Fréttablaðið - 02.05.2008, Blaðsíða 54
30 2. maí 2008 FÖSTUDAGUR
■ Pondus Eftir Frode Øverli
■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman
■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes
■ Kjölturakkar Eftir Patrick McDonnell
■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman
Beeeooww!
Það er hægt
að læra
eitthvað...
Koma sér
áfram!
Tja... Ég hef
eiginlega ekki
hugsað svo
langt fram í
tímann!
En hlustaðu
á þetta sóló!
Hlustaðu!
Jájá...
Algjört æði!
Beoow!
Langar þig að
selja plötur og
myndasögur
það sem eftir
er, Jói?
Hlustaðu á þetta
sóló!
Algjört æði!
Já.. jújú...
Grafðu
Sæktu
Fröken Doppa,
gætirðu verið
aðeins nákvæmari
með umsögnina
hans Snata?
Í dag er föstudagur,
broskall!Oohhh!
Ég þoli ekki
mánudaga. Ég hlýt að hafa
sofið yfir mig.
N e e e e e e e e e e e e i !
Ef þú trúir þessu þekki
ég nígerískan emb-
ættismann sem þyrfti
hjálp þína við nokkrar
einfaldar milli færslur
á peningum.
Þetta er ekkert klístrað eða
ógeðslegt, er það?
Opnið
munninn
og lokið
augunum
og þá verður
ykkur komið
á óvart!
Vondur
hundur
Villidýr á verði
Í gær fagnaði ég bar-
áttudegi verkalýðs-
ins, líkt og fjölmargir
víða um land. Í
Reykjavík gekk fríður
flokkur baráttumanna
og -kvenna niður
Laugaveginn og end-
aði á útifundi á Ingólfs-
torgi. Á göngu minni niður Lauga-
veg varð mér hugsað til þeirra
breytinga sem orðið hafa á bar-
áttudeginum frá því að honum var
fyrst fagnað fyrir rúmum hundr-
að árum. Út undan mér heyrði ég
einhvern tala um það að búið væri
að stela baráttudeginum af vinn-
andi mönnum og konum landsins
en því var ég ósammála.
Þar sem ég gekk um Lauga-
veginn fann ég fyrir þeirri miklu
samkennd sem ríkti meðal hinna
ólíku hópa sem þar voru saman
komnir. Hópa sem hafa hver sín
baráttumál en sameinuðust í gær í
göngu til að berjast fyrir auknum
rétti sínum eða þeirra sem minna
mega sín.
Ég reyndi því að blanda mér í
sem flesta hópa göngunnar eftir
því sem hún hlykkjaðist áfram að
endastöð sinni. Um tíma gekk ég
með gömlum verkalýðshetjum og
það fyllti mig anda að sjá stolt
þeirra á þessum degi sem hefur
markað svo djúp spor í sögu verka-
lýðsbaráttu. Því næst gekk ég með
námsmönnum sem mæltu gegn
skólagjöldum og töluðu fyrir efl-
ingu menntunar á Íslandi.
Þá gekk ég með þeim sem berj-
ast gegn stríðsrekstri og héldu á
lofti spjöldum með gamalli kröfu
sem þó hefur breyst ögn síðan
herinn fór af landi brott um árið:
Ísland úr Nató – Engan her. Það
hefur eflaust verið gaman fyrir
þá sem máluðu þessi nýju skilti að
sjá að þeirra langþráða baráttu-
mál var að hluta orðið að veru-
leika. Það hlýtur líka að vera
markmið þeirra sem berjast fyrir
málstað að gera sig að lokum
óþarfa.
Dagur sem þessi er mikil hvatn-
ing til dáða og gefur fólki von.
Mér þykir því jákvætt að fleiri
hafi fylgt fordæmi verkalýðsins
og noti þennan dag ár hvert til að
minna á sig og sín málefni.
STUÐ MILLI STRÍÐA Baráttudagurinn 1. maí
ÖRLYGUR HNEFILL ÖRLYGSSON GEKK GLAÐUR NIÐUR LAUGAVEG Í GÆR