Fréttablaðið - 07.06.2008, Side 42
● heimili&hönnun
„Okkur líður afar vel hér,“ segir
Dögg þegar hún er heimsótt í gula
húsið sitt við Framnesveginn.
Þar á hún við sig, sambýlismann-
inn Ólaf Finnbogason og dóttur-
ina Agnesi Hjaltalín Andradóttur.
Eflaust tæki kisan Regína undir
þessi orð ef hún talaði manna-
mál. „Þetta er um það bil hundrað
ára gamalt hús og var íþróttahús
uppi í Rauðhólum,“ segir Dögg
og bætir við hlæjandi: „Þeir sem
þekkja íþróttahúsin við MR og
Kvennó skilja það – aðrir ekki.“
Síðan heldur hún áfram með sögu
hússins. „Edda Heiðrún Backman
og systir hennar keyptu hér land
fyrir 25 árum og létu setja á það
tvö gömul hús sem pabbi þeirra
sá um endurbætur á. Við keypt-
um húsið í lok síðasta árs af Ág-
ústi Ólafi Ágústssyni og Þor-
björgu Gunnlaugsdóttur og flutt-
um inn í mars eftir að hafa málað
veggi, pússað öll gólf og sprautað
eldhúsinnréttinguna.“
Húsið er umvafið gróðri og
Dögg segir hverfið afar rólegt og
gott. „Sumum finnst þeir vera að
stíga inn í sumarbústað þegar þeir
koma hingað,“ segir hún. „Þrátt
fyrir að húsin standi þétt þá skil-
ur gróðurinn á milli þeirra.“
Þó að heimilið beri vott um
nostur húseigendanna hafa þeir
líka öðrum hnöppum að hneppa.
Dögg er nýbúin að opna bókabúð
á Laugavegi 51. Auk DVD diska,
dagblaða og tímarita sem tengj-
ast viðskiptalífinu
selur hún þar bækur
um fyrirtæki, leið-
toga og markaðs-
mál. „Bækur sem
ég mundi vilja
lesa sjálf,“ segir
hún. Búðin heit-
ir Skuld. „Nafnið
er vísun í örlaga-
nornirnar þrjár í
Völuspá,“ útskýrir
Dögg. „Skuld er fram-
tíðarnornin.“
- gun
Í hlýlegu hundrað
ára íþróttahúsi
● Vestan til í Vesturbænum býr Dögg Hjaltalín í vinalegu húsi ásamt sambýlismanni og
dóttur. Viðargólf og gömul húsgögn hæfa húsnæðinu vel.
Mæðgurnar Dögg og Agnes kunna vel við sig í Vesturbænum. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
„Foreldrar mínir keyptu þetta borðstofusett á námsárunum í
New York upp úr 1970. Það er úr palisander og ég passa að fara
vel með það,“ segir húsfreyjan.
Stigið er eitt þrep niður í setustofuna þar sem Dögg segir not-
legt að sitja á kvöldin. Sófasettið er frá ömmu hennar og afa. Skrautlegt gler í hurð setur svip á ganginn.
Agnes á sitt prívat
uppi í risi.
Þessar hillur hafa verið
sérsmíðaðar fyrir efri
hæðina og í sumar
þeirra er bókunum
raðað eftir stærð.
Pallurinn býður upp á
útivist í góðu skjóli.
7. JÚNÍ 2008 LAUGARDAGUR6