Fréttablaðið - 19.03.2008, Blaðsíða 66

Fréttablaðið - 19.03.2008, Blaðsíða 66
46 19. mars 2008 MIÐVIKUDAGUR KÖRFUBOLTI Þór frá Akureyri tryggði sér síðasta sætið í úrslita- keppni Iceland Express-deildar karla í körfubolta eftir frækinn tíu stiga sigur á Snæfelli í gær, 88- 78. Fyrir leikinn hafði Snæfell unnið níu leiki í röð auk þess sem þeir höfðu unnið Þór þrisvar í vetur, örugglega í öll skiptin. Heimamenn voru ákveðnir í að selja sig dýrt fyrir framan troð- fullan Síðuskóla í gær. Baráttan í upphafi leiks var mikil en hvorugt liðið spilaði vel. Þór tapaði mörg- um boltum en léleg skotnýting einkenndi leik Snæfellinga. Sókn- arleikur liðanna var ekki til útflutnings. Þórsarar höfðu yfir framan af leiknum og leiddu með tíu stigum í hálfleik, 44-34. Spennustigið í leiknum var hátt enda var mikið undir fyrir heimamenn sem höfðu ekki komist í úrslitakeppnina í átta ár. Með sigri gátu þeir breytt því en það vottaði fyrir stressi á leikmönnum liðsins í síðari hálf- leik. Hálfleikurinn var eign eins manns, Þórsarans Cedric Isom. Hann skoraði átta stig í fyrri hálf- leik en alls 27 í þeim seinni. Hann fór fyrir Þórsurum og var hrein- lega allt í öllu hjá liðinu. Á ögur- stundum reis hann upp og barði félaga sína áfram. Hann varði skot, náði fráköstum í vörn og sókn, gaf stoðsendingar og skor- aði stigin. Snæfellingar náðu að jafna leik- inn og raunar komast yfir. Spenn- an var magnþrungin í lokaleik- hlutanum en um miðbik hans var ljóst í hvað stefndi. Baráttuglamp- inn í augum Þórsara sást langar leiðir og svo fór að þeir tryggðu sér verðskuldaðan tíu stiga sigur, 88-78. „Playoffs baby,“ öskraði Isom eftir að Þórsarar stigu villtan stríðsdans í leikslok. Hann var yfirburðamaður á vellinum en Robert Reed lék einnig vel. Hann hefur spilað sjö leiki fyrir Þór og hefur liðið unnið fimm þeirra. Isom viðurkenndi síðan að hafa beðið æðri máttarvöld um aðstoð fyrir leikinn. „Ég hafði allan tímann trú á því að við myndum klára þetta. Ég bið til Guðs á hverjum degi og ég bað hann um að blessa okkur og hjálpa okkur að klára þetta. Við gerðum það. Við vorum með bakið uppvið vegg og við ætluðum svo sannar- lega ekki að tapa fyrir þeim fjórða leiknum í röð svo við börðumst fyrir sigrinum,“ sagði Isom, sem var frábær. En hvað dreif hann áfram? „Ég vildi ekki tapa þessum leik,“ sagði Isom og lagði áherslu á orð sín. „Þá hefði tímabilið verið búið. Þetta snýst um að komast í úrslita- keppnina og við getum unnið öll lið í deildinni. Við sýndum það hér. Persónulega þá er markmið mitt að vinna meistaratitilinn, það hefur verið markmið mitt síðan ég kom hingað,“ sagði Isom og undir- strikaði svo orð sín. „Það er ekki vafi að við getum orðið meistar- ar.“ - hþh Guð hjálpaði Þórsurum Cedric Isom bað æðri máttarvöld um aðstoð við að leggja Snæfell og koma Þórsurum í úrslitakeppnina. Isom var bænheyrður. Sjálfur átti hann stórleik og Þór mun mæta deildarmeisturum Keflavíkur í úrslitakeppninni. BARÁTTA Þórsarar fórnuðu sér í alla bolta í gær og uppskáru eins og þeir sáðu. PEDROMYNDIR.IS/ÞÓRIR TRYGGVASON KÖRFUBOLTI Íslandsmeistarar KR sigruðu Skallagrím örugglega 103-75 í DHL-höllinni í gærkvöld og tryggðu sér þar með annað sæti deildarinnar. KR-ingar lögðu grunninn að sigri sínum í gær með frábærum fyrsta leikhluta en liðið komst fljótlega í 14-2 á upphafsmínútunum og staðan var 34-17 eftir fyrsta leikhlutann. Sóknarleikur KR gekk eins og tölurnar gefa til kynna mjög vel og var þar liðsheildin sterk og margir til kallaðir. Skallagrímur kom aðeins til baka í öðrum leikhluta og staðan var orðin 53-38 þegar hálfleiksflautan gall, en Darrel Flake var allt í öllu hjá gestunum og skoraði 25 stig í fyrri hálfleik. Íslandsmeistararnir stigu aftur upp í þriðja leikhluta og héldu gestunum alltaf í góðri fjarlægð og náðu mestum mun í stöðunni 91-61 um miðjan leikhlutann en staðan var 76-56 að honum loknum. Í fjórða leikhluta var spurningin aðeins hversu stór sigur KR yrði en lokatölur urðu 103-75 og Skallagrímur átti í raun aldrei möguleika gegn sterkri liðsheild KR- inga en fimm leik- menn liðsins skoruðu meira en tíu stig og fóru þar Jeremiah Sola og Joshua Helm fremstir í flokki með 20 og 19 stig. Áðurnefnd- ur Flake var yfirburðamaður hjá Skallagrím með 31 stig. Benedikt Guðmundsson, þjálfari KR, var hæstánægður með leik sinna manna en að sama skapi var um sig með fyrstu umferð úrslitakeppninnar. „Þetta var sannfærandi sigur hjá okkur og mér fannst við hafa yfirburði nær allan tímann. Ég vildi í raun ekki að við myndum vinna of stórt því við erum stundum dálítið fljótir að gleyma okkur. Nú hefst úrslita- keppnin og við mætum stórhættulegu liði ÍR og menn verða að leggja sig alla fram í þeirri seríu, það er alveg á hreinu. Við höfum ekki átt okkar bestu leiki gegn liðum um miðja deild því menn leyfa sér að slaka aðeins á og það má ekki gerast,“ sagði Benedikt ákveðinn. Kenneth Webb, þjálfari Skallagríms, tók hatt sinn ofan fyrir KR en varaði Grindavík við að nú byrjaði nýtt tímabil. „Ég verð að játa það að það var greinilegur stigsmunur á okkar liði og KR í þessum leik en nú byrjar nýtt tímabil með úrslitakeppn- inni og við ætlum að mæta klárir í leikina gegn Grindavík,“ sagði Webb. - óþ KR lagði Skallagrím að velli 103-75 í lokaumferð deildarkeppni Iceland Express-deildar karla í gærkvöld: Sigur Íslandsmeistara KR aldrei í hættu TVEIR GÓÐIR Jeremiah Sola og Joshua Helm voru atkvæða- mestir KR-inga í gær og eru tilbúnir í úrslitakeppnina. FRÉTTABLAÐIÐ/VALGARÐUR KÖRFUBOLTI Stjarnan vann 85-83 sigur á Tindastól í jöfnun og spennandi leik í Ásgarði en mesta spennan var þó eftir leikinn þegar Stjörnumenn biðu eftir fréttum af Akureyri. Þegar kom í ljós að Þórsarar hefðu unnið og komist í úrslitakeppnina mátti sjá von- brigðin skína úr hverju andliti. Nýliðarnir úr Garðabæ voru ótrúlega nálægt því að komast í úrslitakeppnina á sínu fyrsta tíma- bili en eru engu síður búnir að stimpla sig vel inn í deildina. Fannar Freyr Helgason, fyrir- liði Stjörnunnar, vildi líta á björtu hliðarnar eftir leik. „Við erum klárlega nógu gott lið til þess að vera í úrslitakeppninni. Við erum búnir að vera í útlend- ingaveseni allt tímabilið og núna þegar við erum loksins komnir með almennilegan kana þá var það bara of seint. Ef að Jarrett og Jovan hefðu komið fyrr þá værum við meðal efstu fimm í deildinni,“ sagði Fannar Freyr eftir leikinn og bætti við. „Framhaldið verður fínt hjá Stjörnunni og þetta er komandi stórveldi,“ sagði Fannar. Þjálfari hans, Bragi Magnússon, bjóst ekki við að Þór myndi vinna Snæfell. „Það er sorglegt fyrir okkur að hafa gert okkar og ég er mjög hissa á því að Þór skyldi hafa unnið. Ég bjóst við að Snæfelling- ar myndu fylgja eftir sínum góða árangri en það verður ekki tekið af Þór, þeir eru búnir að vinna marga leiki upp á síðkastið og eru vel að þessu komnir. Ég vona að þeir klári Keflavík og taki þetta bara af krafti fyrst að þeir fóru en ekki við,“ sagði Bragi Magnússon, þjálfari Stjörnunnar, eftir leik. „Við erum enn þá að læra, bæði liðið og ég sem þjálfari. Þetta er okkar fyrsta tímabil og ég er klár á því að við getum orðið sterkari. Það var markmiðið frá upphafi að fara í úrslitakeppnina og við vorum bara hársbreidd frá því,“ sagði Bragi Magnússon. - óój Stjörnumenn gerðu sitt en sátu eftir með sárt ennið þrátt fyrir sigur: Mjög hissa á því að Þór hafi unnið SIGUR DUGÐI EKKI Jovan Zdravevski og félagar lögðu Stólana í Garðabænum en það dugði ekki til þar sem Þór skellti Snæfelli óvænt. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL KÖRFUBOLTI Keflavík fékk í gær afhentan bikarinn fyrir að vera deildarmeistari í Iceland Express-deildinni. Keflavík vann Fjölni örugglega í lokaleik sínum. Í gær varð einnig ljóst hvaða lið mætast í úrslitakeppninni. Keflavík mætir Þór sem tryggði sér óvænt sæti í úrslitakeppninni í gær með frábærum sigri á Snæfelli. Það verður Reykjavíkurslagur hjá Íslandsmeisturum KR og ÍR. Rimma Grindavíkur og Skalla- gríms verður einnig áhugaverð. Svo er svakaslagur í uppsigl- ingu á milli Njarðvíkur og Snæfells þar sem Njarðvík hefur heimavallarréttindi. - hbg Iceland Express-deild karla: Keflavík fékk bikarinn MEISTARAR Magnús Gunnarsson tekur hér á móti deildarbikarnum í gær. MYND/VÍKURFRÉTTIR Iceland Express-deild karla: Stjarnan-Tindastóll 85-83 Stig Stjörnunnar: Dimitar Karadzovski 21, Jovan Zdravevski 20 (10 frák.), Jarrett Stephens 13 (12 frák.), Kjartan Atli Kjartansson 13, Fannar Helgason 8, Sævar Haraldsson 8 (8 stoðs.), Ottó Þórsson 2. Stig Tindastóls: Joshua Buettner 23 (12 frák.), Philip Perre 18 (8 frák., 8 stoð.), Ísak Einarsson 15, Svavar Birgisson 14, Samir Shaptahovic 13. KR-Skallagrímur 103-75 Stig KR: JJ Sola 20, Joshua Helm 19, Brynjar Þór Björnsson 17, Avi Fogel 11, Helgi Már Magnússon 10, Darri Hilmarsson 8, Fannar Ólafsson 6, Skarphéðinn Ingason 6, Pálmi Freyr Sigurgeirsson 5, Guðmundur Magnússon 1. Stig Skallagríms: Darrell Flake 31, Florian Miftari 17, Milojica Zekovic 12, Allan Fall 7, Pétur Sigurðs- son 6, Axel Kárason 2. Njarðvík-Grindavík 102-92 Stig Njarðvíkur: Damon Bailey 25 (12 frák.), Hörður Axel Vilhjálmsson 21, Brenton Birming- ham 18, Guðmundur Jónsson 13, Jóhann Árni Ólafsson 9, Sverrir Sverrisson 9, Friðrik Stefáns- son 4, Egill Jónasson 3. Stig Grindavíkur: Jamaal Williams 23, Adama Darboe 20, Páll Axel Vilbergsson 19, Helgí Jónas Guðfinnsson 7, Þorleifur Ólafsson 7, Páll Kristins- son 5, Davíð Hermannsson 2. Þór-Snæfell 88-78 Stig Þórs: Cedric Isom 35, Luka Marolt 23, Óðinn Ásgeirsson 14, Robert Reed 7, Magnús Helgason 5, Hrafn Jóhannsson 2, Jón Orri Kristjánsson 2. Stig Snæfells: Justin Shouse 19, Hlynur Bær- ingsson 16, Sigurður Þorvaldsson 13, Slobodan Subasic 11, Magni Hafsteinsson 11, Jón Jónsson 5, Árni Ásgeirsson 3. ÍR-Hamar 102-74 Keflavík-Fjölnir 93-58 Stig Keflavíkur: Bobby Walker 22, Tommy Johnson 21, Anthony Susnjara 12 (11 frák.), Gunnar Einarsson 9, Arnar Freyr Jónsson 8, Magnús Gunnarsson 8, Sigurður Þorsteinsson 4, Vilhjálmur Steinarsson 4, Axel Margeirsson 3 Jón Nordal Hafsteinsson 2. Stig Fjölnis: Anthony Drejaj 15, Þorsteinn Sverr- isson 8, Níels Dungal 6, Valur Sigurðsson 6, Árni Jónsson 6, Sindri Kárason 5, Tryggvi Pálsson 5, Haukur Pálsson 4, Arnþór Guðmundsson 2. STAÐAN: 1. Keflavík 22 18 4 2014:1787 36 2. KR 22 17 5 2022:1858 34 3. Grindavík 22 15 7 2040:1940 30 4. Njarðvík 22 14 8 2024:1810 28 5. Snæfell 22 13 9 1916:1795 26 6. Skallagrímur 22 10 12 1824:1877 20 7. ÍR 22 10 12 1924:1889 20 8. Þór A. 22 10 12 1940:2065 20 9. Stjarnan 22 9 13 1840:1905 18 10. Tindastóll 22 8 14 1906:2035 16 11. Hamar 22 4 18 1685:1877 8 12. Fjölnir 22 4 18 1694:1991 8 ÚRSLIT KÖRFUBOLTI Njarðvík tryggði sér fjórða sætið í Iceland Express- deild karla í körfuknattleik í kvöld er liðið sigraði nágranna sína úr Grindavík 102-92. Grindvíkingar voru með forystuna, 19-23, eftir fyrsta leikhluta og staðan í leikhléi var 43-44. Njarðvíkingar byrjuðu seinni hálfleikinn gríðarlega vel og náðu sjö stiga forskoti, 55-48, áður. Njarðvík var ávallt með yfirhöndina, þökk sé Herði Axel Vilhjálmssyni og Sverri Þór sem sannaði enn og aftur að þar er á ferð einn albesti varnarmaður landsins. Njarðvík leiddi fyrir síðasta leikhlutann 73-66. Fjórði leikhluti var lítt spennandi því Njarðvík var með öruggt forskot allan tímann. Sverrir Þór Sverrisson, leikmaður Njarðvíkur, var nokkuð sáttur í leikslok. „Þetta var nokkuð gott á köflum. Seinni hálfleikurinn var mun betri heldur en sá fyrri og ég er ánægð- ur með að ná fjórða sætinu úr því sem komið var. Annars finnst mér verst hvað er langt í úrslita- keppnina.“ - höþ Suðurnesjaslagur: Njarðvík tók fjórða sætið Í KRÖPPUM DANSI Sverrir Þór átti fínan leik gegn Grindavík. MYND/VÍKURFRÉTTIR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.