Fréttablaðið - 19.03.2008, Síða 61
MIÐVIKUDAGUR 19. mars 2008 41
Hljómsveitin The Raconteurs, með
Jack White úr The White Stripes í
broddi fylkingar, gefur út sína
aðra plötu 25. mars. Tilkynnt var
um plötuna á heimasíðu sveitar-
innar á mánudag og því er fyrir-
varinn í meira lagi skammur.
Platan nefnist Consolers of the
Lonely og kemur út á sama tíma í
búðum og á netinu. „Við vildum
prófa að gefa út plötu sem kæmi út
alls staðar á sama tíma og reyna
eftir það að markaðssetja hana og
kynna. Við viljum ekki að þessi
plata verði dæmd eftir því hvernig
hún selst fyrstu vikuna eða hvern-
ig dóma hún fær áður en fólk nær
að hlusta á hana,“ sagði á heima-
síðu sveitarinnar. „Við viljum líka
að fólk geti ráðið því strax hvernig
það hlusti á plötuna í stað þess að
það þurfi að bíða eftir því að hún
komi út í sínu uppáhalds formi.“
The Raconteurs ætlar í tónleika-
ferð um Bandaríkin í vor til að
fylgja plötunni eftir, auk þess sem
hún spilar á tónlistarhátíðum í
Bretlandi og í Noregi í sumar.
Plata í næstu viku
THE RACONTEURS Hljómsveitin The
Raconteurs gefur á næstunni út sína
aðra plötu.
Kvikmyndaleikstjórinn Einar Þór Gunnlaugsson
frumsýndi í síðustu viku kvikmyndina Heiðina en
ætlar sér að staldra stutt við á Íslandi. Hann er á
leiðinni til Mið-Ameríkuríkisins Níkaragva þar
sem hann vann í byggingarvinnu þegar Daniel
Ortega og svokallaðir Contra-skæruliðar börðust
um völdin í landinu í blóðugri styrjöld fyrir
tuttugu árum.
Einar hefur eiginlega búið í hálfgerðri
ferðatösku að undanförnu, lagði lokahönd á
myndvinnslu Heiðarinnar í Wales og
Danmörku og var þar áður í Níkaragva
þegar hann endurnýjaði kynnin við land og
þjóð eftir tuttugu ára fjarveru. „Ég fór
þangað ásamt félaga mínum og við nýttum
ferðina til að keyra um sveitirnar sem við
máttum ekki á sínum tíma vegna stríðsá-
standsins,“ segir Einar sem ætlar engu
síður að fara aftur í apríl. „Mér fannst ég
ekki alveg ná að kveða niður gamla
drauga,“ segir Einar og hlær, bætir því
síðan við að húsið sem þeir byggðu fyrir tveimur
áratugum hafi verið komið í eigu vellauðugs Kínverja.
Sem segi sitthvað um þróunina þar. „Þegar við
vorum þarna voru búðirnar hálftómar, hægt að fá
grófan klósettpappír og hrísgrjón í pokum. Í dag er
þarna allt til alls og meira að segja hægt að
kaupa Snickers í stórmörkuðum,“ segir
Einar.
Íslendingar hafa undanfarin ár sinnt
miklu þróunarstarfi í Níkaragva og
Einar útilokar ekki að hann vilji taka
þátt í því með einhverjum hætti.
„Við fórum þangað á sínum tíma
til að bjarga heiminum en ég get
ekki betur séð en að okkur hafi
mistekist þannig að það má alltaf
gera betur,“ segir Einar en hann
er nú að klára heimildarmynd um
byggð á Vestfjörðum sem ætti að
koma fyrir augu almennings á
næstu misserum. - fgg
Leikstjóri fer til Níkaragva
HUGSJÓNIR Einar
Þór frumsýndi
kvikmynd í síðustu
viku en er á leiðinni
til Níkaragva til að
kveða niður gamla
drauga.
Fjórar kvikmyndir verða
frumsýndar í kvikmyndahúsum
borgarinnar yfir páskana. Þar ber
hæst spennumyndin In Bruges
sem skartar Colin Farrell og
Ralph Fiennes í aðalhlutverkum.
Myndin segir frá tveimur
leigumorðingjum sem er falið
smá verkefni í Brussel. Ferðin
snýst hins vegar upp í smá frí
þegar verkið dregst aðeins á
langinn en sá tími sem félagarnir
eyða með hvor öðrum verður
alltaf eldfimari og eldfimari.
Af öðrum kvikmyndum sem
verða frumsýndar um helgina má
nefna spennutryllinn Shutter með
Joshua Jackson úr Dawsons
Creek í aðalhlutverki og Spider-
wick Chronicles. Þar að auki
verður kvikmyndin Hannah
Montana sem skartar bandarísku
unglingastjörnunni Miley Cyrus í
aðalhlutverki.
Hátíð í kvik-
myndahúsum
LEIGUMORÐINGI Colin Farrell leikur
leigumorðingja í kvikmyndinni IN
Bruges.
Fyrsta plata bresku söngkonunn-
ar Duffy, Rockferry, kemur út
hérlendis 7. apríl. Platan kom út í
Bretlandi fyrir stuttu og fór beint
á toppinn. Seldist hún sex sinnum
meira en platan sem varð í öðru
sæti. Hefur fyrsta smáskífulagið
Mercy jafnframt setið í fjórar
vikur á toppi breska vinsældalist-
ans.
Duffy var uppgötvuð árið 2004
af Jeannette Lee, sem í dag er
umboðsmaður hennar. Jeannette
kom fljótlega á sambandi við
Bernard Butler, fyrrum gítarleik-
ara Suede, og stjórnaði hann
upptökum á Rockferry ásamt því
að semja fjögur lög á plötunni
með Duffy.
Fyrsta platan
frá Duffy
DUFFY Breska söngkonan Duffy gefur á
næstunni út sína fyrstu plötu.
Komið er út heildarsafn með Þursaflokknum sem inniheldur
allar fjórar plötur sveitarinnar ásamt aukaplötu með fimm lögum af
plötunni sem aldrei kom „Ókomin forneskjan“. Þá er að finna lög af
tónleikum sveitarinnar frá ýmsum tímum. Allar plöturnar hafa verið
settar í nýjan búning í tilefni útgáfunnar, bæklingar og kápa innihalda
áður óbirtar myndir og sögu Þursaflokksins.
Hinn íslenzki
Þursaflokkur
Þursabit Á hljómleikum Gæti eins verið... Ókomin forneskjan
- 1984 af plötunni sem aldrei kom
- og fleiri hljóðrit frá horfnum tíma