Fréttablaðið - 19.03.2008, Blaðsíða 54

Fréttablaðið - 19.03.2008, Blaðsíða 54
34 19. mars 2008 MIÐVIKUDAGUR Þjóðleikhúsið frumsýn- ir leikritið Engisprettur eftir serbneska leikskáld- ið Biljana Srbljanovic á Stóra sviðinu hinn 27. mars næstkomandi. Leikstjóri verksins er Þórhildur Þor- leifsdóttir. Biljana Srbljanovic er álitin eitt athyglisverðasta unga leikskáld Evrópu í dag og hefur hlotið fjölda verðlauna og viðurkenninga. Hún sló í gegn með fyrsta leikriti sínu fyrir ellefu árum og síðan þá hafa leikrit hennar verið þýdd á fjölda tungumála og leikin í á annað hundrað uppsetningum víða um heim. Í leikritum sínum nær hún á einstæðan hátt að sameina leiftr- andi húmor, bráðskemmtilega per- sónusköpun, næma skoðun á manneskjunni og skarpa þjóðfé- lagsrýni. Engisprettur er nýjasta leikrit Srbljanovic, en verkið var frumflutt árið 2005 í Belgrad. Sbrljanovic tekur virkan þátt í stjórnmálaumræðu í heimalandi sínu og hafa ummæli hennar í fjöl- miðlum oft vakið sterk viðbrögð. Kvikmyndaleikstjórinn og Íslands- vinurinn Emir Kusturica sótti hana til saka árið 2001 fyrir ummæli sem hún lét falla í blaða- viðtali þar sem hún hélt því fram að stjórn einræðisherrans Slobod- ans Milosevic hefði veitt fjár- magni í framleiðslu myndarinnar Neðanjarðar. Kusturica vann málið, en þrátt fyrir það hefur ekkert dregið úr yfirlýsingargleði leikskáldsins. Sbrljanovic heldur nú úti bloggi þar sem hún lætur oft hörð orð falla um fólk og mál- efni sem henni hugnast ekki. En aftur að leikritinu. Engi- sprettur er ljúfsárt verk sem fjall- ar á manneskjulegan og heillandi hátt um samskipti fólks, baráttu ólíkra kynslóða og samskipti í fjöl- skyldum, togstreituna milli for- eldra og barna, systkina og hjóna. Við kynnumst hópi persóna og fylgjumst með því hvernig örlög þeirra eru samofin á sérstæðan hátt. Kolsvartur húmor Srbljan- ovic, angurværð og mannleg hlýja renna saman á einstakan máta í þessu margslungna verki. Leikarar í sýningunni eru þau Anna Kristín Arngrímsdóttir, Arnar Jónsson, Eggert Þorleifs- son, Friðrik Friðriksson, Guðrún Snæfríður Gísladóttir, Gunnar Eyjólfsson, Hjalti Rögnvaldsson, Pálmi Gestsson, Sólveig Arnars- dóttir, Þóra Karítas Árnadóttir og Þórunn Lárusdóttir. Um leikmynd sýningarinnar sér Vytautas Narbutas en búninga hannar Filippía I. Elísdóttir. Ljósa- hönnuður er Lárus Bjönsson en litháíska tónskáldið Giedrus Pusk- unigis skapar hljóðheim sýningar- innar. Þýðandi verksins er Davíð Þór Jónsson. vigdis@frettabladid.is Kolsvartur húmor og sam- ofin örlög ólíkra kynslóða TOGSTREITA Frá æfingu Þjóðleikhússins á Engisprettunum. Rithöfundurinn Kate Christensen hlaut á dögunum hin mikilsvirtu bandarísku PEN/Faulkner bók- menntaverðlaun fyrir skáldsögu sína The Great Man. Verðlaunin hafa verið veitt árlega undanfarin 28 ár, en Christensen er þó aðeins fimmta konan sem hlýtur þau. William Faulkner stofnaði til verðlaunanna á sínum með verð- launafénu sem fylgdi Bókmennta- verðlaunum Nóbels. Á meðal fyrri vinningshafa PEN/Faulkner verð- launanna eru Philip Roth og John Updike. Christensen er frá New York og er The Great Man fjórða útgefna skáldsagan hennar. Bókin segir frá þremur konum sem takast á við dauða frægs myndlistarmanns sem hafði á ein- hvern hátt snert líf þeirra allra. Christensen var að vonum ánægð með heiðurinn, en hún var að þvo þvott í íbúð sinni í Brook- lyn þegar hún fékk fréttirnar. Við- brögð hennar einkenndust þó af nokkurri vantrú: „Vinna konur í alvöru þessi verðlaun?“ - vþ Christensen hlýtur PEN/ Faulkner-verðlaunin KATE CHRISTENSEN Hlaut nýverið PEN/ Faulkner-bókmenntaverðlaunin. Minjasafnið á Akureyri hefur opnað örsýninguna Skíði, skautar, sleðar í bókaversluninni Pennan- um-Eymundssyni í Hafnarstræti á Akureyri. Sýningin er sett upp í tilefni af páskunum, enda er það alkunna að yfir hátíðirnar eru vetraríþróttir iðkaðar af miklu kappi á Akureyri, bæði af heima- fólki og gestum. Akureyringar á vissum aldri muna án efa eftir því þegar Skáta- gilið fylltist um miðbik tuttugustu aldar af ungu fólki sem skemmti sér við að renna sér á skíðum og var þá gjarnan skautað á Pollinum líka. Andi stemningarinnar sem þá ríkti er rifjaður upp á sýningu Minjasafnsins, en henni hefur verið komið fyrir í glugga Penn- ans-Eymundsonar til þess að sem flestir geti notið hennar. Á sýningunni má sjá ljósmyndir í bland við fatnað, tæki og tól, gömul og ný, sem minna á vetur- inn og þær íþróttir sem iðkaðar eru meðan á honum stendur. Þar má meðal annars sjá sparksleða og innkaupanet sem oft voru full af matvöru á handfangi sleðanna, kvenskíði sem Adam Magnússon smíðaði á Akureyri og karlmanns- skíði smíðuð í Reykjavík ásamt skíðapressu sem nýtt var við smíði skíða. Annars er það að frétta af Minja- safninu á Akureyri að það er opið á skírdag, laugardaginn 22. mars og annan í páskum. Í húsnæði safnsins stendur nú yfir ljós- myndasýningin Þekkir þú...fjöl- breytileika mannlífsins? ásamt grunnsýningum. - vþ Örsýning um skíði FJÖR Á SKÍÐUM Norðlendingar hafa löngum skemmt sér við skíðaiðkun. Öll hús Listasafns Reykjavíkur verða opin yfir páskana og er aðgangur að vanda ókeypis. Ásmundarsafn er opið daglega frá kl. 13-16. Fastur opnunartími Kjarvalsstaða og Hafnarhúss er frá kl. 10-17 en í því síðarnefnda er opið til kl. 22 á skírdag í tilefni heimildarmyndasýningar. Þá verður haldið áfram sam- starfsverkefni Listasafns Reykja- víkur og Kviksögu sem hefur leitt af sér áhugaverðar heimildar- myndasýningar í fjölnotasal Hafnarhússins nú í vetur. Að þessu sinni verða sýndar tvær athyglisverðar heimildarmyndir úr rannsóknarverkefninu Ísland og ímyndir norðursins. Myndin Iceland: Wonders of the World frá árinu 1970 er eftir bandaríska kvikmyndagerðarmanninn Hal Linker. Í myndinni er lögð áhersla á vöxt, uppbyggingu og nútíma- væðingu Íslands. Hin mynd kvöldsins nefnist Hard Rock and Water og er eftir kanadíska kvik- myndagerðarmanninn Barbara Doran. Í myndinni, sem er frá árinu 2005, er gerður samanburð- ur á Íslandi og Nýfundnalandi þar sem hinu fyrrnefnda er stillt upp sem fyrirmynd í efnahagslegu og pólitísku tilliti. - vþ List fyrir alla, líka um páska HÚS Í FÆREYJUM Á Kjarvalsstöðum stendur nú yfir sýning á verkum fær- eyska myndlistarmannsins Mikines. Sími 575 7700 • www.gerduberg.is • gerduberg@reykjavik.is GERÐUBERG Gleðilega páska! Sýningar hússins verða opnar á Skírdag frá kl. 13-16. Menningarmiðstöðin Gerðubergs verður lokuð frá 21. - 24. mars og opnar aftur þriðjudaginn 25. mars. Starfsfólk Gerðubergs
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.