Fréttablaðið - 12.04.2008, Blaðsíða 10
10 12. apríl 2008 LAUGARDAGUR
VIÐSKIPTI Velta í dagvöruverslun
jókst um 7,2 prósent í marsmánuði
miðað við sama mánuð í fyrra. Er
þá miðað við fast verðlag. Hækk-
unin nam hins vegar fjórtán pró-
sentum á breytilegu verðlagi.
Kemur þetta fram í niðurstöðum
Rannsóknarseturs verslunarinnar
á Bifröst.
Minni munur var á milli febrú-
armánaða í ár og í fyrra og er
skýringa líklega að leita í því að í
ár var páskahátíðin í mars með til-
heyrandi aukinni verslun. Þá
hækkaði verð á dagvöru um 6,4
prósent nú í mars frá því í mars í
fyrra.
Sala á áfengi í mars jókst um
4,4 prósent á breytilegu verðlagi
frá því í mars í fyrra. Verð á
áfengi hækkaði um 2,3 prósent á
sama tíma.
Samdráttur varð hins vegar í
fata- og skóverslun þar sem hún
dróst saman um þrettán prósent
milli marsmánaða 2007 og 2008. Á
breytilegu verðlagi nam samdrátt-
urinn 8,7 prósentum. Verð á fötum
hækkaði um fimm prósent á tíma-
bilinu og verð á skóm um 11,6 pró-
sent samkvæmt verðmælingum
Hagstofu Íslands.
Í tilkynningu frá Rannsóknar-
setri verslunarinnar segir að þó að
töluverðar hækkanir hafi orðið á
matvælum að undanförnu hafi velta
dagvöruverslana hækkað meira en
þeim verðhækkununum nemur. - ovd
Landsmenn kaupa meira af mat og drykk þrátt fyrir hækkun vöruverðs:
Aukin velta í dagvöruverslun
TÍSKUVERSLUN Samdráttur varð í fata-
og skóverslun í mars.
SPÁNN, AP Spánarþing staðfesti í
gær Jose Luis Rodriguez Zapat-
ero, leiðtoga sósíalista, í embætti
forsætisráðherra annað kjörtíma-
bilið í röð.
Sósíalistaflokkurinn vann
þingkosningar sem fram fóru 9.
mars en náði ekki hreinum
meirihluta. Ekkert samkomulag
hefur enn tekist sem tryggir
þingmeirihluta og því náði
Zapatero ekki tilskildum stuðningi
er fyrst var kosið um staðfestingu
hans í embætti á mánudag. Því
kom til annarrar umferðar
atkvæðagreiðslunnar þar sem
einfaldur meirihluti dugði.
Zapatero mun stýra minnihluta-
stjórn sem þarf að semja við
smáflokka um hvert þingmál. - aa
Atkvæðagreiðsla á Spánarþingi:
Zapatero stað-
festur í embætti
JOSE LUIS ZAPATERO Spánarþing hefur
staðfesti Zapatero í embætti forsætis-
ráðherra.
JAPAN, AP Japanska sjávarútvegs-
ráðuneytið tilkynnti í gær að það
hefði í nafni vísindaveiðaáætlun-
ar sinnar gefið út kvóta til veiða á
sextíu hrefnum í norðanverðu
Kyrrahafi næstu vikurnar.
Fimm hvalveiðibátar, sem
gerðir eru út í rannsóknaskyni,
munu annast veiðarnar og hefja
þær strax á næstu dögum á
miðunum norður af Japan. Meðal
þess sem rannsakað verður er á
hverju hvalirnir nærast og áhrif
þeirra á nytjafiskastofna.
Í nafni vísindaveiðaáætlunar
sinnar, sem er lögleg samkvæmt
reglum Alþjóða hvalveiðiráðsins,
veiða Japanar um 1.000 hvali á ári.
- aa
Vísindaveiðar Japana:
Veiða 60 hrefn-
ur í Kyrrahafi
HREFNUVEIÐAR Rannsaka næringarvenj-
ur og áhrif á fiskistofna. MYND/HAFRÓ
Sinubruni í Fossvogi
Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu
var kallað út um miðjan dag í gær til
að slökkva eld í sinu við Aðalland í
Fossvogi. Greiðlega gekk að slökkva
eldinn.
LÖGREGLUFRÉTTIR
PÓLLAND Átján ára pólskur
slökkviliðsmaður á yfir höfði sér
tíu ára fangelsi fyrir íkveikjur.
Glæpinn framdi hann svo að hann
fengi að vinna meiri yfirvinnu og
hefði efni á gjöf handa kærust-
unni sinni.
Maðurinn er sakaður um að
hafa kveikt í hlöðu í bænum
Studzianski og farið svo á slökkvi-
stöð bæjarins þar sem hann
starfaði fyrir jafnvirði tæpra 300
króna á tímann. Lögregla segir að
hann hafi kveikt í tveimur öðrum
hlöðum í vikunni á eftir, en að
lokum verið staðinn að verki.
- sgj
Pólskur slökkviliðsmaður:
Kveikti í til að
geta keypt gjöf