Fréttablaðið - 12.04.2008, Side 12
12 12. apríl 2008 LAUGARDAGUR
„Þrátt fyrir afar neikvæða umfjöll-
un sem unglingar fá í dag þá er
staðreyndin sú að sífellt færri
nota vímuefni, en þeir sem mis-
stíga sig eitthvað á þessari braut
lenda hins vegar ansi illa í því,“
segir Gabríela Unnur Kristjáns-
dóttir, formaður Félags íslenskra
framhaldsskólanema.
Í þessum orðum formannsins
kristallast einnig skilaboðin sem
Fréttablaðið fékk frá nemendum í
Rimaskóla, Austurbæjarskóla og
Fjölbrautaskólanum í Garðabæ.
Og þegar leitað er svara í rann-
sóknum bendir ekkert til annars
en að þau hafi á réttu að standa.
Bindindisfélag í Garðabæ
Bæði rannsóknir Þór-
odds Bjarnasonar,
prófessors í
félagsfræði í
Háskólanum á
Akureyri, og
Rannsóknar
og greining-
ar sýna
fram á að
sífellt
færri
ungling-
ar í efstu
bekkj-
um
grunnskóla neyta vímuefna. Reynd-
ar segir Þóroddur neysluna hér á
landi vera með því lægsta sem
þekkist í Evrópu.
Rannsóknir og greining gerði
samanburð á vímuefnaneyslu fram-
haldsskólanema á árunum 2000 og
2004. Þar kemur fram að eilítið
færri neyttu áfengis árið 2004 en
fjórum árum þar á undan en mun-
urinn á hassneyslu var óverulegur,
eða 0,1 einu prósentustigi minni
árið 2004. Álfgeir Logi Kristjáns-
son, sem vann rannsóknina ásamt
Ingu Dóru Sigfúsdóttur, forseta
kennslufræði- og lýðheilsudeildar
Háskólans í Reykjavík og Jóni Sig-
fússyni, segir þó mikilvægt að hafa
það í huga að líklega sé vímuefna-
neyslan meiri hjá þeim unglingum
á aldrinum 16 til 20 ára sem ekki
eru í framhaldsnámi og mælast því
ekki í rannsókninni. En þess má
einnig geta að framhaldsskólanem-
endum fjölgaði um tæp tvö þúsund
á tímabilinu.
Stefán Rafn Sigurbjörnsson, for-
maður nemendafélagsins í Fjöl-
brautaskóla Garðabæjar (FG),
segir að ekki hafi dregið úr aðsókn
á dansleikjum á vegum skólans
þrátt fyrir að nú sé strangt eftirlit
sem meðal annars beinist að því að
gestir mæti ekki ölvaðir. Gabríela
segir flesta framhaldsskóla einnig
hafa þann háttinn á og með góðum
árangri.
Í FG er einnig starfandi bindind-
isfélag frá því í haust og eru félags-
menn orðnir um 40. „Við erum
ekki að segja það að við
munum aldrei koma til með
að drekka heldur hitt að
það er ekki á dagskrá
núna,“ segir Hjálmar Örn
Elísson Hinz sem er í
stjórn félagsins.
Það er því kannski ekki
nema von að allir þeir sem
Fréttablaðið ræddi við
skyldu vera ósáttir við það að hóp-
urinn „sem lendir ansi illa í því“,
eins og Gabríela komst að orði,
skuli fá mestu athyglina.
Nærsamfélagið er
öryggisnet unglinganna
Inga Dóra og Álfgeir Logi segja að
þennan árangur í efstu bekkjum
grunnskóla megi að miklu leyti
rekja til þess að tekist hefur að
skapa það sem þau kalla nærsamfé-
lag sem virki eins og stuðningsnet
fyrir unglingana. Þetta nærsamfé-
lag samanstendur af foreldrum,
kennurum og öðrum sem vinna með
unglingum og allir leggjast á eitt
um að veita þeim athygli og aðhald.
Af viðtölum við nemendur í Aust-
urbæjarskóla að dæma er afar lítil
áfengisneysla meðal nemenda þar.
Sigrún Lilja Jónasdóttir kennari er
einnig þeirrar skoðunar og þakkar
því að þar sé þetta nærsamfélag
mjög virkt. „Margir foreldranna
þekkjast og hjálpast því að við að
hafa eftirlit með börnunum svo
hver foreldri veit hvar barnið sitt
er og með hverjum það er,“ segir
hún. „Svo hafa margir kennaranna
starfað hér lengi og það er gott því
ég tel að nemendurnir finni fyrir
meira öryggi þar sem lítið rót er á
hlutunum.“
Framhaldsskólanemarnir sem
Fréttablaðið ræddi við voru einnig
á þeirri skoðun að jafningjafræðsl-
an hefði haft verulega mikið að
segja í forvarnastarfinu en hún
byggist á því að unglingar fræði
jafnaldra sína um málefni sem á
þeim brenna. Álfgeir segir þó að á
meðan forvarnastarfið í grunnskól-
um sé afar vel heppnað sé eins og
botninn detti úr því þegar nemend-
urnir komi í framhaldsskóla og úr
því verði að bæta. Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir menntamálaráð-
herra er þessu sammála og segir
það áhyggjuefni hversu margir
byrja að neyta vímuefna á fyrstu
árunum í framhaldsskóla. „Þess
vegna er í nýju framhaldsskóla-
frumvarpi gert ráð fyrir því að
fræðsluskyldan nái til 18 ára aldurs
og að komið verði á foreldraráði í
framhaldsskólum,“ segir hún.
„Grýluáróður“ virkar ekki lengur
Allmargir nemendur sem Frétta-
blaðið talaði við höfðu nokkuð út á
Í skugga þeirra sem afvega fóru
Forvarnastarfið í efstu bekkjum grunnskóla hefur borið mikinn árangur. Vímuefnaneysla í framhaldsskólum hefur ekki aukist en mennta-
málaráðherra, sem og fleiri, hefur áhyggjur af því að margir hefji neyslu á fyrstu árum framhaldsskóla. Því verður forvarnastarf þar eflt.
Unglingum á Vogi hefur fækkað frá aldamótum en hlutfall ungra sjúklinga er samt enn hátt. Unglingar krefjast viðurkenningar fyrir það
sem meirihluti þeirra er að gera í stað þess að vera dæmdir af misnotkun og myrkraverkum fárra.
FORMAÐUR NEMENDAFÉLAGSINS OG STJÓRNARMAÐUR Í BINDINDISFÉLAGINU Stefán Rafn Sigurbjörnsson, formaður nemenda-
félags Fjölbrautaskólans í Garðabæ, segir að ekki hafi dregið úr aðsókn á skólaböllin þó að nú sé grannt fylgst með því að gestir
mæti ekki ölvaðir. Hjálmar Örn Elísson Hinz er í stjórn bindindisfélags skólans. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
GABRÍELA UNNUR KRISTJÁNS-
DÓTTIR Formaður Sambands
íslenskra framhaldsskóla-
nema segir nóg um
athyglina sem unglingar
fá sem farið hafi villu
vegar meðan minni
gaumur sé gefinn
að því jákvæða
sem unglingar
aðhafast.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ARNÞÓR
VÍMUEFNANEYSLA 9. OG 10. BEKKINGA
1998 2007
Hafa drukkið áfengi síðustu 30 daga 42% 20%
Hafa reykt hass síðustu 30 daga 17% 10%
Hafa reykt tóbak síðustu 30 daga 23% 7%
HEIMILD: RANNSÓKNIR OG GREINING
VISSIR ÞÚ AÐ...
■ að árið 2001 fóru fleiri stúlkur 17
ára og yngri á Vog en strákar í sama
aldurshópi*?
■ að þeir framhaldsskólanemendur
sem reykja daglega eru óánægðari
með námsárangur sinn en þeir sem
reykja ekki eða sjaldnar en daglega**?
■ að til er bindindisfélag í Fjöl-
brautaskóla Garðabæjar með um 40
félagsmönnum?
■ að skylda var að vera í bindind-
isfélagi í Lærða skólanum og leiddi
það til uppþots sem jafnan er kallað
„pereatið“ árið 1850?
* HEIMILD: ÁRSSKÝRSLA SÁÁ 2007
** HEIMILD: RANNSÓKNIR OG GREINING 2005
250
200
150
100
50
0
1991 1992 1993 1994 1995 1996 1997 1998 1999 2000 2001 2002 2003 2004 2005 2006
UNGIR EINSTAKLINGAR Á SJÚKRAHÚSINU VOGI
19 ára og yngri á árunum 1991-2006
10
6
10
7 1
26 1
42
13
7
18
0
20
6 2
27
25
7
28
8
29
4
28
2
25
6
23
7
22
0 23
4
HEIMILD: SÁÁ
FRÉTTASKÝRING: Unglingar á hraðferð inn í harðan heim 2. hluti – Vímuefnaneysla