Fréttablaðið - 17.05.2008, Side 33
][ Landakort má ekki gleymast þegar ferðast er til ókunnra landa. Oft þarf að grípa til þess þegar munnlegar leiðbeiningar eru á framandi tungumáli.
Nám erlendis heillar flesta
Íslendinga og landann er að
finna víða um heim. Alþjóða-
skrifstofa Háskóla Íslands
kemur við sögu hjá mörgum
sem fara í víkinginn enda að
ýmsu að huga fyrir brottför.
„Alþjóðaskrifstofa Háskóla
Íslands, þjónar öllu menntastiginu
sem landsskrifstofa fyrir Mennta-
áætlun Evrópusambandsins og
Nordplus menntaáætlunar nor-
rænu ráðherranefndarinnar.
Menntaáætlanirnar ná til leikskóla,
grunnskóla, framhaldsskóla,
háskóla og fullorðinsfræðslu. Auk
þess er hér rekin upplýsingastofa
um nám erlendis sem er opin fyrir
almenning, en þangað sækja marg-
ir sem eru í leit að háskólanámi
erlendis. Meginverkefnin eru þó
stúdenta- og kennara skipti fyrir
Háskóla Íslands og formlegt sam-
starf við erlenda háskóla,“ segir
Karitas Kvaran, forstöðumaður
Alþjóðaskrifstofu Háskóla Íslands.
Aðsóknin er mjög góð að hennar
sögn og árlega fara á milli tvö og
þrjúhundruð utan. „Flestir frá
okkur eru í grunnnámi en síðan er
að færast í vöxt að fólk í fram-
haldsnámi taki hluta náms erlendis
og það er mjög hvatt til þess.
Ástæðan fyrir því er fjölbreyttara
framboð námskeiða erlendis auk
þess sem það styrkir framhalds-
námið hér,“ útskýrir Karitas og
segir flesta fara til Norðurland-
anna og Evrópu, en einnig sé auk-
inn áhugi á Bandaríkjunum, Kan-
ada og Asíu. „Háskóli Íslands hóf
kennslu í japönsku fyrir nokkrum
árum og það er alltaf töluverður
hópur sem fer til Japan árlega.
Einnig tökum við á móti nemend-
um þaðan í staðinn, enda er það
forsendan fyrir skiptináminu.
Kennsla í kínversku hófst við
Háskóla Íslands síðst liðið haust og
núna erum við að þreifa fyrir okkur
með skiptinám til Kína,“ segir
Karitas.
Flestir sem fara í skiptinám eru
úr hugvísinda- og félagsvísinda-
deild, en einnig úr viðskipta- og
hagfræðideild, lagadeild, verk-
fræði- og raunvísindadeild. Auk
þess segir Karitas nemendur úr
heilbrigðisvísindum velji þessa
leið í auknum mæli.
Hún segir skólann vera með
samning við ákveðna skóla víðs-
vegar um heiminn sem bjóða skipt-
inám og nefnir nokkra óvenjulega
staði. „Svalbarði í Noregi er alltaf
vinsæll staður, helst meðal nem-
enda í raunvísindum, gjarnan jarð-
fræði og landafræði. Síðan erum
við einnig með samning við skóla á
franskri eyju í Indlandshafi sem
nefnist Reunion. Einnig má nefna
staði í Suður- Ameríku sem þykja
alltaf spennandi,“ segir Karitas,
sem bætir við Ísland sé nú vinsælla
en nokkru sinni fyrr. „Í dag tökum
við á móti mun fleiri skiptinemum
en fara héðan. Ísland þykir áhuga-
vert land og hér er boðið upp á gott
nám. Síðan er líka mikið kennt á
ensku og það er lykillinn að námi
fyrir erlendra skiptinema hérlend-
is.“
Kröfur til íslenskra skiptinema
eru mismunandi eftir löndum og að
sögn Karitasar borgar sig að kanna
málið vel hjá Alþjóðaskrifstofu
Háskóla Íslands með góðum fyrir-
vara. http://www.ask.hi.is
rh@frettabladid.is
Nám á Svalbarða og
við strendur Afríku
Bandaríkin og Asía eru meðal svæða sem njóta aukinna vinsælda meðal íslenskra
skiptinema á háskólastiginu, að sögn Karitasar Kvaran, forstöðumanns Alþjóðaskrif-
stofu Háskóla Íslands. FRÉTTABLAÐIÐ/RÓSA
BÍLALEIGUBÍLAR
SUMARHÚS Í DANMÖRKU
Sumarhús
Útvegum sumarhús í
Danmörku af öllum stærðum
Fjölbreyttar upplýsingar á
www.fylkir.is
LALANDIA - Rødby
Lágmarksleiga 2 dagar.
LALANDIA - Billund
Nýtt frábært orlofshúsahverfi
rétt við Legoland.
Ódýrari bílaleigubílar
fyrir Íslendinga.
Bílar frá dkr. 1.975.- pr. viku.
Innifalið í verði;
ótakmarkaður akstur, allar
tryggingar, engin sjálfsábyrgð.
( Afgr.gjöld á flugvöllum).
Höfum allar stærðir bíla, 5 – 7
manna og minibus 9 manna og
rútur með eða án bílstjóra.
Halló pabbi!
Halló mamma!
Er fjölskylda þín ein af þeim?
Ég er á leiðinni ...
48 erlendir skiptinemar koma til Íslands í ágúst nk.
Þeir bíða spenntir eftir að heyra frá íslensku fósturfjölskyldunum sínum.
Ef svo er gefst ykkur færi á að taka á móti
erlendum skiptinema næstu 5-10 mánuði.
Viljið þið kynnast
... nýjum viðhorfum?
... framandi menningu?
... nýrri sýn á land og þjóð?
Ingólfsstræti 3, 2. hæð
Sími 552 5450 • www.afs.is
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
Blaðberinn bíður þín
Þú færð Blaðberann þinn í Skaftahlíð 24
alla virka daga frá kl. 8-17.
...góðar fréttir fyrir umhverfiðBlaðberinn...