Fréttablaðið - 07.06.2008, Blaðsíða 31
HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM FERÐIR MATUR BÍLAR TÍSKA GRÆJUR ATVINNA TILBOÐ VINNUVÉLAR O.FL.
Arnar Bragi Jónsson bifvélavirki hefur aðstöðu
í bílskúr ömmu sinnar. Þar stendur hann í
ströngu öll kvöld um þessar mundir við að gera
86-módel af Volvó að algeru tryllitæki.
„Ég braut gírkassa í þessum ágæta Volvó mínum. Þá
var tekin sú mjög svo gáfulega ákvörðun að fara í
dótakassann, sækja sér átta sílindra mótor úr Chevr-
olet Van, 78-módeli og gera tilraun til að skrúfa hann
ofan í,“ segir Arnar Bragi þar sem hann er að sprauta
heddið rautt. „Áformið er að reyna að komast á græj-
unni á bíladaga á Akureyri 13. júní. Við verðum bara
að sjá hvernig það gengur.“ Spurður hvort þetta sé
ekki mikið mál svarar hann: „Það er furðu lítið sem
ég þarf að smíða, bara nýjar mótorfestingar og gír-
kassabiti. Jú, og nýtt drifskaft. Annað er endurnýtt.
Gírkassinn til dæmis nýupptekinn. Eins og hefur
löngum verið sagt þá er allt hægt með slípirokki,
stórri sleggju, suðugræjum og skorti á skynsemi – og
þá meina ég nægum skorti á skynsemi! Aðalvanda-
málið hjá mér er þessi þröngi tímarammi sem ég
valdi mér sem var einn og hálfur mánuður.“
Arnar Bragi er bifvélavirki og kveðst vera svo
heppinn að vinna við áhugamálið alla daga. „Maður
dregur ekki lappirnar þegar maður þarf að mæta í
vinnu, flýtir sér ef eitthvað er,“ segir hann hress.
Hann viðurkennir að kvöldvinnan í skúrnum taki í en
segir vini sína í Kvartmíluklúbbnum vera honum
innan handar. Við eftirgrennslan kemur í ljós að
Arnar Bragi er ræsir Kvartmíluklúbbsins.
Volvóinn er Arnar Bragi búinn að eiga í nokkra
mánuði en átti annan alveg eins áður. „Það er lang-
best að vera á svona gömlum bíl, einfalt, þægilegt,
ódýrt, ekkert óþarfa tölvudrasl,“ útskýrir hann.
Þú verður ekkert lengi á honum norður, er það? er
lokaspurning blaðamanns.
„Markmið okkar í Kvartmíluklúbbnum er að koma
hraðakstri af götunum og inn á lokuð svæði, því reyni
ég að halda lög og reglur,“ svarar Arnar Bragi og
bætir við. „Það er líka ódýrara.“
gun@frettabladid.is
Með slípirokk og sleggju
„Það er langbest að
vera á gömlum bíl,
einfalt, þægilegt,
ódýrt. Ekkert óþarfa
tölvudrasl,“ segir
bifvélavirkinn og
kvartmílugæinn Arnar
Bragi Jónsson.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
R
N
ÞÓ
R
BETRA SÝNINGARRÝMI
Sýningarrými fyrir atvinnubíla
verður opnað hjá Toyota á
Nýbýlavegi í dag ásamt
nýrri aukahluta-
verslun.
BÍLAR 2
SÁ STÆRSTI Í EVRÓPU
Regína Hreinsdóttir, þjóð-
garðsvörður í Skaftafelli,
dregur fána að húni í dag
þegar Vatnajökulsþjóð-
garður verður stofnaður.
Þjóðgarðurinn er sá
stærsti í Evrópu.
FERÐIR 3