Fréttablaðið - 19.03.2008, Blaðsíða 65
MIÐVIKUDAGUR 19. mars 2008 45
ÍÞRÓTTIR Argentínska goðsögnin
Diego Armando Maradona hefur
haft hægt um sig upp á síðkastið
en hann lét heldur betur til sín
taka á tennisleik í Argentínu í
síðasta mánuði.
Þá gjörsamlega missti hann
sig í stúkunni og hagaði sér eins
og versta bulla á leik Ítalans Pot-
ito Starace og Argentínumanns-
ins David Nalbandian. Maradona
úthúðaði hinum ítalska Starace
hvað eftir annað úr stúkunni með
þeim afleiðingum að sá ítalski
varð brjálaður og hótaði að
brjóta tennurnar í Maradona
með tennisspaðanum.
Starace þessi ólst upp í Napoli
og var Maradona átrúnaðargoð
hans á yngri árum. Hann hefur
tekið goðið aftur í sátt eftir að
Maradona sendi honum áritaða
treyju og baðst afsökunar á hegð-
un sinni á leiknum. - hbg
Argentínska goðsögnin ekki dauð úr öllum æðum:
Maradona úthúðar
tenniskappa
HRESS Í STÚKUNNI Maradona sést hér kátur í stúkunni á leik Nalbandian og Star-
ace sem hann úthúðaði. NORDIC PHOTOS/AFP
FRJÁLSAR Bretinn Dave Heeley er
50 ára gamall og hefur verið blind-
ur frá 16 ára aldri eftir að hafa
fæðst með augnsjúkdóm. Hann á
örugglega eftir að komast í heims-
fréttirnar á næstunni því kappinn
ætlar að beita óvenjulegri aðferð
til þess að safna peningum fyrir
blindrahundum í Bretlandi.
Heeley hóf að hlaupa þegar
hann var fertugur og hefur þegar
safnað 200 þúsundum pundum
með því að hlaupa maraþon. Nú
ætlar þessi snaggaralegi Breti að
gera enn betur því hann hefur
safnað áheitum fyrir meira en
milljón pund fyrir það sem hann
ætlar að taka sér fyrir hendur í
eina ótrúlega viku í byrjun apríl.
Heeley ætlar þá að hlaupa sjö
maraþonhlaup á sjö dögum í sjö
heimsálfum.
„Ég veit að ég verð alveg
úrvinda eftir sjöunda maraþonið
en ég ætla mér að klára London-
maraþonið því það hefur sérstaka
þýðingu þetta árið,“ segir Heeley
sem byrjar á því að hlaupa á Falk-
landseyjum (Suðurskautið/Suður-
atlantshafið) eina mínútu yfir mið-
nætti mánudaginn 7. apríl.
Hann mun síðan fljúga til Rio de
Janeiro í Brasilíu (Suður-Amer-
íka) þar sem hann hleypur annað
maraþon á sama degi. Næstu daga
mun hann síðan hlaupa maraþon-
hlaup í Los Angeles (Norður-
Ameríka), Sydney (Eyjaálfa),
Dubai (Asía) og Túnis (Afríka) og
endar síðan þessa ótrúlegu heims-
ferð sína með því að hlaupa Lund-
únamaraþonið (Evrópa) 13. apríl.
„Vonandi þurfum við ekki að
hafa áhyggjur af peningum næstu
árin en það er mjög góð tilfinning
að vita af því að peningarnir munu
koma inn jafnóðum meðan ég
hleyp,“ segir Heeley sem ætlar þó
að skilja sinn blindrahund, þriggja
ára blandaða þýska smalahundinn
Wicksie, eftir heima. Þess í stað
mun fylgja honum Malcolm Carr
sem hleypur með honum allan tím-
ann auk þess sem fjögurra manna
stuðningslið fylgir þeim.
Heeley hefur samt ekki mestar
áhyggjur af erfiðinu fram undan
því hann óttast mest ferðalögin á
milli keppnisstaðanna.
„Ég er ekki mikið fyrir að fljúga
og hef mestar áhyggjur af þeim
hluta. Ég er aldrei ánægðari en
þegar flugvélin er komin með
bæði hjólin á jörðina,“ sagði Heel-
ey í léttum tón.
- óój
Blindur Breti safnar peningum fyrir blindrahunda á sérstakan hátt í eina ótrúlega viku í komandi aprílmánuði:
Sjö maraþon í sjö heimsálfum á sjö dögum
HRESS OG SKEMMTILEGUR Dave Heeley sést hér í góðu skapi en fyrir aftan hann má
sjá heimsferð hans á korti. NORDICPHOTOS/AFP
FÓTBOLTI Rafa Benitez, knatt-
spyrnustjóri Liverpool, er
bjartsýnn á að lið sitt geti enn
blandað sér í titilbaráttu ensku
úrvalsdeildarinnar eftir að hafa
unnið fimm deildarleiki í röð.
„Það verður áhugavert að sjá
hversu nálægt toppnum við
eigum eftir að enda eftir alla
gagnrýnina sem liðið hefur fengið
á tímabilinu. Næstu þrjár til
fjórar vikur eiga eftir að ráða
miklu þar sem við spilum gegn
Manchester United, Everton og
Arsenal í deildinni. Ef til vill
verður við komnir enn nær
toppinum eftir þá leiki. Annars er
best að vera ekkert að tjá sig of
mikið um hlutina í þessu sam-
hengi,“ sagði Benitez í viðtali við
opinbera heimasíðu Liverpool í
gær.
Liverpool er sem stendur átta
stigum á eftir United og Arsenal
þegar liðið á átta leiki eftir í
deildinni. - óþ
Rafa Benitez, stjóri Liverpool:
Titilbaráttan
ekki úr sögunni
BJARTSÝNN Rafa Benitez telur að lið
sitt geti enn minnkað forskot toppliða
ensku úrvalsdeildarinnar.
• Vélin má bera 14 til 15 tonn á vegi.
• Vélin getur sturtað í 180°frá sér.
• Vélin er með veltibremsu og fjöðrun á lið.
• Vélin er útbúin fyrir snjótönn, sóp,
krana, saltara og sandara ofl . ofl .
• Vélin útheimtir aðeins vinnuvélaréttindi
til stjórnunar.
• Vélin hefur allstaðar slegið í gegn.
Forskot til framtíðar!
Hydrema hönnun og hátækni
Til afgreiðslu strax
Hydrema 912D fl utningstæki/fjölnotatæki
Vélin er á litaðri olíu og má vera á öllum götum og vegum
Vélin er skráð sem vinnuvél í IF fl okki
N
O
R
D
IC
P
H
O
TO
S/
G
ET
TY