Fréttablaðið - 12.04.2008, Blaðsíða 88
52 12. apríl 2008 LAUGARDAGUR
Myndlistarmaðurinn Jóhannes
Dagsson opnar sýninguna Stöðu-
myndir í DaLí Gallery, Brekku-
götu 9 á Akureyri, í dag kl. 17.
Jóhannes leitar ekki langt yfir
skammt eftir innblæstri heldur
sækir hann efnivið í verk sín í tvö
af fyrirferðarmeiri menningar-
fyrirbærum liðinnar aldar, mod-
ernisma og fótbolta. Stöðumyndir
er ellefta einkasýning Jóhannesar
og á hann einnig að baki þátttöku í
fjölmörgum samsýningum.
Jóhannes lauk myndlistarnámi
frá Myndlistaskólanum á Akur-
eyri 1997 og námi í heimspeki og
bókmenntum frá Háskóla Íslands
2000. Síðan lá leið hans til Skot-
lands til listnáms í Edinburgh Coll-
ege of Art sem hann lauk árið
2002, en í dag stundar hann meist-
aranám í heimspeki við Háskóla
Íslands.
Sýningin Stöðumyndir stendur
til 27. apríl. Sýningin er opin föstu-
daga og laugardaga kl. 14-17 og
eftir samkomulagi. Allir eru vel-
komnir. - vþ
Ellefta einkasýning
Jóhannesar
MÓDERNISMI OG FÓTBOLTI Verk eftir
Jóhannes Dagsson.
Sinfóníuhljómsveit Íslands og
Valur Freyr Einarsson leikari
fluttu í lok mars ævintýrið um
músina tónelsku Maxímús Músík-
ús. Það er skemmst frá að segja að
tónleikarnir slógu í gegn hjá áhorf-
endum jafnt sem gagnrýnendum
og komust færri að en vildu. En
þeir fjölmörgu sem misstu af
þessum viðburði geta nú tekið
gleði sína á ný, því laugardaginn
17. maí verða tónleikarnir endur-
teknir.
Tónleikarnir byggja á nýútkom-
inni bók eftir tvo liðsmenn hljóm-
sveitarinnar, þau Hallfríði Ólafs-
dóttur flautuleikara sem skrifaði
söguna og Þórarin Má Baldursson
víóluleikara sem teiknar myndirn-
ar. Maxímús Músíkús heimsækir
hljómsveitina heitir bókin og trón-
ir efst á metsölulistum bókabúð-
anna þessa dagana.
Í bókinni segir frá ævintýrum
lítillar músar, Maxímúsar Músík-
úsar, sem dettur heldur betur í
lukkupottinn þegar hann rambar
inn í tónlistarhús þar sem sinfón-
íuhljómsveit æfir sig fyrir tón-
leika. Maxímús þekkir tónlist
mannfólksins úr frægðarsögum
langafa síns en nú fær hann loks-
ins að kynnast henni af eigin
raun.
Í þessari fjörugu sögu er les-
andinn leiddur inn í töfraheima
tónlistarinnar í orði og tónum.
Hljóðfærin eru kynnt eitt af öðru
eftir því sem ævintýrum Maxí-
músar vindur fram og lesendur
læra að þekkja hljóðin sem þau
gefa frá sér.
Á tónleikunum mun Valur Freyr
flytja söguna og hljómsveitin búa
til viðeigandi leikhljóð og leika
síðan þau tónverk sem koma við
sögu í bókinni, þeirra á meðal Bol-
ero eftir Ravel, fyrsta þáttinn í
fimmtu sinfóníu Beethovens og Á
Sprengisandi í frábærri útsetn-
ingu Páls P. Pálssonar. Myndirnar
úr bókinni leika og stórt hlutverk.
Stjórnandi er Bernharður Wilkin-
son.
Trúðurinn Barbara lítur líka við
og telja má víst að Maxímús sjálf-
ur muni kíkja í heimsókn.
Tónleikarnir verða laugardag-
inn 17. maí og hefjast kl. 14. Miða-
verð er 1.400 kr.
Maxímús snýr aftur
MAXÍMÚS MÚSÍKÚS Tónelsk mús sem lendir í hljómsveitarævintýri.
Hið flunkunýja sýningarrými
Reykjavík Art Gallery, sem starf-
rækt er á Skúlagötu 28, þar sem
áður var til húsa kexverksmiðjan
Frón, slær ekkert af í sýningar-
gleði heldur býður Reykvíkingum
upp á, frá og með deginum í dag,
sýningu á verkum Ólafs Lárusson-
ar myndlistarmanns.
Á sýningunni má sjá myndir
sem unnar eru með blandaðri
tækni á pappír á árunum 2006 og
2007. Ólafur Lárusson nam mynd-
list við Myndlista- og handíðaskól-
ann í Reykjavík og við Atelier 63,
Haarlem í Hollandi á áttunda ára-
tug síðustu aldar. Hann hefur hald-
ið tugi einkasýninga og tekið þátt í
fjölda samsýninga og eru verk
hans í eigu fjölmargra safna og
opinberra stofnana. - vþ
Ný verk Ólafs
ÓLAFUR LÁRUSSON Sýnir myndlist sína
í Reykjavík Art Gallery frá og með morg-
undeginum.
Vaka-Helgafell endurútgefur nú
ljóðasafn Steins Stein-
arr sem hefur verið
ófáanlegt um skeið
en birtist hér í nýjum
búningi. Ljóðasafnið
hefur að geyma öll
þau ljóð sem Steinn
bjó sjálfur til útgáfu auk ýmissa ljóða
sem ekki komu út á bók fyrr en ríflega
þremur áratugum eftir lát hans. Fremst
í bókinni er jafnframt ritgerð Kristjáns
Karlssonar um skáldskap Steins. Þegar
Steinn lést á fimmtugasta aldursári
vorið 1958 hafði hann öðlast sess sem
eitt virtasta ljóðskáld Íslendinga á 20.
öld. Í ár eru liðin 100 ár frá fæðingu
Steins og 50 ár frá dánardægri hans
og má með sanni segja að ljóð hans
hafi fundið hljómgrunn hjá hverri nýrri
kynslóð í landinu og eigi alltaf erindi.
Vaka-Helgafell sendir nú frá sér
kvæðasafn Þórarins
Eldjárn sem hefur
að geyma mikinn
skáldskaparfjár-
sjóð: allar útgefnar
ljóðabækur hans, átta
talsins, og úrval úr
fimm barnaljóðabókum, hátt á fjórða
hundrað kvæða alls. Hér má finna afar
fjölbreytilegan ljóðaforða: hárbeittar
ádeilur, græskulaust gaman, sorg og
trega, heimspekilegar vangaveltur,
náttúrustemningar, orðaleiki, íhuganir
um lífið, söguna, landið og tungu-
málið. Mörg ljóðanna eru bundin í
rím og stuðla en önnur lausbeislaðri í
formi enda er skáldið jafnvígt á ýmis
ólík stílbrögð orðlistarinnar. Þórarinn
Eldjárn er fæddur 1949. Fyrsta ljóða-
bók hans kom út 1974 og vakti strax
mikla athygli: hér var komið fram ungt
skáld sem orti háttbundin ljóð og gekk
þar mjög gegn tímans straumi. Með
þessari þjóðlegu nálgun, ásamt beittu
skopskyni og einstæðri leikni með
íslenskt mál, ávann Þórarinn sér þegar
í stað hylli landsmanna. Seinna kom
á daginn að hann hefur ekki síður
vald á óbundnum ljóðstíl. Ljóðabækur
hans og ljóðskreytingar eru orðnar um
tuttugu talsins. Að auki hefur hann
sent frá sér smásagnasöfn, skáldsögur,
leikverk og aðra texta af ýmsu tagi,
ásamt margvíslegu þýddu efni.
Komin er út hjá Ver-öld ljóðabókin Agn-
arsmá brot úr eilífð eftir
Ólaf Ragnarsson, bóka-
útgefanda og frétta-
mann. Ljóðin orti Ólafur
síðustu tvö ár ævi sinnar
eftir að hann greindist
með MND-sjúkdóminn,
hreyfitaugahrörnun, og missti málið af
völdum hans. Þótt hann væri nánast
alveg orðinn lamaður frá tungurótum
og niður í tær er ljóst af ljóðunum að
baráttuviljinn var óbilandi, hugurinn
frjáls og flögraði víða. Ólafur Ragnars-
son lést hinn 27. mars síðastliðinn en
bókin kom úr prentverkinu nokkrum
dögum áður. Agnarsmá brot úr eilífð
er 61 blaðsíða að lengd. Ragnar Helgi
Ólafsson hannaði útlit bókarinnar
að utan jafnt sem innan en hún er
prentuð í Odda.
NÝJAR BÆKUR
GERÐUBERG
www.gerduberg.is
Sýningarnar eru opnar virka daga frá 11-17 og um helgar frá 13-16.
Sími 575 7700 • gerduberg@reykjavik.is
Hið breiða holt - Ljósmyndasýning
Sunnudaginn 13. apríl kl. 15 munu Berglind Jóna
Hlynsdóttir sýn.stjóri, Einar Falur Ingólfsson, ljósmynd-
ari og Sigrún Sigurðardóttir, menningarfræðingur bjóða
upp á leiðsögn og óformlegt spjall um sýninguna.
Ókeypis aðgangur!
Stefnumót við safnara III
Hljómfagurt stefnumót við tónlistarmenn og
hljóðfærasafnara!
Sýningarstjórn: Anik Todd og Una Stígsdóttir
Boðið er upp á leiðsögn fyrir hópa. s. 575 7700
Sjö landa sýn - María Loftsdóttir
Vatnslitastemmningar frá ferðalögum listakonunnar
um Argentínu, Bólivíu, Brasilíu, Ísland, Japan, Perú
og Skotland.
Vissir þú...
...að í Gerðubergi er frábær aðstaða fyrir
ráðstefnur, námskeið, fundi og veislur?
Salir og fundarherbergi fyrir 8 - 120 manns.
Sjá nánari upplýsingar: www.gerduberg.is, s. 575 7700.
10 - 11 - 17 - 18 - 24 - 30. apríl
kl 20.00 alla daga
ALLAR SÍÐUSTU
SÝNINGAR
NÝ OG FÁRÁNLEGA SKEMMTILEG SÝNING UM FJÁRMÁL ÍSLENDINGA!
D
Y
N
A
M
O
R
EY
K
JA
V
IK Sýnt í Salnum Kópavogi
Miðasala hjá Salnum í síma 5700 400, á salurinn.is
og midi.is. Miðaverð 2000 kr. 50% afsláttur er fyrir
viðskiptavini Byrs (hámark 5 miðar) ef keypt er í miða-
sölunni í Salnum. ATH! Takmarkaður sýningafjöldi.
D
Y
N
A
M
O
R
EY
K
JA
V
IK
Þri 15/4 kl. 20
Mið 16/4 kl. 20
Fös 18/4 kl. 21
Lau 19/4 kl. 19
Lau 19/4 kl. 21
Fös 2/5 kl. 19
Fös 2/5 kl. 21
Lau 3/5 kl. 20
Lau 3/5 kl. 22
Fös 16/5 kl. 19
Fös 16/5 kl. 21
Lau 17/5 kl. 19
Lau 17/5 kl. 21
Forsýning - uppselt
Forsýning - uppselt
Frumsýning - uppselt
Uppselt
S Ý N I N G A R
Fyrst var það Hellisbúinn, síðan Pabbinn og nú er það HVERS VIRÐI ER ÉG?
Óborganlega fyndin sýning Bjarna Hauks Þórssonar um fjármál Íslendinga.
Frábær sýning í leikstjórn Sigurðar Sigurjónssonar.
FIMMTUDAGUR 10. APRÍL KL. 20
TIL FLUGS – SÖNGTÓNLEIKAR.
HÖRN HRAFNSDÓTTIR OG
ANTONÍA HEVESI.
LÖG GUNNAR REYNIR OG
LJÓÐ HRAFN HARÐARSON.
FÖSTUDAGUR 11. APRÍL KL. 16
FIÐLUTÓNLEIKAR – LHÍ.
GUÐNÝ ÞÓRA GUÐMUNDSDÓTTIR.
Aðgangur ókeypis, allir velkomnir
LAUGARDAGUR 12. APRÍL KL. 17
TÍBRÁ: PÍANÓTÓNLEIKAR
IVAN KLÁNSKÝ.
TUNGLSKINSSÓNATAN,
NÆTURLJÓÐ CHOPINS O.FL.
SLAGHÖRPUSNILLD!
SUNNUDAGUR 13. APRÍL KL. 16
KLARÍNETTUTÓNLEIKAR - LHÍ
KRISTJÁN RÚNARSSON
Aðgangur ókeypis, allir velkomnir