Fréttablaðið - 19.03.2008, Blaðsíða 47

Fréttablaðið - 19.03.2008, Blaðsíða 47
MIÐVIKUDAGUR 19. mars 2008 27 UMRÆÐAN Samgöngumál Fyrir skömmu barst tilkynning frá sam- gönguráðuneytinu um gerð jarðganga milli Ísafjarðar og Bolung- arvíkur. En hvað er Bolungarvík? Það er lítið útkjálkaþorp við Ísafjarðardjúp inni- klemmt milli fjalla. Fyrr á dögum þegar sjósókn var stunduð á opnum árabátum var eðlilegt að sjómenn fyndu sér aðstöðu sem væri skammt frá fiskimiðunum. Síðan þá hefur sjó- sókn þróast frá bátum að stórum og öflugum vélskipum. Sú þróun gerði það að verkum að í raun var ekki þörf á þessum litlu útróðrar- stöðum. Ísafjörður var skammt frá með góða höfn. Af einhverjum undarlegum sökum héldu menn áfram að búa í Bolungarvík og öðrum smástöðum eins og Flat- eyri, Súðavík og Suðureyri. Þessi þorp urðu sjálfkrafa óþörf. Nú er frekjugangur smáþorp- anna orðinn slíkur að þeir heimta jarðgöng og snjóflóðavarnir. Þorpsstjórnin í Bolungarvík hafði það af að véla fyrrv. samgöngu- ráðherrann til að samþykkja jarð- göng, 5-6 km löng. Ótaldir millj- arðar til að viðhalda óþarfri byggð með 500 manns. Á sama tíma vant- ar fé í bráðnauðsynlegar fram- kvæmdir víða um land. Ekki þarf að orðlengja þörfina á höfuðborg- arsvæðinu, Vaðlaheiðargöng, ný brú yfir Ölfusá við Selfoss, Suður- strandarveg og fækkun einbreiðra brúa. Ég hripa niður þessa grein mína þar sem mér ofbýður heimtufrekja og óbilgirni örsmárra þorpa. Þau vilja millj- arðafúlgur af vegafé okkar, sem er að mestu komið frá höfuðborgar- svæðinu. Þeir bera sig að slík- um skorti á veruleika- skyni, að undrun sætir. Þorpsstjóra Bolungarvíkur, oflát- ungi og kjaftaski, fannst það við hæfi að segja stjórnvöldum að skammast sín þegar þeim fannst ekki koma nógu margar milljónir vegna mótvægisaðgerða. Dýrt er orðið þjóðinni að stjórn- málaflokkarnir hafa valið óhæfa menn í stöðu samgönguráðherra hvern af öðrum síðustu áratugina. Allir hafa þeir komið frá dreifbýl- inu. Þingmenn allra flokka dreif- býlisins, sem í raun hafa myndað óformlegan sjötta þingflokkinn á Alþingi, hafa gætt þess að höfuð- borgarsvæðið skipi aldrei sam- gönguráðherra. Ekki þarf að minna á hvar 2/3 hlutar þjóðarinn- ar búa. Steingrímur J. Sigfússon, Alþýðubandalagi, og Halldór Blöndal frá íhaldi, þingmenn NA- kjördæmis, voru samgönguráð- herrar árin 1988-1995. Þeirra „afrek“ var að láta gera jarðgöng undir Ólafsfjarðarmúla og þar með tengja smábæ við þjóðvega- kerfið. Í þeirra huga var það nauðsynlegra en að gera jarðgöng undir Öxnadalsheiði eða Vaðla- heiði þar sem er mikil umferð, og á hringveginum. Ekki tók betra við þegar íhaldið skipaði smá- þorparann Sturla Böðvarsson í embættið. Sturla þessi var höfuð- borgarbúum erfiður og óréttlát- ur. Á valdatíma Sturlu var ákveð- ið, og byrjað á, fokdýrum jarðgöngum milli Siglufjarðar og Ólafsfjarðar, sem eru mestu afglöp í sögu samgöngumála á Íslandi. Jarðgöng milli afskekktra smábæja utan alfaraleiða verða aldrei þjóðhagslega hagkvæm. Eitt síðasta verk Sturlu var svo að ákveða fyrrgreind jarðgöng undir Óshlíðina, enn ein óhæfan. Við myndun síðustu ríkisstjórnar féll Samfylkingin í þá gryfju að skipa enn einn dreifbýlisþing- manninn í starf samgönguráð- herra, Kristján L. Möller frá Siglufirði. Kristján hafði bein í nefinu til að slá af óraunhæfa kröfu Vestmanneyinga um jarð- göng út í virkan eldgíg. En Kristj- án brást illilega þegar hann stað- festi ákvörðun Sturlu um jarðgöngin undir Óshlíð. Óskilj- anlegt er að jafnaðarmaður sýni slíka skammsýni. Sennilega vegna þess að hann barðist fyrir jarðgöngum til sins heimabæjar. Ég átel stjórn Samfylkingarinnar að ganga fram hjá því mannvali í þingmannahópi flokksins á höf- uðborgarsvæðinu. Höfundur er prentari og félagi í Samfylkingunni í Reykjavík. SEND IÐ OKK UR LÍNU Við hvetj um les end ur til að senda okk ur línu og leggja orð í belg um mál efni líð andi stund ar. Grein ar og bréf skulu vera stutt og gagn- orð. Ein göngu er tek ið á móti efni sem sent er frá Skoð ana síð unni á vis ir.is. Þar eru nán ari leið bein- ing ar. Rit stjórn ákveð ur hvort efni birt ist í Frétta blað inu eða Vísi eða í báð um miðl un um að hluta eða í heild. Áskil inn er rétt ur til leið rétt- inga og til að stytta efni. JÓN OTTI JÓNSSON Veruleikafirrtir Vestfirðingar minni karla Föndurverslun Námskeið Síðumúli 15 S: 553-1800 Sjón er sögu ríkari
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.