Fréttablaðið - 02.05.2008, Síða 50

Fréttablaðið - 02.05.2008, Síða 50
26 2. maí 2008 FÖSTUDAGUR timamot@frettabladid.is Steinsmiðja • Viðarhöfða 1 • 110 Reykjavík • 566 7878 • Netfang: rein@rein.is • Vönduð vinna REIN Legsteinar í miklu úrvali Móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, Lukka Ingibjörg Magnúsdóttir Höfðavegi 5, (áður Vallanes) Höfn í Hornafirði, sem andaðist á Heilbrigðisstofnun Suðausturlands þriðjudaginn 22. apríl, verður jarðsungin frá Hafnarkirkju laugardaginn 3. maí kl. 14.00. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Gjafa- og minningarsjóð Skjólgarðs. Sigurður Eymundsson Olga Óla Bjarnadóttir Anna Margrét Eymundsdóttir Guðjón Davíðsson Agnes Eymundsdóttir Grétar Geir Guðmundsson Eygló Eymundsdóttir Jakob Ólason Albert Eymundsson Ásta Ásgeirsdóttir Ragnar Hilmar Eymundsson Rannveig Sverrisdóttir Brynjar Eymundsson Guðbjörg Elsa Guðmundsdóttir Benedikt Þór Eymundsson Halldóra Eymundsdóttir Óðinn Eymundsson Elísabet Jóhannesdóttir ömmubörn og langömmubörn. Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, Sveinn Þórir Þorsteinsson sem andaðist 14. apríl, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 2. maí klukkan 15.00. Hjördís Einarsdóttir Lísbet G. Sveinsdóttir Árni Þór Árnason Sveinn Þórir Geirsson Tinna Hrafnsdóttir Hjördís Árnadóttir Ragnar Þórisson Þórdís Hulda Árnadóttir og barnabarnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi, langafi og bróðir, Arnfrið Heiðar Björnsson frá Gerði, Vestmannaeyjum, Frælsið 4 (Torshavn), andaðist á heimili sínu í Færeyjum mánudaginn 28. apríl sl. Útför hans fer fram í Færeyjum sunnu- daginn 4. maí kl. 14.00. Oda Debes og fjölskylda. Okkar ástkæri Jósef Halldórsson byggingarmeistari, til heimilis að Dvalarheimilinu Sunnuhlíð, Kópavogi, sem andaðist mánudaginn 28. apríl sl., verður jarðsungin frá Kópavogskirkju þriðjudaginn 6. maí kl. 15.00. Börn, stjúpbörn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. DAVID BECKHAM FÓTBOLTAKAPPI ER ÞRJÁTÍU OG ÞRIGGJA ÁRA Í DAG. „Fólk er mjög fljótt að dæma mig vitlausan eða jafnvel heilalausan. Fólk má hugsa það sem það vill.“ David Robert Joseph Beckham er einn frægasti fótboltakappi heims. Hann er giftur fyrrverandi kryddpíunni Vict- oriu og eiga þau þrjá drengi saman. Í dag spilar David fyrir bandaríska fótboltaliðið Los Angeles Galaxy, en hann er einnig liðsmaður enska landsliðsins. MERKISATBURÐIR 1919 Ljósmæðrafélag Íslands er stofnað. Það er elsta stéttar félag faglærðra kvenna. Að stofnuninni standa tuttugu ljósmæður. 1957 Tvær nýjar millilandaflug- vélar af Viscount-gerð koma til landsins og fá þær nöfnin Hrímfaxi og Gullfaxi. 1970 Búrfellsvirkjun er vígð. Hún er stærsta mannvirki sem Íslendingar hafa ráð- ist í. 1972 William Rogers, utanríkis- ráðherra Bandaríkjanna, kemur í heimsókn til Ís- lands. Komu hans er mót- mælt. 1992 Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra undirrit- ar samning um Evrópska efnahagssvæðið í Oporto. Þennan dag árið 1994 var Jack Kevorkian, bandarískur meina- fræðingur, sýknaður af líknar- drápi. „Dr. Dauði“ eins og hann er stundum kallaður, hefur verið talsmaður líknardrápa síðan 1987, þegar hann tók að auglýsa ráðgjöf um dauðann í dagblöð- um í Bandaríkjunum. Kevorkian aðstoðaði yfir hundrað dauðvona sjúklinga við að deyja á árun- um 1990 til 1998. Í öllum tilvik- um voru það sjúklingarnir sjálf- ir sem gengu síðustu skrefin í drápsferlinu, Kevorkian aðstoði aðeins með því að setja upp þau tæki sem þurfti til að binda enda á lífið. Kevorkian var dæmdur í 11-20 ára fangelsi árið 1999 fyrir líknardráp á Thomas Youk, 52 ára gömlum manni með banvænan taugasjúkdóm. Kevorkian tók undirbúningsferlið og dauða mannsins upp á myndband sem var sýnt í 60 Mínútum. Hann var látinn laus árið 2007. Kevorkian sagði í viðtali að hann myndi ekki halda áfram að aðstoða fólk við að deyja eftir að hann yrði látinn laus. Í staðinn ætlaði hann að vinna að því að fá lögunum um líknardráp breytt. Í janúar síðastliðnum hélt Ke- vorkian ræðu við Florida-háskóla þar sem hann sagði að líknar- dráp ættu að vera hluti af lækna- þjónustu landsins. „Tilgangur minn var ekki að drepa fólk, heldur að stöðva þjáningu þess og það á ekki að þykja glæpsam- legt“, sagði hann. ÞETTA GERÐIST: 2. MAÍ 1994 Dr. Kevorkian sýknaður Félag Fulbright-styrkþega á Íslandi var formlega stofnað 25. mars síðast- liðinn. Hugmyndin á bak við stofnun- ina er sú að gefa þeim styrkþegum sem farið hafa í gegnum Fulbright- verkefnið tækifæri til að hittast, vinna að sameiginlegum verkefnum og halda reynslu sinni lifandi. „Það tók um ár að safna saman upplýsingum um styrk- þega síðastliðinna 50 ára hér á landi,“ segir Lára Jónsdóttir, framkvæmda- stýra Fulbright-stofnunarinnar á Ís- landi. „Ég sendi út um sjö hundruð bréf og viðbrögðin sem við fengum voru mjög góð. Fólk er afar þakklátt fyrir þá reynslu sem það hefur feng- ið í gegnum Fulbright-prógrammið og ánægt með að halda eigi minningunum og reynslunni lifandi með þessu nýja félagi“. Í fimmtíu ára sögu stofnunarinn- ar hafa rúmlega 700 Íslendingar feng- ið styrk úr sjóðnum og þeir Banda- ríkjamenn sem hingað hafa komið á Fulbright-styrk eru um 500. „Ful- bright gengur út á það að Íslendingar fá styrk til að fara til Bandaríkjanna í nám eða til að stunda rannsóknar- vinnu og Bandaríkjamenn geta feng- ið styrk til þess að koma til Íslands í sömu erindagerðum,“ útskýrir Lára. „Fulbright-styrkurinn er fyrir fólk úr öllum greinum masters- og doktors- náms og felast styrkirnir í peninga- greiðslum“. Kröfurnar sem gerðar eru til styrk- þega eru að þeir séu að fara í fram- haldsnám, að þeir geti sýnt fram á góðan námsárangur, hafi góð með- mæli og séu með skýr markmið í námi sínu. Lára segir að ekki aðeins sé farið eftir einkunnum. „Fólk þarf að geta komið vel fyrir því það að fara sem Fulbright-styrkþegi til Bandaríkjanna er mikill heiður, en Fulbright er merk- asta styrktarprógrammið í Bandarík- unum og því þarf styrkþeginn að vera góður fulltrúi Íslands.“ Bandaríski stjórnmálamaðurinn J. William Fulbright var frumkvöðull og upphafsmaður stofnunarinnar. Hann átti hugmyndina að því að gerðir yrðu tvíhliða samningar milli Bandaríkj- anna og annarra þjóða um að efla sam- skipti þjóðanna á sviði menntamála. Hugmyndina fékk hann þegar banda- ríska þjóðin þurfti í lok síðari heims- styrjaldar að ákveða hvað gera skyldi við vörubirgðir í eigu bandaríska hers- ins, sem safnast höfðu upp í ýmsum löndum. Hann lagði til í þinginu að í stað þess að flytja vörubirgðirnar heim til Bandaríkjanna skyldu þær seldar í viðkomandi landi og afrakst- urinn notaður til að fjármagna sam- skipti Bandaríkjanna og viðkomandi lands á sviði menntamála. Tillagan var samþykkt og rúmlega hálfri öld síðar eru Fulbright-stofnanir starfandi í 51 landi. Að auki hafa aðrar 89 þjóðir undirritað Fulbright-samninginn. Fulbright-stofnunin á Íslandi varð fimmtíu ára í febrúar í fyrra og var haldin vegleg veisla í tilefni þess. Ekkja J. William Fulbright kom til landsins í tilefni tímamótanna, menntamálaráð- herra, styrkþegar og stjórn Fulbright ásamt fleirum komu einnig saman. „Af því tilefni var ákveðið að gangast í að stofna félag fyrir Fulbright-styrkþega á Íslandi. Markmiðið er að stuðla að og efla samskipti allra þeirra sem fengið hafa þennan styrk, bæði fyrir þá sjálfa og stofnunina.“ Fyrsti aðalfundur félagsins verður haldinn næsta haust og þeir Fulbright- styrkþegar sem enn hafa ekki fengið bréf frá stofnuninni eru beðnir um að hafa samband við Láru, annað hvort í síma 552-0830 eða á netfangið lara@ fulbright.is. Frekari upplýsingar er hægt að finna á vef stofnunarinnar www.fulbright.is klara@frettabladid.is NÝTT FÉLAG: FÉLAG FULBRIGHT-STYRKÞEGA Á ÍSLANDI STOFNAÐ Markmiðið að efla samskipti LÁRA JÓNSDÓTTIR Framkvæmdastýra Fulbright er afar ánægð með þær móttökur sem hið nýstofnaða félag hefur fengið. Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi Hjalti Þórarinsson fyrrverandi yfirlæknir og prófessor, Laugarásvegi 36, Reykjavík, andaðist á Hjúkrunarheimilinu Sóltúni að kvöldi dags 23. apríl. Verður jarðsunginn frá Langholtskirkju, mánudaginn 5. maí klukkan 15.00. Alma Anna Þórarinsson (Thorarensen) Þórarinn Hjaltason Halla Halldórsdóttir Oddur Carl Hjaltason Ingibjörg Jakobsdóttir Sigríður Hjaltadóttir Þórir Ragnarsson Gunnlaug Hjaltadóttir Hrólfur Hjaltason barnabörn og barnabarnabörn.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.