Fréttablaðið - 07.06.2008, Page 2
2 7. júní 2008 LAUGARDAGUR
SKIPULAGSMÁL Borgaryfirvöld hafa
sent húseigendum við Laugaveg
tæplega 300 bréf þar sem þeim er
tilkynnt niðurstaða úttektar á
húsum þeirra. Verktakar voru
ráðnir til starfans. Dýrustu fram-
kvæmdir sem kallað er eftir
hlaupa á milljónum.
Húseigendur eru hvattir til
framkvæmda fyrir 17. júní, í síð-
asta lagi 1. ágúst, annars sé gripið
til dagsekta. Þetta á ekki við um
eignir borgarinnar sjálfrar við
Laugaveg 4 og 6, en þar fer nú
fram deiliskipulagsvinna. Hún
verður kynnt á næstu vikum, en
ferlið tekur einhverja mánuði.
Dagur B. Eggertsson borgar-
fulltrúi sagði í samtali við Frétta-
blaðið fyrir nokkru að hann teldi
rétt að borgin beitti sjálfa sig dag-
sektum eins og aðra.
Magnús Sædal byggingarfull-
trúi segir kostnaðinn við úttektina
á Laugavegi ekki liggja fyrir.
„Hann safnast saman á ýmsum
stöðum í kerfinu og ekki enn ljóst
hver hann er. En þessu fylgir gíf-
urlegur kostnaður og einnig
aðgerðum varðandi veggjakrot.“
Magnús segir hreinsunarstarfið
við Laugaveg hafa gengið prýði-
lega og starfsemi vera komna í
hús sem áður stóðu auð. Hvað
varðar dagsektir verði tekið tillit
til umfangs framkvæmda.
„Við erum að gefa fólki skikkan-
legan tíma til aðgerða. Í ákveðn-
um tilfellum er ekki óeðlilegt að
umfangsmiklar aðgerðir geti tekið
allt að eitt ár.“ - kóp
FJÖLMIÐLAR „Ég er nú ekki sáttur
við þessa þróun mála,“ segir Sig-
urður Kári Kristjánsson, formað-
ur menntamálanefndar Alþingis,
um þá ákvörðun Ríkisútvarpsins
að nýta RÚV+ rás sína til að geta
sjónvarpað frá tveimur íþrótta-
viðburðum samtímis. „Að mínu
viti var ekki ráðist í breytingar á
rekstrarformi og hlutverki Ríkis-
útvarpsins með það að markmiði
að auka umsvif ríkisins á fjöl-
miðlamarkaði.“
Á morgun verður fyrirkomulag-
ið nýtt til að geta sýnt bæði frá
leik Íslands og Makedóníu í hand-
knattleik og Þjóðverja og Pólverja
á Evrópumótinu í knattspyrnu, en
leikirnir tveir skarast. Sami hátt-
ur verður hafður á í lokaumferð
riðlakeppni Evrópumótsins, þar
sem tveir leikir munu fara fram
samtímis daglega í fjóra daga.
Alls verða því fimm leikir í mán-
uðinum sýndir í beinni útsendingu
á hliðarrás Ríkisútvarpsins.
Páll Magnússon segir að til hafi
staðið að vera í samstarfi við Stöð
2 Sport þegar leiknir verða tveir
leikir samtímis. „Það reyndust
hins vegar á því samningsréttar-
legir annmarkar gagnvart þeim
aðilum sem við keyptum sýning-
arréttinn af; að útsendingarnar
þyrftu að vera undir okkar for-
merkjum en ekki annarra. Því
varð niðurstaðan að gera þetta
með þessum hætti,“ segir Páll.
Sigurður Kári segir ekki sann-
gjarnt gagnvart einkaaðilum að
Ríkisútvarpið, sem þegar sé í
ójafnri samkeppni við þá, gefi í
frá því sem nú er. „Ég leyfi mér nú
bara að vona að þetta sé eina skipt-
ið sem þetta gerist og muni ekki
eiga sér framhald.“
„Við erum ekki að setja á fót
neina íþróttarás með þessu,“ árétt-
ar Páll, og segir erfitt að segja til
um það hvenær hugsanlega kæmi
til ráðstafana af þessu tagi aftur.
Spurður hvort Ríkisútvarpinu
sé heimilt að sjónvarpa á tveimur
rásum samtímis segist Sigurður
Kári ekki geta sagt til um það með
vissu. „En mér finnst ólíklegt að
þetta stangist á við lög,“ segir
hann.
„Við skoðuðum það hvort það
kynnu að vera einhverjir ann-
markar á þessu og við fundum þá
ekki,“ segir Páll. Hann segist ekki
hafa leitað til útvarpsréttarnefnd-
ar vegna málsins.
Benedikt Bogason, formaður
útvarpsréttarnefndar, hafði heyrt
af málinu þegar Fréttablaðið hafði
samband við hann, en ekki kynnt
sér það. Hann sagði nefndarmenn
ekki myndu tjá sig um málið fyrr
en eftir helgi. stigur@frettabladid.is
TAKTU ÞÁTT!
7. JÚNÍ 2008
SJÓVÁ KVENNAHLAUP ÍSÍ
Guðjón, er þetta ekki alveg
agaleg nefnd?
Jú, það eru orð að sönnu. Þetta er
alveg agalegt.
Aganefnd KSÍ dæmdi Guðjón Þórðarson,
þjálfara Skagamanna, í eins leiks bann
fyrir ummæli sín eftir leik gegn Keflavík.
Kostnaðarsamri úttekt á húsum við Laugaveg er lokið:
Dýrt að meta Laugavegshúsin
UNDANSKILIÐ Borgin mun ekki sekta
sjálfa sig líkt og aðra húseigendur við
Laugaveg. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Ekki verið að stofna
nýja íþróttarás RÚV
Formaður menntamálanefndar er ósáttur við þá þróun að Ríkissjónvarpið ætli
að sýna leiki á EM í knattspyrnu á hliðarrás. Aukin umsvif RÚV hafi ekki verið
ætlunin með hlutafélagavæðingu. Útvarpsstjóri segir íþróttarás ekki á dagskrá.
KNATTSPYRNA Í lokaumferð riðlakeppninnar á Evrópumótinu verða tveir leikir sýndir
samtímis. NORDICPHOTOS/AFP
SIGURÐUR KÁRI
KRISTJÁNSSON
PÁLL
MAGNÚSSON
LÖGREGLUMÁL Hollenskur karl-
maður sem setið hefur í fangels-
inu á Suðurnesjum undanfarna
daga hefur nú losað sig við tíu til
fimmtán fíkniefnapakka.
Samkvæmt röntgenmyndum er
gert ráð fyrir að enn leynist 40 til
50 pakkar í iðrum mannsins. Þeir
eru komnir neðarlega í meltingar-
veginn, samkvæmt upplýsingum
Fréttablaðsins. Líkur eru taldar á
að nokkur hundruð grömm af
kókaíni séu í pökkunum.
Maðurinn var handtekinn á
fimmtudagskvöld fyrir rúmri
viku í Leifsstöð. Hann var að
koma frá Amsterdam. - jss
Hollendingur í varðhaldi:
Kókaínið loks á
leiðinni niður
FRÉTTABLAÐIÐ Dreifing Fréttablaðs-
ins verður aukin í sumar. Blaðið
verður lagt fram í sérstökum köss-
um á ferðamannaslóðum. Fyrsti
kassinn hefur nú þegar verið settur
upp við afleggjarann að Hallkels-
hólum í Árnessýslu.
Dreifa á blaðinu á þennan hátt í
mörgum af helstu sumarbústaða-
byggðum bæði á Suður- og
Vesturlandi. Blöðin verða endur-
nýjuð daglega og ósótt blöð
fjarlægð. Fréttablaðið verður
áfram aðgengilegt hjá sölu- og
þjónustufyrirtækjum víðs vegar
um landið. - hþj
Dreifing blaðsins í sumar:
Fréttablaðið á
vegum landsins
FRÉTTABLAÐSKASSINN Þeim, sem óska
eftir að setja upp Fréttablaðskassa eða
vilja dreifa blaðinu, er bent á að senda
fyrirspurnir á dreifing@posthusid.is eða
hringja í síma 585-8300.
LÖGREGLUMÁL Háskólakennarinn
sem situr í gæsluvarðhaldi vegna
gruns um kynferðisafbrot hefur
gengist við hluta af þeim
ásökunum sem á hann eru bornar
sagði Oddgeirs Einarssonar,
lögmaður hans, í samtali við
Fréttablaðið.
Á fréttavefnum Vísi er haft
eftir Oddgeiri að skjólstæðingur
hans vilji koma því á framfæri að
hann iðrist gjörða sinna og vonist
til að geta beðið konu sína og
börn afsökunar.
Að sögn Björgvins Björgvins-
sonar, yfirmann kynferðisbrota-
deildar lögreglunnar, hafa níu
ákærur borist á hendur honum.
Gæsluvarðhaldið rennur út 7. júlí
næstkomandi. - jse
Kynferðisbrotamál:
Hefur játað sök
LANDHELGISGÆSLAN Þyrla Land-
helgisgæslunnar, TF-Líf, var í
gær leigð út í farþegaflug.
Samkvæmt upplýsingum frá
Landhelgisgæslunnar var um að
ræða flug fyrir Þyrluþjónustuna.
Flogið var með þýska ferða-
menn að Laxnesi í Mosfellsdal.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem
þyrlan er leigð út til einkaaðila.
Önnur þyrla er til taks ef útkall
kemur upp á sama tíma.
Sigríður Ragna Sverrisdóttir,
upplýsingafulltrúi Landhelgis-
gæslunnar, sagðist ekki þekkja til
málsatviks í gær. Ærin ástæða
hljóti að hafa verið fyrir þessu
flugi. - kóp
Þyrla Landhelgisgæslunnar:
TF-LÍF í far-
þegaflugi
Í FARÞEGAFLUGI Þyrla Landhelgisgæsl-
unnar sinnti farþegaflugi fyrir Þyrluþjón-
ustuna í gær. Aflar gæslunni tekna.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
STJÓRNMÁL Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir utanríkisráðherra
segir óhjákvæmilegt að stjórn-
völd dragi lærdóm af útkomu
Baugsmálsins sem leitt var til
lykta í Hæstarétti í fyrradag.
Í tilkynningu sem Ingibjörg
sendi frá sér segir hún bersýni-
legt að dómstólar kveði upp úr
um að umfang rannsóknarinnar,
sem stóð í sex ár og kostaði
ógrynni fjár, sem og ákæranna
sem gefnar voru út upphaflega
hafi alls ekki verið í samræmi við
tilefnið. - jse
Utanríkisráðherra:
Verða að læra
af Baugsmálinu
IÐNAÐUR Fyrsta skóflustungan var
tekin að kerskála fyrirhugaðs
álvers Norðuráls í Helguvík í gær
eftir að skrifað hafði verið undir
samning Norðuráls og Íslenskra
aðalverktaka sem reisa skálann.
Á sama tíma höfðu mótmæl-
endur sig í frammi og voru tveir
þeirra handteknir.
Í fréttatilkynningu frá Norður-
áli segir að heildarkostnaður
vegna fyrsta áfanga álversins
verði á bilinu 70 til 80 milljarðar
en hann verður tilbúinn í árslok
2010. Áætluð útflutningsverð-
mæti miðað við álverð í dag verða
um 35 milljarðar á ári. Um 400
manns munu starfa við álverið og
segir að afleidd störf verði um
600.
„Það er táknrænt að þeir hafi
verið að grafa því þarna var verið
að jarða ferðaþjónustu og nýsköp-
un á Reykja-
nesi,“ segir
Elvar Geir
Sævarsson, íbúi
í Reykjanesbæ,
sem mætti til
að mótmæla.
„Það á að taka
alla orkuna í
þessa starfsemi
svo ekkert
annað mun
þrífast nema það sem snýr að
álframleiðslu og þjónustu í kring-
um það. Svo hefur reynslan sýnt
að þeir kaupa um síðir rekstur
allra þeirra sem þjónusta þá í stað
þess að þurfa að kaupa af þeim
þjónustuna.“ Af þessu tilefni
mættu mótmælendur með líkkist-
ur sem áttu að tákna útför ferða-
mannaþjónustu og nýsköpunar á
Reykjanesi. - jse
Fyrsta skóflustunga tekin að álveri í Helguvík:
Segir þá hafa jarðað nýsköpun
MÓTMÆLANDI HANDTEKINN Tveir voru
handteknir við mótmælin sem stóðu yfir
þegar fyrsta skóflustungan var tekin að
álveri í Helguvík. MYND/VÍKURFRÉTTIR
ELVAR GEIR
SÆVARSSON
SPURNING DAGSINS