Fréttablaðið - 12.04.2008, Page 97
LAUGARDAGUR 12. apríl 2008
Spjallþáttastjórnandinn
Jimmy Kimmell ákvað að
svara gríni unnustu sinnar,
Söruh Silverman, með held-
ur óhefðbundnum hætti.
Svarið hefur vakið mikla at-
hygli og yfir milljón manns
hafa séð það á You Tube.
Kimmel og Silverman eru einir
vinsælustu grínarar Bandaríkj-
anna og hafa verið par síðan 2002.
Fyrir nokkru birtist hún síðan í
spjallþætti unnusta síns og sagð-
ist hafa þagað yfir leyndarmáli í
smá tíma. Í kjölfarið var síðan
sýnt myndband sem bar hið
skemmtilega nafn „I‘m fucking
Matt Damon“ og þar mátti sjá
Söruh og Damon lýsa bólförum
sínum undir þéttu rokklagi.
Myndband Söruh vakti mikla kát-
ínu þar vestra og varð áhuginn
svo mikill að vefsíða ABC-sjón-
varpsstöðvarinnar lét nánast
undan og nokkrar milljónir hafa
horft á það á You Tube.
En ekki minnkaði álagið þegar
Kimmell frumsýndi sitt mynd-
band og svar í febrúar og kvik-
myndablaðið Empire fjallar lítil-
lega um. Lag grínarans heitir
„I‘m fucking Ben Affleck“ og er
varla hægt að þverfóta fyrir stór-
stjörnum sem láta þar ljós sitt
skína. Kimmell og Affleck eiga
þar í ástarsambandi en eins og
flestir ættu að vita eru Affleck
og Damon bestu vinir og unnu
meðal annars Óskarinn fyrir
handrit sitt að Good Will Hunt-
ing. Meðal þeirra sem koma við
sögu eru Brad Pitt í hlutverki
Fedex-sendils og Harrison Ford
sem miðaldra hommi. Þeir sem
syngja kórraddir eru síðan stór-
stjörnur á borð við Robin Willi-
ams, Cameron Diaz og Don
Cheadle auk þess sem Ford lætur
í sér heyra.
Samband Affleck
og Kimmell á netið
ÓSVÍFIÐ PAR Jimmy og Sarah Silverman láta ekki að sér hæða og fá stórstjörnur til
að grínast með hvort annað.
FÓSTBRÆÐUR Matt Damon og Ben
Affleck eru miklir vinir og leika elskhuga
þeirra Kimmells og Silverman í vinsæl-
um myndböndum á You Tube.
Stórsýning
MótorMax
á ferðavögnum
Um helgina verður því besta tjaldað til í Mótormax.
Þá sýnum við nýju Dethleffs hjólhýsin og húsbílana,
Starcraft fellihýsin og Camp-let tjaldvagnana.
Auk þess ýmsa spennandi sumarvöru.
Ævintýralegar uppskriftir að frábæru sumarleyfi
í Kletthálsinum.
Opið í Kletthálsi 13, laugardag 10-16 og sunnudag 12-16.
- lífið er leikur
MotorMax Reykjavík - Kletthálsi 13 - Sími 563-4400
MotorMax Egilsstöðum - Sími 470-5080
MotorMax Akureyri - Sími 460-6060
www.motormax.is