Fréttablaðið - 19.03.2008, Blaðsíða 33
Ísmót Landssambands hestamannafélaga, ÞEIR
ALLRA STERKUSTU, verður haldið í Skautahöll-
inni í Reykjavík 29. mars.
Úrtaka fyrir mótið verður í Skautahöllinni á skír-
dag, fimmtudaginn 20. mars. Tíu bestu í henni kom-
ast áfram.
Að venju verður landsliðsknöpum frá því á síðasta
heimsmeistaramóti boðin þátttaka. Einnig stjörnum
hinna ýmsu móta vetrarins. Flottustu keppnis- og
sýningahross landsins verða því saman komin á einu
og sama ísmótinu – Þeim allra sterkustu! Þetta er í
fjórða sinn sem mótið er haldið. Allur ágóði rennur til
styrktar landsliðinu í hestaíþróttum. Þátttaka í mót-
inu er takmörkuð, aðeins þeir bestu komast að.
Sérstök keppni stóðhesta er liður í dagskrá móts-
ins. Þar koma fram margir af glæsilegustu grað-
hestum landsins. Það verður því mikið um dýrðir í
Skautahöllinni þennan síðasta laugardag marsmán-
aðar. Almenningi er bent á að mótin í Skautahöllinni
hafa reynst frábær fjölskylduskemmtun. Það ríkir
jafnan mikil stemning og áhorfendur eru virkir þátt-
takendur.
MIÐVIKUDAGUR 19. MARS 2008
ÍÞRÓTT • MENNING • LÍFSSTÍLL
lh hestar
Sigurbjörn Björnsson á Lundum í
Borgarfirði var kosinn í ræktunar-
nefnd FEIF á ársfundi samtakanna
hérlendis í febrúar. Sigurbjörn
er hrossabóndi og sat þrettán ár í
stjórn og varastjórn LH. Frá Lund-
um hafa komið þekkt kynbótahross,
svo sem stóðhestarnir Auður og
Bjarmi, og móðir hans, Sóley, sem
stóð efst á fjórðungsmóti á Kald-
ármelum 1997. Nýja verkefnið
leggst vel í Sigbjörn, sem segir það
minna á LH starfið. En mun hann
beita sér fyrir einu öðru frem-
ur? „Ég mun reyna að láta gott af
mér leiða. Brýnasta verkefnið er
að stuðla að sem mestri vegferð og
kynbótaframförum íslenska hests-
ins í FEIF-löndunum. Þar er víða
mikið verk óunnið.“
Sigurbjörn í rækt-
unarnefnd FEIF
Fundur LH og Léttis á Akureyri
um öryggis- og skipulagsmál,
haldinn í Brekkuskóla á Akureyri
29. febrúar 2008, skorar á bæjar-
yfirvöld á Akureyri að falla frá
hugmyndum um skipulag á svæði
Glerárdal fyrir akstursíþróttir í
námunda við hesthúsahverfi Ak-
ureyrar, þar sem þessi starfsemi
fer ekki saman. Telur fundurinn
nauðsynlegt að finna aðrar lausnir
á málefninu, því ljóst má vera að
hvorugt svæðið á möguleika á því
að þróast eðlilega til framtíðar ef
svo fer fram sem horfir.
Áskorun til
bæjaryfirvalda Tvö stór ísmót voru haldin í Evr-
ópu um síðastliðna helgi. Annað í
Árósum í Danmörku, hitt í Berlín
í Þýskalandi. Áhorfendur skiptu
þúsundum og verðlaun voru veg-
leg. Ísmótið í Árósum var nú hald-
ið í áttunda sinn. Þar er eingöngu
keppt í tölti, en einnig er sérstök
stóðhestasýning. Íslenskir knapar
hafa verið sigursælir á þessu móti.
Jóhann Skúlason hefur unnið það
fjórum sinnum. Að þessu sinni var
það Þórarinn Eymundsson á Krafti
frá Bringu sem hirti gullið. Ísmót-
ið í Berlín er kynnt sem Evrópu-
mót íslenskra hesta á ís og er hug-
myndin að það færist á milli landa
í framtíðinni. Þar er keppt í fleiri
greinum hestaíþrótta: tölti, fjór-
gangi, fimmgangi og 100 metra
skeiði.
Útlendir á ís
VÍS og Landssamband hesta-
mannafélaga hafa gefið út bæk-
linginn ÖRYGGISATRIÐI Í
HESTAMENNSKU. Í bæklingnum
er farið á skýran og einfaldan hátt
yfir helstu öryggisatriði í hesta-
mennsku, eðli og skynjun hests-
ins, aðbúnað og umhverfi, hvern-
ig á að kaupa hest, reiðtygi og ör-
yggisstaðla. Bæklingnum verður
dreift víða næstu vikur og mánuði
en einnig má nálgast hann hjá VÍS
og á skrifstofu LH í Íþróttamið-
stöðinni í Laugardal.
Bæklingur um
öryggismál
Í Ameríku er komin út ævintýra-
bókin „Ariel´s Journey“, sú fyrsta
í bókaflokknum „The Ice Horse
Adventures Series“. Íslenski hest-
urinn leikur stórt hlutverk í bók-
inni. Hún fjallar um stúlkur sem
búa í Bandaríkjunum og eiga ís-
lenska hesta. Fólki í bókinni finnst
ekki mikið varið í þessa litlu og
loðnu „pony” hesta. Þeir eiga þó al-
deilis eftir að sanna sig. Þeir eru
gæddir töfrum og hafa þann hæfi-
leika að geta flutt sig til fortíðar
og talað saman með hugsanalestri.
Sagan gerist að stórum hluta á Ís-
landi á elleftu öld og lifnaðarháttum
fólks er vel lýst. Og ekki skemm-
ir það fyrir að hún er líka ágætis
markaðssetning fyrir íslenska hest-
inn vestan hafs. Sjá www.eidfaxi.is
Íslenskir hestar í
bandarískri bók
Elsa Albertsdóttir er doktorsnemi við
LBHÍ á Hvanneyri. Hún situr í öryggis-
nefnd LH og kom að gerð bæklingsins. Á
myndinni er hún með sérstakt öryggis-
vesti fyrir reiðmenn.
Finnska Íslandshestasamband-
ið hefur hafið útgáfu á nýju hesta-
tímariti, „Islanninhevonen“ (Ís-
lenski hesturinn), sem kemur út sex
sinnum á ári. Í því verða faggreinar
um ræktun, reiðmennsku og með-
ferð íslenska hestsins, skemmti- og
afþreyingarefni. Finnska Íslands-
hestasambandið, sem var stofnað
1982, hefur stækkað ört undanfarin
ár, og eru meðlimir um níu hundr-
uð. Það hefur frá upphafi gefið út
lítið fjölritað tímarit en nú finnst
Finnum tími til að axla sín skinn í
útgáfumálum. Samantekt á ensku
fylgir tímaritinu sem er á vefsíðu
sambandsins: www.islanninhevon-
en.net. Sjá www.eidfaxi.is
Nýtt tímarit í
Finnlandi
Foríða fyrsta tölublaðs „Islanninhevonen.“
HESTAMENN
nota fjórhjól til þjálfunar
BLS. 4
Þeir allra sterkustu
í Skautahöllinni
Ísleifur Jónasson var sigurvegari á fyrsta ísmóti Þeirra allra sterkustu sem haldið var árið 2005. Hann keppti þá á Röðli frá Kálf-
holti, sem er með allra bestu klárhestum landsins um þessar mundir. MYND/JENS EINARSSON
Stórsýningin Æskan og hestur-
inn verður haldin í Reiðhöllinni
í Víðidal helgina 29. til 30. mars.
Sjö hestamannafélög á höfuðborg-
arsvæðinu standa að sýningunni:
Andvari, Fákur, Gustur, Hörður,
Máni, Sóti og Sörli.
Æskan og hesturinn er stærsta
reiðhallarsýning ársins hverju
sinni. Frítt er inn á sýninguna. Að
þessu sinni taka tvö gestafélög
þátt í herlegheitunum: Sleipnir
frá Selfossi og Faxi í Borgarfirði.
Um 250 börn, þriggja til átján ára,
munu sýna sig og hesta sína í fjöl-
breyttum atriðum. Yngstu börnin
verða í skrautbúningum.
Tvær sýningar verða hvorn
dag, klukkan 13 og 16. HARA syst-
ur skemmta á laugardeginum og
Magni á sunnudeginum. Georg frá
Glitni verður á svæðinu, svo og
Bjarni töframaður. Rétt er að taka
fram að undanfarin ár hefur verið
troðfullt á allar sýningar, þannig
að það er vissara að mæta tíman-
lega. Aðalstyrktaraðili er Glitnir.
Æskan og hesturinn í Víðidal
Börnin mæta í alla vega litum búningum og meira að segja sum hrossin líka. Á mynd-
inni eru Auður og hesturinn Moli að leika listir sínar. MYND/ÓLAFUR ÁRNASON