Fréttablaðið - 12.04.2008, Side 102
66 12. apríl 2008 LAUGARDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
PERSÓNAN
LÁRÉTT
2. langar 6. eftir hádegi 8. mánuður
9. lítið býli 11. tveir eins 12. klór 14.
smápeningar 16. pípa 17. iðka 18.
kvabb 20. persónufornafn 21. ögn.
LÓÐRÉTT
1. þilfar 3. 999 4. peningar 5. tala 7.
holdlaus 10. þvottur 13. útsæði 15.
réttur 16. egna 19. tveir eins.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. vilt, 6. eh, 8. maí, 9. kot,
11. uu, 12. krafs, 14. aurar, 16. æð, 17.
æfa, 18. suð, 20. ég, 21. arða.
LÓÐRÉTT: 1. dekk, 3. im, 4. lausafé,
5. tíu, 7. horaður, 10. tau, 13. fræ, 15.
ragú, 16. æsa, 19. ðð.
„Ég ætla að grafa þennan jakka
upp og hann fær að fljóta með í
ferðatöskunni sem lukkugripur,“
segir Grétar Örvarsson, aðspurð-
ur hvort að blómajakkinn góði
sem hann klæddist í Eurovision-
forkeppni Ríkissjónvarpsins fari
ekki með til Belgrad. Grétar dust-
ar sem kunnugt er rykið af Eur-
ovision-skónum eftir sextán ára
hlé og syngur bakraddir hjá þeim
Friðriki Ómari og Regínu Ósk á
stóra sviðinu í Serbíu. Síðast var
Grétar í eldlínunni þegar lagið
Nei eða já náði 7. sætinu í Malmö
árið 1992 en besta árangrinum
náði hann hins vegar tveimur
árum áður þegar Stjórnin söng
sig í fjórða sætið í Zagreb, þá
höfuðborg gömlu Júgóslavíu.
Grétar tók sér ekki
langan tíma til umhugs-
unar þegar kallið kom
frá þeim Friðriki og
Regínu enda þekkir
hann vel til þeirra
beggja. „ Já-svarið kom
eiginlega bara strax,“
segir Grétar, sem hefur
góða tilfinningu fyrir gengi
Eurobandsins. „Þau eru
bara svo rosalega flottir
og kraftmiklir flytjendur
að það er eiginlega ekkert
annað hægt.“ Auk bak-
raddasöngvaranna verður
sjálft Eurobandið með en
það mun spila undir
þegar hópurinn treður
upp „live“. „Við
vildum hafa það
með og ég held
að við séum
eitt örfárra
atriða sem
er með
alvöru
hljómsveit
með okkur,“
útskýrir Grétar, sem er þó ekk-
ert að stressa sig um of þótt
íslenska þjóðin fari yfirleitt á
límingunum þegar flautað er til
leiks.
Grétar viðurkennir hins vegar
að hann sé enginn sérstakur Eur-
ovision-aðdáandi og hann hafi
ekkert lagt sig í líma við að fylgj-
ast með þróun keppninnar. Hann
segir hins vegar að annar blær
sé yfir keppninni en tekur þó
ekki undir að Eurovision sé eitt-
hvert „frík-sjó“. „Lagið sem vann
í fyrra var til að mynda mjög lág-
stemmt og vel flutt lag og ég held
að þær vestrænu þjóðir sem
senda kalkúna og aðra slíka hluti
séu bara svekkt yfir lélegu gengi
undanfarinna ára.“ -fgg
KLÁR Í SLAGINN Grétar
Örvarsson státar af
bestum saman-
lögðum árangri í
Eurovision en hann
hefur náð bæði
fjórða sæti og því
sjöunda. Jakkinn
góði fer með til
Belgrad.
„Við erum að fara með hann í tón-
leikaferð í október um Norður-
löndin,“ segir Karl Lúðvíksson,
einn eigenda fyrirtækisins Fabul-
us ehf. Fyrirtækinu hefur verið
falið það verkefni að sjá um Norð-
urlandatúr söngvarans Andrea
Bocelli. „Þetta kom nú bara fyrst
til umræðu í bíl á leiðinni niður á
Sjávarkjallara eftir tónleikana
hans hérna heima. Þau voru svo
ánægð með hvernig við stóðum
að þessu og sögðu að þetta væri í
standard sem þau hefðu ekki
kynnst á ferðum sínum um heim-
inn,“ segir Karl.
Viðkomustaðir Bocelli undir
handleiðslu Kalla og félaga verða
Parken í Kaupmannahöfn, Globen
í Stokkhólmi, Spectrum í Osló og
svo Hartwall Arena í Helsinki.
Kalli stóð einn að því að flytja
inn Bocelli til Íslands en hefur
fengið fleiri manns inn í fyrir-
tækið með sér – enda viðfangs-
miklir hlutir upp á teningnum.
Bocelli mun fylgja sami mann-
skapur og á Íslandi fyrir utan
eina söngkonu sem er stórt nafn
að sögn Karls, og er ekki frá
Norðurlöndunum.
Fagmannleg vinnubrögð Karls
og félaga hjá Fabulus hafa spurst
út til plöturisans Universal, sem
gefur út plötur Bocelli. „Þeir hafa
viðrað það við okkur hvort við
hefðum áhuga á að taka að okkur
tónleikahald fleiri stórra nafna á
þeirra vegum.“
Formleg miðasala á tónleika-
röðina í október er ekki hafin en
þó er byrjað að selja fyrirtækjum
miða á viðburðina. Kalli segir að
þó nokkuð sé um að íslensk fyrir-
tæki með skrifstofur í viðkom-
andi löndum séu að bóka miða á
tónleikana. „Þetta gengur vel og
hittir líka skemmtilega á að hann
verður nýbúinn að senda frá sér
plötu í október.“ - shs
Kalli Lú sér um Norðurlandatúr Bocelli
KARL LÚÐVÍKSSON Sér um Norðurlanda-
túr Andrea Bocelli.
ANDREA BOCELLI Stólar á Kalla Lú.
Sveinbjörn Claessen
Aldur: 22 ára.
Starf: Laganemi við Háskólann í
Reykjavík.
Fjölskylda: Í sam-
búð með Örnu Hlín
Daníelsdóttur.
Foreldrar: Gunn-
laugur Claessen
og Guðrún
Sveinbjörns-
dóttir.
Búseta:
Kapellustígur
3 í Grafar-
holti.
Stjörnumerki: Fiskar
Sveinbjörn Claessen hefur
farið mikinn með liði sínu ÍR
í úrslitakeppni Iceland Express-
deildarinnar í körfuknattleik.
FRÉTTIR AF FÓLKI
Uppfærsla Vesturports
á kvikmynd Lukasar
Moodysson, Komm-
únan, var frumsýnd í
Mexíkó í gær. Sýn-
ingin hefur vakið
mikla athygli þar í
landi enda leikur
ein helsta stjarna
landsins, Gael Garcia Bernal, eitt
aðalhlutverkanna. Bernal mátti
hlaupa undan blaðamönnum
og aðdáendum sem vildu fá að
spyrja hann um dvölina á Íslandi
en ekki gekk þrautarlaust að koma
hópnum inn í landið því bæði
leikmyndin og búningarnar festust
í tollinum.
Auðunn Blöndal er að færa sig
eilítið meir yfir íþróttasviðið og
íþrótta- fréttamennsku.
Eins og mörgum ætti að
vera kunnugt hefur Auðunn
verið drifkrafturinn í
stuðningsmannaklúbbi
íslenska landsliðsins í
handbolta. Samkvæmt
heimildum Fréttablaðs-
ins er grínistinn nú að
fara á fullt með nýja þætti
þar sem hann hyggst
fylgja eftir íslenskum
atvinnumönnum í körfu-
bolta, handknattleik og
fótbolta á þeirra heimaslóð-
um og spyrja þá spurninga
sem engum öðrum en honum gæti
dottið í hug.
Leikritið Mammamamma var
frumsýnt í gærkvöldi við mikla
viðhöfn. Leikstjóri sýningarinnar
er Charlotte Böving en leikverkið
tekur á því viðkvæma sambandi
sem er milli mæðra og dætra. Sjálf
á Charlotte von á tvíburastelpum
með eiginmanni sínum Benedikt
Erlingssyni en hún er þó ekki
sú eina sem ber barn
undir belti í sýningunni
því ein aðalleikkona
sýningarinnar, Birgitta
Birgisdóttir, er
kona ekki ein-
sömul eins og
greint hefur
verið frá. - fgg
Lukkujakki Stjórnarinnar til Belgrad
Nýtt myndband Merzedes Club
hefur vakið athygli og hlotið með
ólíkindum mikla spilun á You
Tube. „50 þúsund heimsóknir á
innan við sólarhring en ekkert
vídeó hefur fengið svo margar
heimsóknir,“ segir Egill Einars-
son í MC harla ánægður. Eftir
frumsýningu myndbandsins og
mikla umfjöllun, þar sem það var
auglýst sem kynþokkafyllsta og
dýrasta myndband sögunnar,
kom á daginn að því er ekki ætlað
að vekja athygli á listrænum
afrekum Merzedes Club heldur
er liður í markaðsherferð Símans
og Frelsiskorti. Samkvæmt heim-
ildum Fréttablaðsins kostaði
myndbandið hátt í tíu milljónir
króna. Maðurinn á bak við aug-
lýsinguna er Jón Gnarr hjá Enn-
Emm auglýsingastofu. Hann
samdi jafnframt textann við lagið
ásamt höfundi þess Barða
Jóhannssyni.
Að auglýsing sigli undir fölsku
flaggi er á gráu svæði og varðar
við lög. Hjá Neytendastofu, neyt-
endaréttarsviði, er Matthildur
Sveinsdóttir. Hún segist ekki
geta tjáð sig um þetta einstaka
tilvik því hún hafi ekki séð mynd-
bandið. Og engar
kvartanir hafi
borist þess
vegna enn
sem komið
er. En í
lögum um
eftirlit
með órétt-
mætum
viðskipta-
háttum
og gagnsæi markaðarins, sem
Neytendastofa starfar eftir, er
skýrt á kveðið um að auglýsingar
skuli þannig úr garði gerðar að
ekki leiki vafi á að um auglýsingu
sé að ræða. „Í fyrstu málsgrein
segir að þær skuli skýrt aðgreind-
ar frá öðru efni fjölmiðla.“
Í siðareglum SÍA, Samtaka
íslenskra auglýsingastofa, er
einnig talað um þetta sem og í 16.
grein þar sem segir: „Villandi
auglýsing skal ekki réttlætt með
því að benda á að auglýsandi hafi
síðar séð neytendum fyrir réttri
vitneskju.“
„Dulbúin auglýsing... Já, ég
veit það ekki. Mér finnst þetta
fyrst og fremst fyndið,“ segir
Jón Gnarr sem einmitt
komst í deigluna þegar hann
gerði mjög umdeilda auglýsingu
einmitt fyrir Símann sem byggði
á síðustu kvöldmáltíðinni.
„Ég hef verið að leita nýrra
leiða með að gera óvenjulegar og
skapandi auglýsingar og for-
svarsmenn Símans eru framsýn-
ir og nýjungagjarnir. Auglýsing-
in er óhefðbundin en fyrst og
fremst fyndin. Koma aftan að
fólki? Það er heila málið.“
Jón segir aðspurður þeirrar
skoðunar að þetta sé siðlegt. „Þó
ég sé ekki síkópati. Ég hef farið í
próf á netinu og það er allt í lagi
með það.“ Jón játar fúslega að
auglýsingin sé á gráu svæði en
einmitt þar finnst honum
skemmtilegast að vera. „Mín ætt-
jörð. Gráa svæðið. Sífellt erfið-
ara er, í þessum auglýsingaheimi,
að finna leiðir. Þetta er tilraun til
þess og ég mun halda því áfram,“
segir Jón Gnarr. jakob@frettabladid.is
NEYTENDASTOFA: AUGLÝSINGAR SKULU EKKI SIGLA UNDIR FÖLSKU FLAGGI
Jón Gnarr á gráu svæði
AUGLÝSING Í DULARGERVI Víst er að vídeóið sem reyndist auglýsing brýtur í bága við
lög og ýmis ákvæði. Hitt er hvort einhver nennir að elta ólar við það.
JÓN GNARR Segir auglýsinguna
ekki siðlausa en Jón tók próf á
netinu sem leiddi í ljós að hann
sé ekki síkópati.