Fréttablaðið - 07.06.2008, Side 40

Fréttablaðið - 07.06.2008, Side 40
● heimili&hönnun Tom Dixon ætlaði aldrei að verða hönnuður. Hann fór ungur í lista- skóla í Englandi en lenti í mót- orhjólaslysi sem varð til þess að hann hætti námi og lá á spítala í nokkra mánuði. Að spítalavist lok- inni tók hann við að spila á bassa í diskóbandi en lenti þá aftur í mót- orhjólaslysi og gat ekki spilað í nokkurn tíma. Dixon vann fyrir sér í London með því að spila á börum á kvöldin en á daginn lék hann sér á brota- járnshaugum og með logsuðutæki að vopni smíðaði hann stóla, ljós og fleira úr því sem hann fann á haugnum. Ekki leið á löngu þar til hlutir Dixons vöktu eftirtekt á Englandi og víðar og var almenn- ingur ákafur í að kaupa hluti eftir hann. Dag einn fékk Dixon svo símtal frá Capellini á Ítalíu, sem hafði komið auga á hæfileika hans, og vildi framleiða hluti eftir hann. Samningar tókust og varð S-stóll- inn svokallaði meðal annars til úr því samstarfi, en eintak af honum er nú að finna á Nýlistasafninu í New York. Frægðarsól Dixons hélt áfram að rísa og var hann ráðinn yfir- hönnuður hjá Habitat árið 1998. Ráðningin olli þónokkru fjaðra- foki þar sem Dixon var ekki menntaður í sínu fagi. Habitat náði hins vegar nýjum hæðum með hann við stjórnvöllinn og gætir þeirra áhrifa enn í dag. Dixon hefur nú stofnað sitt eigið fyrirtæki, Tom Dixon, og framleiðir mestmegnis húsgögn og ljós úr krómi og kopar. Hafa hlutir hans vakið hvað mesta at- hygli á helstu hönnunarsýning- um að undanförnu, enda þykja verk hans almennt vera boðberar nýrra tíma. - keþ Með logsuðutæki að vopni ● Tom Dixon er stóra nafnið í heimi hönnunar í dag, en hann vakti fyrst athygli fyrir hluti sem hann sauð saman úr brotajárni í London. Tom Dixon varast að taka sig of hátíðlega og telur sig iðnaðarmann frekar en hönnuð. MYND/TOM DIXON Dixon hannar ekki bara ljós, þótt hann sé þekktastur fyrir þau. Hér er hornsófi úr smiðju hans. Þegar þessir borðlampar eru skoðaðir er auðvelt að sjá hvernig Dixon hefði getað fengið hugmyndina að þeim á brotajárnshaugnum. Koparkúlurn- ar sem gætu bæði verið frá sjöunda ára- tugnum eða úr framtíðinni. Ármúla 36 • 108 Rvk S. 581 4070 • www.jabohus.is SUMARHÚS HEILSÁRSHÚS GESTAHÚS Finnsk og sænsk gæðahús Koma tilbúin til uppsetningar Góð reynsla og hagstætt verð 7. JÚNÍ 2008 LAUGARDAGUR4

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.