Fréttablaðið - 12.04.2008, Blaðsíða 15
LAUGARDAGUR 12. apríl 2008 15
Forstjóri Fjármálaeftir-
litsins segir að fjármála-
fyrirtækin verði að huga
að aðhaldi, sameiningum,
krossstjórnarsetu og aukins
gegnsæis í upplýsingagjöf.
„Æskilegt væri, með það að
markmiði, að stuðla að heilbrigð-
um og traustum rekstri og koma
í veg fyrir hagsmunaárekstra, að
fjármálafyrirtæki og eigendur
þeirra hugi ekki eingöngu að
krosseignartengslum heldur
einnig að krossstjórnarsetu í fyr-
irtækjum í fjármálaþjónustu,“
sagði Jónas Fr. Jónsson, forstjóri
Fjármálaeftirlitsins, í ræðu á
degi Samtaka fjármálafyrir-
tækja í fyrradag.
Þessi ábending var ein þeirra
sex ábendinga til fjármálafyrir-
tækja sem Jónas setti fram í
ræðunni. Hann sagði einnig að
stjórnendur bankanna þyrftu að
sýna að þeir kynnu að rífa seglin
í þeim stormi og stórsjó sem nú
gengi yfir „og lækka kostnað og
minnka efnahag sinn“. Hann
benti á að meginábyrgðin hvíldi
á stjórnendum og eigendum
bankanna. Þeir nytu hagnaðarins
og bæru tapið.
Jónas sagði einnig að nýta ætti
núverandi aðstæður til að huga
að hagræðingu og sameiningum
á innlendum fjármálamarkaði.
„Þá á ég ekki endilega við stór-
samruna,“ sagði Jónas og benti á
að hér á landi hefðu 34 fyrirtæki
starfsleyfi sem lánafyrirtæki.
Verðbréfafyrirtæki væru þarna
ekki talin með.
Þá vill Jónas að bankar auki
gegnsæi í upplýsingagjöf, auk
þess sem bankarnir þyrftu, ef
það hægir á í efnahagslífinu, að
huga að útlánagæðum, grípa
fljótt inn í séu vandræði í upp-
siglingu og leggja strax til hliðar
inn á afskriftarreikning. „Jafn-
framt þurfa fjármálafyrirtækin
að gæta jafnræðis í meðhöndlun
sinni á skuldurum.“
„Í sjötta lagi er stóra verkefnið
að vinna að fjármögnun og við-
halda lausafjárstöðu,“ sagði
Jónas og bætti því við að bank-
arnir hefðu staðið vel að vígi
þegar lausafjárerfiðleikar hóf-
ust á alþjóðamörkuðum. Hins
vegar verði þetta ár tiltölulega
létt í endurfjármögnun, en menn
verði að sýna árvekni „því lausa-
fjárerfiðleikar eru áhætta sem
getur birst með skömmum fyrir-
vara“. ingimar@markadurinn.is
Hvatt til sameininga
„Mest sláandi niðurstaðan er að hrein
staða þjóðarbúsins er betri en áður var
talið út frá opinberum hagtölum,“ segir
Daníel Svavarsson, hagfræðingur í
Seðlabankanum.
Hann segir í Peningamálum að sé staða
þjóðarbúsins reiknuð út frá markaðsvirði
í stað bókfærðs virðis, hafi hrein erlend
staða verið neikvæð um 27 prósent af
þjóðarframleiðslu við lok þriðja fjórð-
ungs síðasta árs. Sé hins vegar miðað við
bókfærða virðið eins og gert er í opinber-
um tölum, hafi staðan verið neikvæð um
120 prósent.
Hér er rætt um skuldir umfram eignir,
en skuldirnar nema hátt í 800 prósentum
af vergri landsframleiðslu. Hún var í
fyrra tæplega 1.300 milljarðar króna,
samkvæmt tölum Hagstofunnar.
Daníel segir eðlilegt að miða við
markaðsvirði. „En ef stuðst er við þessa
aðferðafræði, þá verða sveiflurnar meiri
en ella,“ segir hann.
Hann bendir jafnframt á það í greininni
að eftir því sem hærra hlutfall af
heildarauði þjóðfélagsins er í erlendum
eignum, þeim mun meiri áhrif hafi
breytingar á erlendum mörkuðum á
innlent efnahagslíf. „Það sýnir að
þjóðarbúið er mjög berskjaldað,“ segir
Daníel.
- ikh
Staðan mun betri
en tölurnar sýna FL Group skilar tapi upp á 44,5 milljarða króna á fyrsta fjórðungi ársins samanborið við 15 milljarða hagnað á sama tíma í fyrra.
Þetta er mesta tap skráðs félags í Kauphöll-
inni á fjórðungnum, samkvæmt nýrri afkomu-
spá greiningardeildar Kaupþings.
Í spánni er gert ráð fyrir að fjárfestingar-
félögin skili öll tapi. Á eftir FL Group kemur
Exista, með tap upp á fjórtán milljarða og
Atorka, með tap upp á rúman einn milljarð
króna.
Þá er spáð að Bakkavör skili mestum hagn-
aði, 813 milljónum króna, á meðan Teymi
tapar 4,1 milljarði. Hagnaður Teymis dregst
mest saman á milli ára, eða um 356 prósent.
Greiningardeildin telur að hagnaður bank-
anna muni dragast talsvert saman á tímabil-
inu, að Landsbankanum undanskildum. Mest-
ur er samdrátturinn hjá SPRON. Áætlað tap
sparisjóðsins nemur sjö milljörðum króna
sem er samdráttur upp á 817 prósent. Á sama
tíma er spáð að hagnaður Landsbankans nemi
19 milljörðum króna en það er 5,5 milljörðum
meira en á sama tíma í fyrra. Það er jafn-
framt mesti hagnaður skráðs félags á tíma-
bilinu, samkvæmt spá greiningardeild Kaup-
þings, sem spáir ekki fyrir um eigin afkomu.
- jab
FL Group tapar mestu
RÝNT Í VERSTA
UPPGJÖR
ÍSLANDSSÖG-
UNNAR Greining-
ardeild Kaupþing
spáir því að tap
FL Group verði
það mesta á
fyrstu þremur
mánuðum
ársins.
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/A
N
TO
N
FRÁ DEGI SAMTAKA FJÁRMÁLAFYRIRTÆKJA Lárus Welding, formaður Samtaka fjár-
málafyrirtækja, ræðir við félagsmenn. Forstjóri Fjármálaeftirlitsins segir tímabært fyrir
fjármálafyrirtækin að huga að sameiningum. MYND/SFF
Das Auto.
HEKLA Laugavegi 172-174 · sími 590 5000 · www.hekla.is · hekla@hekla.is
Umboðsmenn HEKLU um land allt: Akureyri · Akranesi · Ísafirði · Reyðarfirði · Reykjanesbæ · Selfossi
Passat 1,9 TDI® eyðir aðeins 5,8 lítrum á hundraðið þótt hann sé stór
Ef hagkvæmni væri skrásett vörumerki, væri það að sjálfsögðu í eigu Volkswagen
Hagkvæmni hefur alltaf verið lykilorð við hönnun hjá Volkswagen og árangurinn lætur ekki á
sér standa. Með fjölbreyttum tækninýjungum hefur Volkswagen til dæmis tekist að búa til mjög
skemmtilegar dísilvélar í allar stærðir bíla sem fara bæði betur með eldsneytið og umhverfið.
Komdu, prófaðu og finndu bíl frá Volkswagen sem sparar fyrir þig.
ALVÖRU
SJÁLF-
SKIPTINGAR
SVEIGJAN-
LEGIR
SÖLUMENN
ÖFLUGAR EN
HLJÓÐLÁTAR
DÍSILVÉLAR
EYÐSLU-
GRANNAR
VÉLAR
KOLEFNIS-
JAFNAÐIR
Í EITT ÁR
MINNI
LOSUN ÚT Í
UMHVERFIÐ
HAGKVÆMIR
Í REKSTRI OG
VIÐHALDI
UPPFYLLA
STRÖNGUSTU
ÖRYGGISSTAÐLA
Passat kostar aðeins frá
3.080.000 kr.
Eða 34.980 kr. á mánuði miðað við gengistryggðan bílasamning til
84 mánaða og 30% útborgun (927.000 kr.). Árleg hlutfallstala kostnaðar
er 9,44%. Sýndur bíll á mynd Passat Comfortline Plus.
Hagkvæmni