Fréttablaðið - 12.04.2008, Page 2

Fréttablaðið - 12.04.2008, Page 2
2 12. apríl 2008 LAUGARDAGUR Guðni, er Seðlabankinn í stýri- vaxtarækt? „Nei, því miður, þetta er eyðimerk- urganga.“ Guðni Ágústsson, formaður Fram- sóknarflokksins, telur að vaxtahækkun Seðlabankans slái ekki á verðbólgu. Á hinn bóginn verði hún til að dauðrota íslenskt athafnalíf. SAMGÖNGUMÁL Sæfari, ný Grímseyjarferja, fór í sína fyrstu ferð í gær þegar siglt var frá Dalvík. Þaðan mun ferjan halda uppi reglulegum siglingum til Grímseyjar. Við komuna til Grímseyjar var Grímseyingum, samgönguráð- herra og vegamálastjóra boðið til athafnar um borð í Sæfara. Að því búnu var siglt í kringum eyjuna. Sigling nýs Sæfara milli Dalvíkur og Grímseyjar tók um þrjár klukkustundir og fimmtán mínútur. Það er litlu skemmri tími en tók gamla Sæfara að sigla þá 67 kílómetrar sem eru þar á milli. - ovd Grímseyjarferjan Sæfari: Nýr Sæfari hefur siglingar GRÍMSEYJARFERJAN SÆFARI Áætlunar- ferðir milli Grímseyjar og Dalvíkur með nýjum Sæfara hófust í gær. MYND/FREYR ANTONSSON UMHVERFISMÁL Tvö þúsund fermetrar af veggjakroti hafa nú þegar verið hreinsaðir við Laugaveg í átaki í hreinsun veggjakrots í miðborg Reykjavík- ur. Átakið hefur staðið yfir í rétt rúma viku og hafa farið rúmlega 500 vinnustundir í að hreinsa sjötíu prósent fasteigna við Laugaveg. Að sögn verkefnis- stjóra átaksins hefur hreinsunin gengið mjög vel og viðbrögð eigenda, rekstraraðila og almennings verið mjög jákvæð. Vegfarendur um Laugaveg hafa einnig látið í ljós ánægju sína og hvatt starfsmenn borgarinnar og verktaka til dáða. - kg Átak í hreinsun veggjakrots: Laugavegurinn næstum hreinn HREINSUNARÁTAK Sjötíu prósent fasteigna við Laugaveg hafa þegar verið hreinsuð. SLYS Karlmaður á sextugsaldri lést í hörðum árekstri á Suðurlandsvegi í Ölfusi í gærmorg- un. Slysið varð með þeim hætti að pallbifreið sem ekið var vestur Suðurlandsveg fór yfir á rangan vegarhelming og rakst á vinstra horn vörubifreiðar sem kom úr gagnstæðri átt. Pallbifreiðin rann áfram eftir hlið vörubílsins og skall síðan framan á lítilli sendibifreið sem var ekið á eftir vörubifreiðinni. Þyrla Landhelgisgæslunnar flutti ökumann sendibílsins á Landspítalann í Fossvogi, þar sem hann var úrskurðaður látinn. Ökumaður pallbílsins var einnig fluttur með þyrlunni en meiðsli hans reyndust ekki alvarleg. Lögreglan á Selfossi rannsakar tildrög slyssins. Aðstæður til aksturs voru góðar þegar slysið varð, vegurinn þurr og bjart í veðri. Slysið varð á móts við Hvammsveg við Gljúfurárholt og er þriðja banaslysið sem verður á vegakaflanum milli Hveragerðis og Selfoss á rúmu ári. Þar hafa nú orðið fjögur banaslys frá árinu 1992. Gunnar Geir Gunnars- son, verkefnastjóri slysaskráningar hjá Umferðarstofu, segir að slys séu vissulega tíð á þessum kafla en þó í meðallagi séu allir vegakaflar í grennd við höfuðborgarsvæðið skoðaðir. Ekki er unnt að greina frá nafni hins látna að svo stöddu. - þo Þrjú banaslys hafa orðið á veginum milli Hveragerðis og Selfoss á rúmu ári: Karlmaður lést eftir harðan árekstur HARÐUR ÁREKSTUR Pallbíllinn rakst á vörubifreið og kastaðist síðan á sendi- ferðabíl. Ökumaður sendibílsins lést. EFNAHAGSMÁL Kristján Gunnars- son, formaður Starfsgreinasam- bandsins, SGS, segir að ekki reyni á starf forsendunefndar fyrr en í byrjun næsta árs þegar tíma- mörkin í framlengingarákvæði kjarasamninga komi til umræðu. Verkalýðshreyfingin hafi hins vegar kallað eftir samráði við stjórnvöld og vinnuveitendur og fengið undirtektir en svo gerist ekki neitt. Forsendur samninga á almenn- um vinnumarkaði eru tvær; að kaupmáttur standi í stað eða fari ekki minnkandi, og verðbólgu- markmið. „Ef svo heldur fram sem horfir fjúka bæði þessi skil- yrði og annað dugar til að samn- ingurinn verði ekki framlengdur,“ segir Kristján og kveðst hafa áhyggjur af þróuninni. „Mér finnst ríkisstjórnin láta reka á reiðanum. Þetta veldur óskaplegum óstöðugleika. Við höfum af þessu verulegar áhyggj- ur, bæði félögin og Alþýðusam- bandið. Mér finnst við fljóta að feigðarósi.“ Framkvæmdastjórnarfundur verður hjá Starfsgreinasamband- inu í næstu viku og býst Kristján við að staðan í efnahagsmálum verði til umræðu þar. „Það hafa allir á þessu skoðanir. Krónan er eins og sökkvandi skip og alltaf að bætast fleiri í þann hóp sem vilja yfirgefa krónuna. Samtök atvinnu- lífsins eru nú með hugmyndir um bakleiðir að evrunni. Þeim væri ráðlegast að koma alveg út úr skápnum og leggja til að við tökum upp viðræður við Evrópu- sambandið og göngum í það. Við í verkalýðshreyfingunni viljum aðildarviðræður.“ - ghs LÆTUR REKA Á REIÐANUM „Mér finnst ríkisstjórnin láta reka á reiðanum,“ segir Kristján Gunnarsson, formaður Starfs- greinasambandsins. Formaður Starfsgreinasambandsins um forsendur nýgerðra kjarasamninga: Köllum eftir víðtæku samráði M YN D /Ó LA FU R Þ. Ó LA FSSO N FISKVINNSLA Bæjarráð Akraness hefur falið bæjarstjóra og formanni Verkalýðsfélags Akraness að krefja forsvarsmenn HB Granda um svör varðandi tilfærslu aflaheimilda. Gísli S. Einarsson bæjarstjóri segir að kallað verði eftir úttekt á stöðunni. „Við viljum vita hvað hefur farið mikið af heimildum frá þeim og hvert,“ segir Gísli. Hann segir Akurnesinga ósátta með tilfærsluna. „Við skiljum ekki af hverju verið er að færa heimildir frá Akranesi, þar sem fiskvinnsla er ríkjandi, til Reykja- víkur þar sem hún er víkjandi.“ - kóp Akranesbær spyr HB Granda: Vilja vita hvert kvótinn fór GÍSLI S. EINARSSON FJÁRMÁL Gengi deCODE Genetics, móðurfélags Íslenskrar erfðar- greiningar, féll í 1,20 í gær. Er þetta lægsta gengi sem félagið hefur náð. Þegar leið á daginn hækkaði gengið og fór hæst í 1,37, en var í 1,34 við lokun markaða. Markaðsvirði félagsins er samkvæmt þessu um 81,5 milljónir dala, sem samsvarar tæpum sex milljörðum íslenskra króna. Gengi félagsins hefur verið á niðurleið undanfarna daga og nam lækkunin í gær tæpum þremur prósentustigum. - kóp Gengi deCODE lækkar enn: Gengi deCODE aldrei lægra LANDBÚNAÐUR Í fyrra voru framleiddar 124 milljónir lítra af mjólk á landinu og hefur magnið aldrei verið svo mikið. Þetta kom fram á aðalfundi Auðhumlu sem haldinn var á fimmtudag. 112 lítrar komu frá framleið- endum Auðhumlu, eða sem svarar 91% allrar mjólkurfram- leiðslu. Auðhumla er samvinnufélag í eigu um 700 mjólkurframleið- enda og rekur meðal annars Mjólkursamsöluna. Heildarsala félagsins nam 12,6 milljörðum króna í fyrra og var rekstrartap 588 milljónir króna. Tapið nam 196 milljónum þegar horft er til fjármagnstekna. - kóp Metmjólkurframleiðsla 2007: 124 milljónir mjólkurlítra HÚSNÆÐISMÁL „Fasteignaverðból- an var alþjóðlegt fyrirbæri og skýrist fyrst og fremst af einstak- lega hagstæðum fjármálaskilyrð- um og lægstu vöxtum á mörkuðum í hundrað ár. Hjöðnun þessa fast- eignaverðs verður líka alþjóðlegt fyrirbæri,“ segir Arnór Sighvats- son, aðalhagfræðingur Seðlabanka Íslands. Hann segir spá bankans um þrjátíu prósenta lækkun fast- eignaverðs fram til loka árs 2010 raunsæja og eðlilega. Arnór segir bankann ekki geta spáð nákvæmlega fyrir um verð frekar en aðrir sem það reyni. Hins vegar sé nauðsynlegt að skoða málin í samhengi við ástandið eins og það er. „Ef við horfum á raun- verðið [á fasteignamarkaði] erum við ekki að gera ráð fyrir að það falli niður fyrir meðaltalsraun- verðið á undanförnum tíu árum. Það meðaltalsraunverð er miklu hærra en meðaltalsraunverðið ára- tugina á undan. Að vissu leyti erum við því bara að reikna með því að fasteignamarkaðurinn fari í venju- lega stöðu,“ segir Arnór. Arnór segir efnahagslægðina sem nú einkenni alþjóðleg hag- kerfi meðal annars hafa þau ein- kenni að fasteignaverð falli. Þá séu markaðsaðstæður hér á landi óhagstæðar á mörgum vígstöðv- um. „Það sem við stöndum frammi fyrir núna er raunlækkun sem er meiri en nokkurn tímann áður. Við stöndum líka frammi fyrir við- skiptahalla sem er meiri en nokk- urn tímann áður. Við erum líka með efnahagsreikninga einstakl- inga og fyrirtækja sem eru við- kvæmari fyrir gengislækkun en nokkurn tímann áður. Gengislækk- unin síðan í nóvember er hraðari og meiri en við höfum séð áður. Það er því ansi margt sem er í meira ójafnvægi en það hefur verið,“ segir Arnór. Hann segir verðlækkanir komn- ar fram víða um heim. Meðal ann- ars hafi fasteignaverð víðs vegar um Bandaríkin lækkað mikið, um fimmtán til tuttugu prósent á einu ári. Merki mikilla verðlækkana sjáist nú í Englandi, Írlandi, Spáni, Danmörku og Noregi. Guðmundur Bjarnason, forstjóri Íbúðalánasjóðs, segir stjórnvöld geta gert margt til þess að koma í veg fyrir skell á fasteignamark- aðnum. „Ég hef ekki trú á því að ástandið sé eins slæmt og Seðla- bankinn spáir en það er ekki gott að segja. Það má afnema bruna- bótamatsviðmið á lánum Íbúða- lánasjóðs og hækka hámarkslán hans til þess að bregðast við stöð- unni. Hámarkslán hjá okkur er átján milljónir, sem er auðvitað allt of lágt miðað við markaðsstöð- una. Þá finnst mér koma til greina að hækka lánshlutfallið í níutíu prósent.“ - mh Hrun fasteignaverðs alþjóðlegt vandamál Aðalhagfræðingur Seðlabanka Íslands segir spá um 30 prósenta verðlækkun á íbúðaverði vera raunsæja og eðlilega. Hluti af alþjóðlegri þróun. Guðmundur Bjarnason segir stjórnvöld geta brugðist við með stuðningi við Íbúðalánasjóð. ÍBÚÐABYGGINGAR Seðlabankinn spáir þrjátíu prósenta verðlækkun á fasteignum til ársloka 2010. Meðal þess sem getur kynt undir verðlækkun er mikið framboð húsnæðis á sama tíma og eftirspurn er lítil. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON „Ef Seðlabankinn spáir því að fasteignaverð muni lækka og sú spá er talin trúverðug þá getur það kallað fram lækkun,“ segir Gylfi Magnússon, dósent í hagfræði við Háskóla Íslands. Aðspurður hvort hann telji að Seðlabankinn sé með spánni að reyna að tala verðbólguna niður, í ljósi þess að fasteignaverð er inni í vísitölureikn- ingum, segist Gylfi telja það ósennilegt. „Hins vegar lítur út fyrir að það eina sem geti lækkað verðbólguna hratt eins og sakir standa sé mikil lækkun á fasteignamarkaði, því aðrir hlutir gefa ekki mikið eftir.“ Gylfi Magnússon dósent: Spáin getur kallað fram verðlækkun Stjórnin afléttir hömlum Nýja ríkisstjórnin í Pakistan hófst í gær handa við að afturkalla margar umdeildar ákvarðanir Pervez Mus- harrafs forseta. Í gær var lagt fram frumvarp um að aflétta hömlum á starfsemi fjölmiðla. PAKISTAN Viðræður dragast á langinn Kjaraviðræður flugumferðarstjóra standa enn yfir en þær hófust í lok janúar. Loftur Jóhannesson, formaður samninganefndar flugumferðarstjóra, segist vonast til að sættir náist fljótt en eitthvað beri þó enn á milli. KJARAMÁL SPURNING DAGSINS
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.