Fréttablaðið - 19.03.2008, Síða 72
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
BAKÞANKAR
Þórhildar Elínar
Elínardóttur
Veröldin er gerð úr frumeind-um, óteljandi mörgum lífseig-
um snifsum sem mynda allt efni
sem er; jörð og loft, himin og haf,
plöntur, dýr og okkur. Efnið er
orka sem ekki eyðist heldur
umbreytist í annað þegar hún
sundrast. Ferlið tekur töluverðan
tíma, en að lokum hafa frumeind-
irnar í einhverri mynd dreifst um
alheiminn og orðið að öðru. Þannig
eru allir menn að hluta til meðal
annars gerðir úr frumeindum fólks
sem safnaðist til mæðra sinna
fyrir lifandis löngu. Sjálf kýs ég til
dæmis að vera að dálitlu leyti búin
til úr Hallgerði langbrók, Leonar-
do da Vinci og Kleópötru því það
er svo hollt fyrir sjálfstraustið.
ÞETTA með frumeindirnar gildir
sama hverrar trúar fólk kann að
vera, hvort sem menn vita sig eftir
dauðann fara til himnaríkis eða
ekki lengra en undir græna torfu. Í
öllu falli umbreytist hinn efnislegi
hluti okkar að lokum og myndar til
dæmis það fólk sem á eftir kemur.
Það er að segja ef það kemur. Því
með sama áframhaldi leggjum við
daglega grunninn að því að kyn-
slóðir framtíðarinnar verði færri
en annars hefði orðið, þó að sumir
þráist við að viðurkenna eigin
ábyrgðarskyldu. Vitaskuld er full
ástæða til að hafa áhyggjur af
efnahagsástandinu og íslensku
krónunni, en trúlega er veröldinni
mun meiri hætta búin af mengun
og loftslagsbreytingum.
UMHVERFISVITUNDIN er
ennþá mun fallegri í auglýsingum
en raunverulega lífinu þar sem
svo óendanlega mörg önnur verk-
efni æpa og veina á tafarlausa
athygli. Heimurinn hefur líka kom-
ist svo prýðilega af hingað til án
allra tískuorða eins og kolefnis-
jöfnunar sem enginn man hvort eð
er hvað þýðir. Þetta hlýtur að redd-
ast áfram, er það ekki? Var ekki
líka einhver að segja að bráðnun
jöklanna stafaði bara af náttúru-
legum hitasveiflum?
ÞAÐ er óþægilegt að hugsa mikið
um stóru vandamálin. Þau eiga það
nefnilega sameiginlegt að vera
flókin úrlausnar og krefjast þátt-
töku fjöldans. Fyrsta skrefið er
samt alveg hægt að taka upp á
eigin spýtur og felst einfaldlega í
því að taka afstöðu. Hver og einn
getur alveg örugglega lagt sína
litlu teskeiðarfylli af mörkum án
þess að umbylta tilverunni. Því
meðan klukkan tifar halda höfin
annars áfram að fyllast af rusli og
jöklarnir að bráðna.
Efniviður
framtíðar
Í dag er miðvikudagurinn 19.
mars, 79. dagur ársins.
7.31 13.25 19.41
7.15 13.20 19.27
www.toyota.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/T
O
Y
4
10
86
3
/0
8
Toyota Kópavogi
Nýbýlavegi 4
Kópavogur
Sími: 570-5070
Toyota Akureyri
Baldursnesi 1
Akureyri
Sími: 460-4300
Toyota Reykjanesbæ
Njarðarbraut 19
Reykjanesbær
Sími: 420-6600
Toyota Selfossi
Fossnesi 14
Selfoss
Sími: 480-8000
Toyota Austurlandi
Miðási 2
Egilsstaðir
Sími: 470-5070
Allt
að
90%
fjár
mö
gnu
n.
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
Léttar
veiting
ar í bo
ði.
Gaggandi páskatilboð í allan dag.
Úrval spennandi tilboða
á nýjum og glæsilegum bílum.
Komdu
og rey
nsluakt
u. Þú g
etur un
nið
ferðavin
ning til
Evrópu
fyrir tv
o.
Komdu og upplifðu frábæra
páskastemningu hjá söluaðilum
toyota um land allt