og vegalengdir styttast. Bráðamót-
taka er að bandarískum hætti með minni dagsbirtu en annars staðar.
NÝTT HÁSKÓLASJÚKRAHÚS Yfirlit yfir spítalasvæðið eins og dönsku og norsku hönnuðirnir leggja til að það verði. Legudeildirnar
eru í krossunum sem liggja á hvolfi út frá tengibyggingunni. Legudeildirnar verða sólríkar og bjartar en bráðamóttakan er skipu-
lögð að bandarískri fyrirmynd og þar eru gerðar minni kröfur um dagsbirtu.
Hringbraut
Eiríksgata
Leifsgata
Bar
óns
stíg
ur
Gamla Hringbraut
Sn
or
ra
br
au
t
Bergstaðastræ
ti
Laufásvegur
Sm
áragata
Fjölnisvegur
1
2
3
4 5
6 7
9
8
10
11
Háskólasjúkrahúsið
samkvæmt nýju tillögunni
1
2
3
4
5
6
7
9
8
10
11
12
13
Eldhús
Sjúklingahótel
Kvennadeild
Barnaspítali
Gamli spítalinn (1930)
Hjúkrunarskólinn
Geðdeild
Dag- og göngudeildir
Aðalinngangur
Legudeildir (7 hæðir)
Legudeildir (7 hæðir)
Rannsóknastofur LSH og HÍ
Rannsóknastöð HÍ í meinafræði
Bráðakjarni
Háskóli
Íslands
13
12
Gamli
kjarni
M
ím
is
ve
gu
r
FANGELSISMÁL Met varðandi fjölda
einstaklinga er afplána fangelsis-
refsingu í samfélagsþjónustu var
slegið í gær.
Þá voru nær 30 einstaklingar
að vinna í samfélagsþjónustu
víða um landið á einum og sama
deginum. Í heildina eru rúmlega
100 manns í samfélagsþjónustu á
hverjum tíma. Fjölgun einstakl-
inga sem afplána fangelsisrefs-
ingu í samfélagsþjónustu er í
samræmi við áherslur fangelsis-
yfirvalda að leita leiða til að
fullnusta fangelsisrefsingar utan
fangelsa, þó þannig að öryggi
almennings sé tryggt og almenn
og sérstök varnaðaráhrif refs-
inga nái fram að ganga.
„Oftast mæta dómþolar einu
sinni í viku eða hálfsmánaðar-
lega, í fjóra tíma í senn,“ segir
Halldór Valur Pálsson stjórn-
málafræðingur, sem hefur
umsjón með samfélagsþjónustu
hjá Fangelsismálastofnun ríkis-
ins. „Það vinnur enginn minna en
40 stundir í samfélagsþjónustu á
tveggja til þriggja mánaða tíma-
bili. Þetta getur því dreifst býsna
mikið hjá okkur yfir tímabilið
þannig að það kannski mæta tíu
til tólf einstaklingar í senn á
hverjum degi. En að þessu sinni
mættu þrjátíu dómþolar á einum
degi.“ - jss
Þrjátíu dómþolar við vinnu úti í samfélaginu á einum og sama deginum:
Metdagur í samfélagsþjónustu
FANGELSISMÁL Björn Bjarnason
dómsmálaráðherra heimsótti
fangelsið á Litla-Hrauni á mánu-
dag og ræddi þar framtíðarupp-
byggingu fangelsisins ásamt Páli
Winkel, forstjóra Fangelsismála-
stofnunar, Margréti Frímanns-
dóttur, forstöðumanni Litla-
Hrauns, og öðrum starfsmönnum
fangelsisins og ráðuneytis. Eftir
fundinn ritaði Björn á heimasíðu
sína að hann teldi brýnt að stefna
um læknis- og meðferðarþjón-
ustu fanga yrði mótuð í sam-
vinnu dómsmálaráðuneytis og
heilbrigðisráðuneytis líkt og
þegar hefur verið gert um mennt-
unarmál fanga í samvinnu
menntamálaráðuneytis og dóms-
málaráðuneytis.
„Þessi mál eru á forræði dóms-
málaráðuneytis en ég mun taka
hugmyndum þeirra og allri mála-
leitan í tengslum við þetta vel,“
segir Guðlaugur Þór Þórðarson
heilbrigðisráðherra um hugmynd-
ir dómsmálaráðherra.
Rúmlega sjötíu prósent fanga á
Litla-Hrauni mældust með fíkni-
efni í blóði í úttekt Fangelsismála-
stofnunar seint á síðasta ári. „Það
er forgangsverkefni að koma á fót
öflugri meðferðardeild fyrir fanga
og auka þar með möguleika þeirra
á að komast út úr fíkniefnaneyslu.
Mun líklegra er að þeir gerist ekki
brotlegir aftur er afplánun lýkur,
hafi þeir látið af neyslu fíkniefna,“
segir Páll Winkel, forstjóri Fang-
elsismálastofnunar. - kdk
Dómsmálaráðherra segir stefnumótun um læknisþjónustu fanga brýna:
Meðferðardeild í fangelsið í forgang
LITLA-HRAUN Forstjóri Fangelsismála-
stofnunar segir öfluga meðferðardeild
fyrir fanga forgangsverkefni.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA