Fréttablaðið - 12.04.2008, Side 6
6 12. apríl 2008 LAUGARDAGUR
BANDARÍKIN, AP Dick Cheney, vara-
forseti Bandaríkjanna, og aðrir
háttsettir embættismenn í stjórn
George W. Bush forseta, gáfu
heimild til þess að beita grunaða
hryðjuverkamenn vatnspynting-
um og öðrum harkalegum yfir-
heyrsluaðferðum.
Cheney og hinir embættismenn-
irnir, þar á meðal, gættu þess
vandlega að halda Bush forseta
utan við fundi sína um yfirheyrslu-
aðferðir bandarísku leyniþjónust-
unnar. Á fundunum, sem haldnir
voru í beinu framhaldi af árásun-
um 11. september 2001 fram á árið
2003, voru John Ashcroft, þáver-
andi dómsmálaráðherra, Colin
Powell, þáverandi utanríkisráð-
herra, George Tenet, yfirmaður
leyniþjónustunnar CIA, og Cond-
oleezza Rice, þáverandi þjóðarör-
yggisráðgjafi, auk varaforsetans.
Umræðuefnið var hvort laga-
legar heimildir væru fyrir því að
leyniþjónustan CIA beitti þessum
umdeildu aðferðum á fanga, sem
grunaðir voru um hryðjuverk.
Bandaríska sjónvarpsstöðin
ABC skýrði fyrst frá þessu.
Fréttastofan AP fékk þetta síðan
staðfest hjá fyrrverandi yfir-
manni í bandarísku leyniþjónust-
unni, sem vildi þó ekki láta nafns
síns getið þar sem hann hefur
ekki heimild til að ræða þessi mál
opinberlega. - gb
Nánir samstarfsmenn Bandaríkjaforseta ræddu umdeildar yfirheyrsluaðferðir:
Cheney heimilaði pyntingar
DICK CHENEY Varaforseti Bandaríkjanna
gaf, ásamt fleiri nánum samstarfsmönn-
um Bush forseta, leyfi til þess að banda-
ríska leyniþjónustan beitti pyntingum.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
KJARAMÁL Samningaviðræður
grunnskólakennara og samninga-
nefndar sveitarfélaganna ganga
vel og má búast við að viðræður
um launaliði hefjist í næstu viku.
Grunnskólakennarar stefna að
því að gera 12-14 mánaða samning
að þessu sinni.
Líkur eru á því
að gildistími
kjarasamninga
kennara verði
samræmdur
gildistíma ann-
arra starfs-
manna sveitar-
félaga í tveimur
áföngum.
„Of djúpt er í
árinni tekið að segja að við séum
að ljúka þessum samningum en
við erum búnir að ná í höfn lang-
flestum öðrum málum, aðallega
ágreiningsmálum sem hafa komið
upp á samningstímanum,“ segir
Ólafur Loftsson, formaður Félags
grunnskólakennara.
Karl Björnsson, formaður
samninganefndar sveitarfélag-
anna, segir að kjaraviðræðurnar
hafi verið vinsamlegar og gengið
vel. Stefnt sé að því að ljúka samn-
ingum fyrir mánaðamót.
„Við höfum rætt um að á ein-
hverjum tímapunkti sé mikilvægt
að kjarasamningur kennara hafi
sama gildistíma og aðrir kjara-
samningar. Þeir hafa yfirleitt
verið með lausa samninga á öðrum
tímum en aðrir starfsmenn sveit-
arfélaga. Vilji er til að færa kjara-
samninga kennara inn í þann far-
veg. Mjög miklar líkur eru á því
að þetta þurfi að gera í tveimur
áföngum. Síðari samningurinn
yrði þá með sama endapunkt og
aðrir samningar sem sveitarfé-
lögin gera næsta haust,“ segir
hann.
Kjarasamningar annarra starfs-
manna sveitarfélaga losna 30.
nóvember. - ghs
ÓLAFUR LOFTSSON
Viðræður að hefjast um launaliði í kjarasamningum grunnskólakennara:
Kjaraviðræður ganga vel
KJARABARÁTTA Grunnskólakennarar fóru síðast í verkfall árið 2004. Ekki er útlit fyrir
að kennarar fari í verkfall nú miðað við góðan gang samningaviðræðna.
EFNAHAGSMÁL Gylfi Arnbjörnsson,
framkvæmdastjóri Alþýðusam-
bandsins, ASÍ, segir að Alþýðu-
sambandið hafi „í vaxandi mæli“
áhyggjur af því að stjórn og staða
efnahagsmála sé komin í hið mesta
óefni. Verðbólga verði á næstu
mánuðum í átján ára hámarki.
Hún stefni í tveggja stafa tölu á
tólf mánaða grunni og hafi þá ekki
verið meiri frá því fyrir gerð þjóð-
arsáttar. Með sama framhaldi
stefni í „nauðlendingu“.
„Það þýðir að allur sá árangur
sem þjóðarsáttin skóp er endan-
lega fyrir bí. Kaupmáttur okkar
félagsmanna mun fara mjög illa,
verðtryggð lán munu fara upp úr
þakinu, atvinnulífið mun frjósa
yfir með þessa vaxtastefnu. Það
er enginn sem getur staðist þessa
vexti, hvorki fólk né fyrirtæki,“
segir Gylfi.
„Besta leiðin til að takast á við
þessa óvissu er að vinna sameigin-
lega að því að sporna gegn henni.
Ég hélt að ríkisstjórnin væri
þannig samsett að hún hefði skiln-
ing á þessu. Hún hafði frumkvæði
að því að stofna formlegan vett-
vang um mótun efnahagsstefn-
unnar. Fyrsti fundur var haldinn í
byrjun júlí en hópurinn hafi ekki
verið kallaður saman síðan.
„Hvers konar samráðsvettvangur
er þetta þá?“ spyr Gylfi.
Jóhannes Gunnarsson, formað-
ur Neytendasamtakanna, segir að
bankar og sparisjóðir muni vænt-
anlega hækka strax vexti á óverð-
tryggðum lánum, til dæmis yfir-
dráttarlánum. „Þannig að við
sláum enn eitt heimsmetið í háum
vöxtum,“ segir hann. „Þetta eru
dapurleg tíðindi fyrir neytendur
að mínu mati.“
Jóhannes vonar að bankarnir
hækki vexti sem minnst og minnir
á að heimilin séu þegar að kikna
undan háum vöxtum. „Þau mega
varla við meiru,“ segir hann.
„Þetta er því miður hálfgerð
hrossalækning og ég er ekkert
voðalega hrifinn af svona hrossa-
lækningum,“ segir Gísli Tryggva-
son, talsmaður neytenda. „Það er
verið að lækna erfiðan sjúkdóm
með hrossalækningu sem virkar
afar takmarkað. Stýrivaxtahækk-
unin virkar aðallega á yfirdráttar-
heimildir landsmanna og vextirn-
ir eru alltof háir. Ég held að þarna
þurfi önnur lækningatæki til, til
dæmis gjaldmiðil sem virkar,“
segir Gísli spurður um það hvaða
lækningatæki það væru. Stjórn-
málamenn verði að leysa úr því
sem fyrst. ghs@frettabladid.is
Verðbólga stefnir í
átján ára hámark
Talsmenn neytenda telja að bankar og sparisjóðir hækki strax vexti á óverð-
tryggðum lánum. Framkvæmdastjóri ASÍ segir verðbólgu stefna í átján ára
hámark. Samráðsvettvangur um mótun efnahagsstefnunnar talinn óvirkur.
DAVÍÐ ODDSSON SEÐLABANKASTJÓRI Seðlabankinn hækkaði í vikunni stýrivexti um
hálft prósentustig og eru þeir nú 15,5 prósent. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Er umferðarmerkingum á
Reykjanesbraut ábótavant?
JÁ 76,1%
NEI 23,9%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Telur þú líklegt að fasteignaverð
lækki um 30 prósent á næstu
tveimur árum?
Segðu skoðun þína á visir.is
KOSOVO, AP Carla Del Ponte,
fyrrverandi aðalsaksóknari
stríðsglæpadómstólsins í Haag,
segir í nýrri bók að hópur
Kosovo-Albana hafi árið 1999, í
lok Kosovostríðsins, drepið tugi
Serba og selt líffæri þeirra.
Mannréttindasamtökin Human
Rights Watch segja hana styðja
mál sitt nægilega sterkum rökum
til að hefja þurfi rannsókn á
málinu. Í bókinni segir Carla að
nokkur hundruð manns hafi verið
fluttir frá Kosovo inn í Albaníu.
Sumt af yngra fólkinu í hópnum
hafi verið drepið og læknar hirt
úr því líffæri, sem síðan voru
seld. - gb
Fyrrverandi saksóknari í Haag:
Sakar Serba um
líffærasölu
KJÖRKASSINN