Fréttablaðið - 19.03.2008, Blaðsíða 13

Fréttablaðið - 19.03.2008, Blaðsíða 13
MIÐVIKUDAGUR 19. mars 2008 13 SAMGÖNGUR Vegagerðin endurnýjar nú einbreiða brú yfir Skaftafellsá á þjóðvegi 1, undir Skaftafellsjökli. Lengi hefur staðið til að færa veginn sunnar og vestar og einbreiðar brýr hafa mikið verið gagnrýndar og kallaðar slysagildrur. En hvers vegna er þá verið að endurnýja þessa brú? „Við verðum náttúrlega að halda henni gangandi á meðan fjárveiting fæst ekki fyrir nýrri brú,“ segir Einar Hafliðason, forstöðu- maður brúadeildar Vegagerðarinnar. „Við erum bara að styrkja hana því stóru bílarnir keyra svo hratt inn á hana að þeir eru að sliga hana,“ segir hann. Skipt verður um yfirbyggingu; stálbita og timburgólf, en gömlu undirstöðurnar verða áfram. Einar bendir á að þarna á svæðinu sé „hver einbreiða brúin á fætur annarri og því engin forsenda til að fara að breikka eina þeirra. Það væri betra að taka veginn allan í samhengi þegar þar að kemur“. Tvöföldunin sem slík strandar þó ekki á Vegagerðinni, sem Einar kveður reiðubúna í verkið. „En við förum ekki að teikna fyrr en sést í fjárveitingu frá Alþingi og skipulag frá sveitarfélaginu.“ Endurnýjunin kostar innan við sex milljónir en ný steypt tvíbreið brú gæti kostað 150 milljónir. - kóþ BRÚ Á SUÐURLANDI Fyrir sunnan Vatnajökul er fjöldi einbreiðra brúa og Vegagerðin þarf að halda þeim við, þótt brúadeildin hefði ekkert á móti því að byggja nýjar og betri brýr. Myndin tengist ekki fréttinni beint. MYND/ÚR SAFNI Fjármagn vantar til að byggja nýja tvíbreiða brú undir Vatnajökli: Gert við einbreiða brú yfir Skaftafellsá TYRKLAND, AP Tyrklandsstjórn, sem mynduð er af íslamsk-sinnuðum flokki sem hefur yfirgnæfandi meirihluta á þingi, er að íhuga að grípa til þess að breyta stjórnar- skránni þannig að þrengt yrði að sjálfstæði dómskerfisins. Tilefnið er að ríkissaksóknarinn hefur boðað að hann muni fara fram á að stjórnarflokkurinn verði dæmdur til að vera leystur upp á þeim grundvelli að hann hafi gerst sekur um að grafa undan hinu veraldlega stjórnkerfi landsins, sem stjórnarskráin á að vernda. Recep Tayyip Erdogan forsæt- isráðherra og fleiri forystumenn Réttlætis- og þróunarflokksins ráða nú ráðum sínum um málið, að sögn flokksstarfsmanns. - aa Tyrknesk stjórnmál: Íhuga stjórnar- skrárbreytingu RECEP TAYYIP ERDOGAN Forsætisráð- herra Tyrklands er að íhuga stjórnar- skrárbreytingar. SVÍÞJÓÐ Ung sænsk kona hefur fundist látin á ströndinni í Phuket í Taílandi. Talið er að nokkrir menn hafi ráðist á hana þar sem hún var í gönguferð á ströndinni, að sögn sænska dagblaðsins Expressen, en konan bjó með vinkonu sinni í tjaldi á ströndinni. Hún ber þess merki að hafa barist fyrir lífi sínu. Lögreglan í Taílandi hefur sagt að hún telji að árásarmennirnir hafi verið þrír til fjórir. Svo virðist sem konan hafi verið stungin með sams konar hnífi og sjómenn á svæðinu nota. Í gær var svo greint frá því að ungur Taílendingur hefði verið handtekinn, grunaður um aðild að verknaðnum. - ghs Sænsk kona í Taílandi: Myrt á göngu á ströndinni LONDON, AP Norskur námsmaður, Martine Vik Magnussen, fannst látin undir ruslahaug í kjallara í London. Breskir rannsóknarlög- reglumenn segja að stúlkan hafi fengið áverka á hálsinn og talið er að hún hafi verið myrt. Rannsóknarlögreglan Scotland Yard segir að stúlkan, sem lagði stund á nám í viðskiptafræði í London, hafi verið að skemmta sér á Maddox Club, vinsælum skemmtistað, á föstudagskvöldið þegar hún hvarf. Stúlkan er talin hafa yfirgefið klúbbinn með syni milljarðamærings en ekki hefur náðst í hann. Grunur leikur á að hann sé farinn úr landi. - ghs Norsk stúlka í London: Fannst látin í kjallara íbúðar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.