Fréttablaðið


Fréttablaðið - 07.06.2008, Qupperneq 30

Fréttablaðið - 07.06.2008, Qupperneq 30
30 7. júní 2008 LAUGARDAGUR Sagan á eftir að fella sinn dóm Guðmundur Þóroddson, fyrrverandi forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur og REI, stendur á krossgötum. Honum hefur verið boðið að stofna nýtt jarðhitafyrirtæki með bandarískum fjárfestingasjóði. Í viðtali við Svavar Hávarðsson gerir hann upp REI-málið. Hann telur Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson ekki bera ábyrgð á því hvernig fór og upplýsir að borgarstjórinn fyrrverandi hafi ekki séð frægan nafnalista á stjórnar- og eigendafundi Orkuveitunnar sem var vendipunktur í falli þáverandi borgarmeirihluta. F yrst af öllu hver er þín sýn á REI-málið almennt séð? Við sáum stórt tæki- færi fara forgörðum og allir sem að því komu geta eflaust sagt núna að þeir hefðu getað gert margt öðru- vísi og betur. Þetta varð mál mál- anna og fór úr böndunum. Ég held að ef menn skoða þetta þá var um að ræða stórkostlegt tækifæri. Útrásarfyrirtæki með 80 milljarða í eigið fé eins og leit út fyrir að verða. Mistökin voru, og ég hefði átt að átta mig á því, að við vorum allt of mikið viðskipta- lega þenkjandi og þeir sem komu að málinu frá FL-Group sáu þetta fyrst og fremst sem viðskiptamál. Haukur Leósson, sem var stjórn- arformaður OR, var fyrst og fremst með þekkingu á viðskipt- um en ekki stjórnmálamaður. Þannig að kjarni málsins frá mínum sjónarhóli séð var að við vorum með frábært viðskipta- tækifæri sem átti eftir að hugsa pólitískt. Þar brugðust tengingarnar inn í hinn pólitíska heim sem varð til þess að menn sáu ekki þessar gryfjur sem voru á leiðinni. Part- ur af því er vegna þess að þetta gerðist allt ofboðslega hratt því við vorum á þessum tíma í vand- ræðum með það að stjórn Orku- veitunnar hélt ekki utan um upp- lýsingarnar. Allt sem inn á stjórnarfundi fór og dagskrá þeirra var komið í fjölmiðla áður en fundurinn var haldinn. Við vorum í erfiðri stöðu með að fara í mikið kynningarferli því stjórnarmenn höfðu sýnt ítrekað að þeir láku öllum upplýsingum út. Þess vegna var málið unnið gríðarlega hratt. Til að mynda vorum við Bjarni Ármannsson mikið til erlendis á meðan þetta var að gerast og eftir á að hyggja hefði átt að fara hægar í sakirnar. Ræða hefði þurft málin betur og setja fólk ekki upp við vegg með að þurfa að samþykkja hluti áður en það hafði náð að kynna sér málið mjög vel. Bitbein í fjölmiðlum Þurftuð þið að vinna málið svona hratt vegna þess að stjórnarmenn láku upplýsingum jafn harðan? Það var það sem gerði það að verkum að stjórnin var ekki öll tekin inn í umræðuna strax. Reynslan sýndi að menn voru byrjaðir að berjast í blöðunum með óklárað mál. Við fundum verulega fyrir því í stjórn fyrir- tækisins að um leið og mál kom á stjórnarborð var það orðið bitbein í fjölmiðlum. Hverjir voru það sem láku upp- lýsingum í fjölmiðla? Ég hef ekki hugmynd um hverj- ir það voru. Hver átti að axla hina pólitísku ábyrgð og hvenær? Ég geri mér ekki grein fyrir því. Ég er ekki viss um hver var hin pólitíska sök. Var það að setja fyr- irtækið á koppinn eða afgreiðslan við stofnun fyrirtækisins. Liggur sökin í því að láta þetta ekki ganga áfram eins og lagt var upp með? Ég held að sagan muni greina þetta þegar persónur og leikendur standa þessu ekki eins nærri og nú er. Þá kemur sýn á það hvert var hið stóra pólitíska mál í þessu öllu. Það má nefna Hafskipsmálið í þessu samhengi, það sama á við um Baugsmálið og ég held að það muni gilda um REI-málið. Sagan á eftir að fella sinn dóm. Ég sé ekki nein sérstök pólitísk afglöp í þessu annað en það að meirihluti borgarstjórnar springur vegna málsins. Ég veit ekki hver það ætti að vera sem axla ætti ábyrðina sérstaklega. Það voru engir saknæmir hlutir gerðir og menn fóru ekki út fyrir sínar heimildir. Menn segja að Vilhjálm- ur borgarstjóri hafi farið út fyrir sínar heimildir en ég taldi það alveg klárt að hann væri með bak- landið í lagi; alla vega að menn væru samþykkir því að gera þetta svona. Þannig að ég get ekki lagt þetta í fangið á honum neitt sér- staklega. Svo má spyrja hvort REI var ekki það sem fyllti mælinn í öðrum samskiptum á þeim vett- vangi, ég veit það ekki. Margir hafa haldið því fram að uppsögn þín hafi verið eðlileg í ljósi kaupréttarsamninganna sem gerðir voru og má minna á að í skýrslu þverpólitísks stýrihóps um málefni REI var komist að þeirri niðurstöðu að trúnaðarbrestur hafi orðið á milli þín og borgarfulltrúa í tengslum við REI-málið. Varst þú látinn axla ábyrgð að ósekju? Ég er ekkert að velta mér upp úr því. Ég var ekki ráðinn þannig að það þyrfti að segja mér upp af einhverri sérstakri ástæðu. Ef menn eru komnir í þá stöðu að geta ekki unnið saman þá er best að hver fari sína leið. Það er sjálf- hætt þegar forstjóri og stjórn geta ekki unnið saman og það þarf að taka á því. Hvað kaupréttarsamn- inga varðar er það rangnefni því þetta voru samningar um kaup hlutabréfa á því gengi sem þar var í gangi. Vilhjálmur og nafnalistinn Þegar Vilhjálmur Þ. sagðist ekki hafa séð listann með nöfnum þeirra sem áttu að fá kauprétt í REI, þá sagðir þú opinberlega að hann hefði verið lagður fyrir fund- armenn, enda sast þú fundinn þar sem minnisblaðið var lagt fyrir. Það kom Vilhjálmi í mikinn vanda og honum tókst aldrei að vinna sig til baka í málinu eftir það. Er hugs- anlegt að Vilhjálmur sé á bak við uppsögn þína í hefndarskyni sér- staklega í ljósi þess að meirihluti í borgarstjórn stendur á bak við ákvarðanir stjórnar? Ég hef enga ástæðu til að halda það. En þetta var mjög óheppilegt með þennan lista af því honum var dreift á þessum fundi. En í þessu tilfelli var ég bara sem starfs- maður REI á fundinum til að veita upplýsingar en á sama tíma var þetta stjórnar- og eigendafundur hjá Orkuveitunni allt í senn sem eftir á að hyggja var óheppilegt fundarform. Listanum var bara dreift mín megin við borðið, og ég vissi það ekki. Þar sat minni- hlutinn. Minnihlutinn var um morgun- inn að meta þennan lista og hafa skoðanir á því hverjir þar voru og upphæðum sem komu þar fram. Þannig að ég held að við báðir höfum haft rétt fyrir okkur en sátum hvor sínum megin við borð- ið. Blaðinu var vissulega dreift á fundinum en ekki til allra sem þar voru, og ég vissi það einfaldlega ekki. Ég var spurður um þetta einu sinni og svaraði því. En ég hafði ekki hugmynd um það á þeim tíma að Vilhjálmur hafði ekki fengið listann. Það breytir því ekki að ein af tillögunum á fundinum var, eins og gert er í hlutafélögum, að taka hlutafé til þessara nota og bjóða starfsmönnum Orkuveitunnar að kaupa. Þá var þetta mál einnig rætt á fundinum. Þarna kristallast að hugsa um þetta sem viðskipti eða pólitík. Fyrir okkur var það klárt að til að ná sem bestum árangri þá yrðu starfsmenn REI í fyrsta lagi að tengjast fyrirtækinu og í öðru lagi að hafa hagsmuni sem færu saman og í þriðja lagi að vera ekki verr settir en þeir sem voru að koma úr hinni áttinni. Þetta var lykilatriði. Svo var verið að selja þeim hluta- fé á sama gengi og aðrir hluthafar voru að koma inn á, eins og Bjarni Ármannsson og Jón Diðrik. Menn voru að kaupa hlutabréf fyrir Ég er Reykvíkingur, fæddur árið 1957, en foreldrar mínir eru ættaðir hvort af sínu landshorninu; Mel- rakkasléttu og Vestfjörðum. Ég er menntaður vélaverkfræðingur frá Háskóla Íslands og tók framhald í verkfræði í Kaupmannahöfn. Árið 1985 kom ég heim og vann við rannsóknir í fiskiðnaði hjá Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins og kenndi einnig í Háskóla Íslands í fimm ár. Þá bar svo við að konan mín, Halldóra Björnsdóttir sem er læknismenntuð, fór í framhaldsnám til Bandaríkjanna í hjartalækningum. Þar sem það er sex ára nám voru góð ráð dýr og ég ákvað því að fara í MBA-nám í Madison, Wisconsin. Halldóra tók lyflæknisfræði í Mad- ison en síðar fórum við til Boston þar sem hún fór í hjartalækningar á Beth-Israel sjúkrahúsinu við Har- vard-háskóla. Þar byrjaði ég að vinna aðeins í markaðsstarfi fyrir fyrirtækið Þórs- brunn en um sama leyti fæddist okkur fyrsta barnið af tveimur. Ég tók að mér að annast það fyrsta árið enda eru hjartalækningar í Bandaríkjunum þess eðlis að þær fer ekki vel saman við að annast lítið barn. Svo sótti ég í bríaríi um stöðu vatnsveitustjóra í Reykjavík og fékk þá stöðu öllum á óvart. Það var dæmi um pólitískt þor sem er minna af í dag, því ég tók beint við af föður mínum. Ég dreif mig því heim ári á undan þeim mæðgum til að taka við því starfi. Eftir að hafa verið vatnsveitustjóri í fimm ár er Orkuveitan stofnuð og mér fannst það freistandi tækifæri að sækja um forstjórastarfið sem ég gegndi þangað til síðastliðið haust þegar stjórnarformaður Orkuveit- unnar bað mig um að flytja mig yfir í REI til að byggja upp nýtt útrásar- fyrirtæki næstu sjö mánuðina. Ég var upp með mér að vera treyst fyrir því. Þetta var töluverð ákvörðun þar sem ég var orðinn nokkuð settlegur í hinu starfinu. Sagan eftir það er nokkuð skemmtileg en hana þekkja víst flestir. GUÐMUNDUR UM SJÁLFAN SIG GUÐMUNDUR ÞÓRODDSSON Fyrrverandi forstjóri Orkuveitunnar og Reykjavík Energy Invest segist ekki sjá nein sérstök pólitísk afglöp í REI-málinu annað en að meirihluti borgarstjórnar sprakk. Engir saknæmir hlutir hafi verið gerðir, né hafi menn farið út fyrir sínar heimildir. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Við vorum í erfiðri stöðu að fara í mikið kynn- ingarferli því stjórnar- menn höfðu sýnt ítrekað að þeir láku öllum upp- lýsingum út. Þess vegna var málið unnið gríð- arlega hratt.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.