Fréttablaðið - 12.04.2008, Page 72

Fréttablaðið - 12.04.2008, Page 72
36 12. apríl 2008 LAUGARDAGUR K osningakreppan í Simbabve teygist á langinn. Þótt tvær vikur séu liðnar frá forsetakosningun- um 29. marz hafa opinber úrslit þeirra enn ekki verið birt. Hinn 84 ára gamli for- seti virðist vera að reyna að nýta tímann til að búa svo um hnúta að önnur umferð kosninganna verði látin fara fram þar sem tryggt sé að hann sigri. Þrátt fyrir ítrekaðar áskoranir umheimsins bólaði nú fyrir helg- ina ekkert á opinberum úrslitum forsetakosninganna og þar af leið- andi ríkti enn algjör óvissa um hvort efnt yrði til úrslitaumferðar þar sem kosið yrði á milli Mugabe forseta og áskorandans Morgans Tsvangirai, leiðtoga Lýðræðis- hreyfingarinnar. Hæstiréttur landsins tók á mið- vikudag ekki afstöðu til flýtibeiðn- ar Lýðræðishreyfingarinnar um að úrslitin yrðu birt tafarlaust. Lögmaður kjörstjórnarinnar sagði við það tækifæri að skipun um tafar lausa birtingu væri hættu- spil, þar sem henni yrði „hugsan- lega ekki hlítt“. Dómstóllinn boð- aði að úrskurðað yrði um beiðnina á mánudaginn. Spilað á tíma Svo virðist sem Mugabe og stjórnar flokkur hans, Zanu-PF, séu með töfunum að kaupa sér tíma til að skipuleggja aðgerðir til að virkja áhangendur sína og hræða andstæðinga til að tryggja landsföðurnum til 28 ára sigur í síðari umferð kosninganna. Stjórnarandstaðan hefur þegar lýst því yfir að frambjóðandi hennar, Tsvangirai, hafi hlotið hreinan meirihluta atkvæða í kosningunum 29. marz og því sé hann réttkjörinn forseti og engin þörf á úrslitaumferð. Mugabe og hans menn verði að viðurkenna þennan vilja þjóðarinnar og sleppa valdataumunum. Það kemur ekki á óvart að öld- ungurinn á forsetastólnum og skjólstæðingar hans láti sér fátt um vilja almennings finnast. Síð- ustu daga hafa fréttir borizt af því að harðir fylgismenn Mugabe, einkum vopnaðir fyrrverandi liðs- menn skæruliðahreyfingar hans frá tíma sjálfstæðisstríðsins, hafi hafið nýja herferð til að flæma þá fáu hvítu bændur sem enn þrauka í landinu af jörðum sínum. Í hér- uðum þar sem vitað er að Tsvang- irai nýtur mikils fylgis reyna menn Mugabe að hræða íbúana til að þeir muni ekki dirfast að greiða honum aftur atkvæði ef til síðari umferðar kosninganna kemur. Bráðafundur grannríkjaleiðtoga Fyrir helgina hafði Mugabe og stjórn hans ekki brugðizt við áskorunum umheimsins um viður- kenningu kosningasigurs stjórn- arandstöðunnar í þingkosningun- um sem fram fóru jafnhliða forsetakosningunum, og um að úrslit forsetakosninganna yrðu birt. Að öðru leyti en því að láta jákvæð orð falla um sérboðaðan leiðtogafund landanna í sunnan- verðri Afríku, þar sem ræða á ástandið í Simbabve. Fundurinn yrði kærkomið tækifæri fyrir Mugabe til að útskýra stöðuna, að sögn talsmanns Simbabvestjórn- ar, en hann tók fram að enginn kreppa væri í landinu þótt birting kosningaúrslita hefði dregizt. Levy Mwanawasa Sambíufor- seti átti frumkvæði að boðun bráðafundarins, en hann fer fram þar í landi í dag. Mwanawasa er svo til eini leiðtoginn í sunnan- verðri Afríku sem hefur opinber- lega gagnrýnt stefnu Mugabe. Í fyrra líkti hann efnahagsástand- inu í Simbabve við „sökkvandi Tit- anic“. Hinir leiðtogarnir hafa farið að dæmi Thabo Mbeki, forseta Suður-Afríku – þungavigtarríkis- ins í heimshlutanum – og sagt sem minnst. Tendai Biti, talsmaður Lýðræð- ishreyfingarinnar í Simbabve, skoraði á leiðtogana sem á fund- inn mæta að þrýsta á Mugabe að segja af sér. „Við skiljum ekki hvers vegna umheimurinn þarf að bíða eftir því að lík hrannist upp á götum Harare,“ sagði hann í vikunni. Hann gaf til kynna að stjórnarand- staðan kynni að sniðganga endur- tekningu forsetakosninganna, skyldi verða boðað til úrslitaum- ferðar. Biti sakaði stjórnarflokk- inn um að beita háttsettum mönn- um úr hernum og lögreglunni til að „stýra kosningasvikaferlinu“ að því er AP hefur eftir honum. „Forsetinn neitar að viðurkenna ósigur sinn í kosningum sem fóru að mestu rétt fram. Og þegar hið 21 dags töfratímabil er liðið, sem er fresturinn sem gefinn er til að halda úrslitaumferð kosninganna, mun hann að líkindum kalla nýja hörmungartíma yfir land okkar.“ Þetta skrifar rithöfundurinn Chenjerai Hove, sem árið 2001 var flæmdur í útlegð og býr nú í Bandaríkjunum, í grein undir yfir- skriftinni „Konungsríki óttans“ í svissneska dagblaðinu Neue Zürcher Zeitung. Matarskortur og landflótti Talsmenn Bændasamtaka Simb- abve, ZCFU, saka stuðningsmenn stjórnarflokksins um árásir á jarð- ir hvítra bænda og rán og grip- deildir í húsum þeirra. Bændur benda á að áframhaldandi óreiða setji hveitiuppskeruna í hættu, en bregðist hún yki það alvarlega á matvælaskortinn í landinu sem þegar er mikill. Mjög stór hluti landbúnaðarlands er fallinn í órækt í kjölfar landtökuherferðar stjórnarinnar gegn hvítum bænd- um á síðustu árum, en flestir þeirra hafa nú flúið land. Reyndar eru um fimm milljónir Simbabve- búa, yfir fjórðungur landsmanna, taldar hafa flúið úr landi frá alda- mótum. Matvælaframleiðsla hefur hrunið og landið er nú háð neyðar- hjálparsendingum að utan. Efna- hagsástandið heldur áfram að versna. Atvinnuleysi er áætlað um 80 prósent og óðaverðbólga geisar. Gizkað er á að hún sé nú um 150.000 prósent. Lífslíkur hafa lækkað niður fyrir 35 ár en þær voru yfir 60 árum fyrir hálfum öðrum áratug. Fangar gerræðis Mugabe lætur sem þessi neyð eigin þegna sé ekki raunveruleg. Hann og hershöfðingjarnir í kring- um hann ríghalda í völdin þar sem þeir óttast að vera að öðrum kosti látnir svara fyrir gerræði sitt og ótal mannréttindabrot á liðnum árum. Dæmi um slík brot er fram- ganga hers og lögreglu gegn stuðn- ingsmönnum stjórnarandstöðunn- ar eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna um stjórnarskrárbreytingar sem fram fór í upphafi þessa áratugar. Yfir 600 stjórnarandstæðingar voru myrtir. Tveir af hverjum fimm þingmönnum Lýðræðis- hreyfingarinnar sættu líkams- meiðingum, þar á meðal Tsvang- irai sjálfur. Valdhafarnir vita líka upp á sig ábyrgðina á aðgerðum sérsveitar Simbabvehers, sem hlaut þjálfun í Norður-Kóreu á níunda áratugnum og var beitt til að kveða niður uppreisn í hérað- inu Matabelelelandi. Liðsmenn sveitarinnar myrtu tugþúsundir fjölskyldumeðlima uppreisnar- manna af Ndebele-ættbálknum. Og þannig mætti áfram telja. Mugabe leggur rækt við tryggð ráðherra í ríkisstjórninni, flokks- forkólfa og æðstu manna stjórn- kerfisins með því að útdeila til þeirra bújörðum sem teknar hafa verið eignarnámi eða gjaldeyri úr hinum síminnkandi sjóðum ríkis- ins. Þessir skjólstæðingar óttast líka valdaskipti og leggja þess vegna sitt af mörkum til að halda öldungnum í forsetastólnum. And- stætt hinum allslausa meirihluta almennings í landinu hafa þeir einhverju að tapa ef Mugabe er flæmdur frá völdum eða safnast til feðra sinna. Öldungurinn rígheldur í völdin Þrátt fyrir að hafa lotið í lægra haldi í kosningum er Robert Mugabe ekki á þeim buxunum að sleppa valdataumunum í Simbabve sem hann hefur haldið um í 28 ár, skrifar Auðunn Arnórsson. Sívaxandi neyð er í landinu sem eitt sinn bauð upp á beztu lífskjör í Afríku. LANDFLÓTTI Kona frá Simbabve skríður með barn sitt á bakinu undir landamæragirðingu til að komast til Suður-Afríku. Fjórði hver íbúi Simbabve hefur flúið land. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Robert Gabriel Mugabe fæddist 21. febrúar 1924 í þorpinu Matabiri norðaustur af bænum Salisbury í þáverandi Suður-Ródesíu. Hann var að mestu alinn upp í kaþólskri trúboðsmiðstöð og gekk í skóla sem reknir voru af jesúítum. Stjórnmálaferill hans hófst á sjöunda áratugnum þegar hann reis til metorða innan hreyfingar svartra sjálfstæðis sinna, ZANU, sem rak skæruhernað gegn minnihlutastjórn hvítra. Hvíta minnihlutastjórnin, undir forystu Ians Smith, lýsti yfir einhliða sjálfstæði Ródesíu frá Bretaveldi árið 1965, en í samræmi við stefnu Bretlands- stjórnar um að viðurkenna aðeins sjálfstæði fyrrverandi nýlendna sinna er í þeim var komin til valda stjórn sem studdist við meirihluta heimamanna hlaut sú sjálfstæðisyfirlýsing ekki alþjóðlega viðurkenningu. Árið 1964 var Mugabe hnepptur í varðhald fyrir „undirróður“ og eyddi næstu tíu árum í fangelsi. Í fangavistinni aflaði hann sér þriggja háskólagráða í fjarnámi við suður-afrískan háskóla. Árið 1974, er hann var enn í fangelsi, var Mugabe kjörinn til forystu fyrir ZANU. Laus úr fangelsi stýrði Mugabe ZANU úr útlegð í Mósambík. Eftir klofning samtakanna stýrði hann herskáum armi hennar. Þegar leið á áttunda áratuginn sýndi stjórn Smiths vilja til samningaviðræðna við leiðtoga svarta meiri- hlutans. Úr varð að samþykkt var stjórnarskrá nýs lýðveldis undir nafninu Simbabve og nýtt þing var kosið í febrúar 1980. Svarti meirihlutinn fagnaði mjög heimkomu Mugabe úr útlegð í desember 1979 og hann varð forsætisráðherra í stjórninni sem mynduð var eftir fyrstu frjálsu kosningarnar. Árið 1987 var stjórnarskránni breytt þannig að embætti forsætisráðherra var aflagt en þess í stað fór forsetinn fyrir ríkisstjórninni. Um leið var Mugabe kjörinn forseti. Um 60 prósent hvíta minnihlutans fluttu úr landi strax á níunda áratugnum. Nú eru innan við 20.000 hvítir eftir meðal hinna 12 milljóna íbúa landsins. Frá því árið 2000 hefur stjórn Mugabe kerfisbundið flæmt hvíta bændur af jörðum sínum sem hefur valdið hruni í matvælafram- leiðslu. Þetta, ásamt annarri óstjórn og gerræði, hefur valdið algeru efnahagshruni í landinu. ➜ FRÁ SJÁLFSTÆÐISHETJU TIL EINRÆÐISHERRA
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.